Skinfaxi - 01.11.2011, Síða 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Jón Pálsson:
Hreyfingin er að gera
mikilvæga hluti fyrir
samfélagið
„Aðkoma mín að íþrótta- og félagsmálum
er að ég var um fjögurra ára skeið formaður
Aftureldingar í Mosfellsbæ, þar áður í knatt-
spyrnudeild og í foreldra- og barnaráði.
Það er óhætt að segja að ég hef verið við-
loðandi Aftureldingu meira eða minna frá
því að ég flutti í Mosfellsbæ sem var fyrir
tíu árum. Hjá Val kom ég einnig að málum
þegar ég átti barn sem þar æfði og enn-
fremur sat ég í stjórn hjá Skallagrími í Borg-
arnesi þegar ég var þar en það eru orðin
tuttugu ár síðan,“ sagði Jón Pálsson, gjald-
keri UMFÍ, en hann situr einnig í fram-
kvæmdastjórn UMFÍ.
Jón sagði það spennandi að vera kom-
inn í stjórn UMFÍ en hann hefði alltaf haft
mjög mikinn áhuga á umgjörðinni þótt
grasrótarstarfið væri mikilvægt í deild-
unum og í foreldrastarfi.
„Ég sóttist m.a. eftir því að fá að taka
að uppeldi barnanna okkar. Ég vil að við
fáum athygli og viðurkenningu á því sem
við erum að gera í takt við umfangið. Það
er vandfundið jafnódýrt samfélagslegt
uppbyggingarverkefni en að sjálfsögðu
er fjöldinn allur af öðrum sjálfboðaliða-
hreyfingum en íþróttafélögum, eins og
SÍBS, krabbameinsfélög, skátar og KFUM
og K svo eitthvað sé nefnt. Öll þessi hreyf-
ing á svo sannarlega skilið alla athygli og
stuðning okkar skattgreiðenda. Ég lít ann-
ars björtum augum fram á veginn og
UMFÍ á eftir að leika stórt hlutverk næstu
100 árin, ekkert síður en síðustu 100 árin,
í þróun samfélagsins. Ég hef áhuga á því
að taka þátt í móta þá stefnu,“ sagði Jón
Pálsson í spjalli við Skinfaxa.
þátt í að móta stefnu fyrir mitt íþrótta-
félag í Mosfellsbæ og vinna að því í sam-
skiptum við sveitarfélög og ríki.
Það er mjög áhugavert að fá tækifæri til
að starfa með landshreyfingunni en hún
vinnur að mjög spennandi viðfangsefnum
sem mér finnast vera fram undan. Mér
finnst hreyfingin að mörgu leyti vera alltof
kurteis við stjórnvöld því við erum að gera
gríðarlega mikilvæga hluti fyrir samfélag-
ið og fáum að mínu mati ekki nægilega
viðurkenningu fyrir það. Við fáum hrós og
klapp á bakið á tyllidögum frá stjórnvöld-
um og ráðamönnum en þá er það orðið
sjálfgefið í samfélaginu að þetta eru sjálf-
boðaliðasamtök og menn vinna þetta án
þess að taka fyrir það gjald. Út úr þessu
hefur komið gríðarlega öflug starfsemi
sem hefur verið að þróast í yfir 100 ár sem
skiptir samfélagið miklu máli og kemur m.a.
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA
Frá stjórnarfundi
UMFÍ. Frá vinstri:
Matthildur Ásmund-
ardóttir, Bolli Gunn-
arsson, Haukur
Valtýsson, Anna
María Einarsdóttir
og Jón Pálsson.