Skinfaxi - 01.11.2011, Blaðsíða 23
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23
Framtíðin er björt
– Hvernig sérð þú Íslending fyrir þér á næstu
árum?
„Ég sé starfsemina fyrir mér með svip-
uðu sniði og hún er nú. Það getur vel ver-
ið að við færum út kvíarnar og þá í formi
almenningsíþrótta og skógræktar. Þetta
eru svona mínar hugmyndir sem eru ekki
komnar lengra. Félagið fór að vísu í upp-
hafi af stað með ákveðinn skógræktar-
áhuga og fékk reit til umráða til plöntunar.
Hann var síðan gefinn eftir þegar reist var
virkjun þar fyrir ofan en þá fór af stað upp-
bygging við sundlaugina. Það er grund-
völlur hjá okkur fyrir að gera meira því að
byggðin er þétt í kringum Hvanneyri en
dregið hefur úr henni í sveitunum. Starf-
ið almennt hefur gengið upp og ofan síð-
ustu 10–20 ár en leikstarfið hefur gengið
ákaflega vel og leikrit verið sett upp á
tveggja ára fresti. Stefnan hjá okkur er að
færa starfið meira inn á veturinn í sam-
starfi við grunnskólann hér og á sl. vori
buðum við upp á handboltaæfingar til
prufu. Þar nutum við kunnáttu nemanda
við Landbúnaðarháskólann. Margt fólk
kemur til náms við skólann og við reynum
oft að njóta þess ef hæfileikaríkir nem-
endur geta hjálpað okkur við að leiðbeina
á ýmsum sviðum. Við erum líka í nánu
samstarfi við UMSB. Hvað nánustu framtíð
áhrærir sé ég hana bara bjarta,“ sagði
Helgi Björn.
Helga Guðrún Guð-
jónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Stefán
Skafti Steinólfsson,
stjórnarmaður í
UMFÍ, veittu Bjarna
Guðmundssyni og
Helga Birni Ólafs-
syni starfsmerki
UMFÍ á afmælis-
hátíð Ungmenna-
félagsins Íslendings
sem haldin var á
Hvanneyri.
Frá Jónsmessuhátíð félagsins
á Mannamótsflöt 2009.
Félagar sem settu upp leikritið Taktu lagið Lóa. Sveit Ungmennafélagsins Íslendings sem tók þátt í Landshlaupi FRÍ 1991.
Danshópurinn
Sporið sýndi á 100
ára afmælishátíð
Leikfimihússins á
Hvanneyri 25. sept-
ember 2011, á hátíð
sem Landbúnaðar-
háskólinn á Hvann-
eyri og Ungmenna-
félagið Íslendingur
efndu til.