Skólablaðið - 01.04.1944, Síða 39
EINAR MAGNÚSSON kennari:
Skólahátíðin 1916
Ég var í skóla á heimsstyrjaldarárunum
1914—1918, en þau voru mjög ólík styrjald-
arárunum nú. Dýrtíð var mikil, en kaup lágt,
og því voru peningaráð skólaæskunnar mjög
lítil samanborið við það, sem margir skóla-
piltar velta sér nú í. Skemmtanir voru fá-
breyttar og fáar, og því voru skemmtanir
þær, sem völ var á, meiri hátíðir og meiri
viðburðir fyrir okkur, sem þá vorum á ungl-
ingsárum, en nú þykir um það, sem meira
er í borið.
Skemmtiferðalög voru okkur óþekkt, bílar
varla til, hestar dýrir, og fáir kunnu að ferð-
ast fótgaugandi. Öll tilbreytni var því ævin-
týri.
Skólaskemmtanir voru að mestu þær sömu
og nú, Jólagleðin, Skólaballið og Gagnfræða-
deildarskemmtunin, en Framtíðarballið kom
seinna til sögunnar. Á skemmtun gagnfræða-
deildar fengu engir að koma úr lærdómsdeild
og því síður utanskólafólk.
En svo var enn ein skemmtun á fyrstu
þremur skólaárum mínum, en það var Skóla-
hátíðin. Það var gönguferð alls skólans, nem-
enda og kennara, út úr bænum á einhvern
hæfan stað, þar sem hægt var að fara í leiki
og skemmta sér á ýmsan hátt úti, ef veður
var gott.
Skólinn stóð þá lengur fram eftir vorinu
en nú, kennslu var venjulega ekki lokið fyrr
en eftir 20. maí, en þá er farið að hlýna í
veðri, ef sæmilega vorar. — Einhvern góð-
viðrisdag um miðjan maí var Skólahátíðin,
og þótti skemmtileg tilbreyting í að vera úti
heilan dag í stað þess að sitja yfir bókum í
glampandi vorblíðunni. Hér á eftir fer lýs-
Einar Magnússon.
ing á því, sem fyrir mig kom á Skólahátíð-
inni 1916, en þá var ég í 2. bekk. Þetta er
orðréttur kafli úr dagbók minni, en í þá daga
héldu allir ungir andansmenn dagbók. Lýs-
ingin er barnaleg, ég held barnalegri en
annarsbekkingar nú myndu skrifa í sínar
^dagbækur. Stíllinn er ekki heldur fágaður,
enda var þetta ekki skrifað til að birta á
prenti.
,,Á laugardaginn (13. maí) var hin svo-
nefnda Skólahátíð. Var fyrst nokkur efi á,
hvort við fengjum Skólahátíð þetta ár, en
svo lauk, að það varð. Á föstudaginn var aug-
lýst, að menn skyldu vera komnir upp í
skóla á laugardagsmorgun kl. 9 með nesti
og nýja skó. Ég hugsaði mér, að ég skyldi
Skólablaðið
37