Skinfaxi - 01.11.2011, Síða 25
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25
Rannveig Oddsdóttir,
hlaupari í Ung-
mennafélagi Akur-
eyrar, hefur vakið
verðskuldaða athygli fyrir vasklega fram-
göngu í hlaupum síðustu ár. Rannveig
hefur verið dugleg að taka þátt í vetrar-
hlaupum UFA og staðið sig vel þar. Rann-
veig hefur ennfremur tekið þátt í Reykja-
víkurmaraþoninu síðan 1997 og aðeins
misst úr örfá hlaup, vegna barneigna, eins
og hún kemst sjálf að orði, en Rannveig er
37 ára gömul. Hún er kennari að mennt
en leggur núna stund á doktorsnám í
menntavísindum við Háskóla Íslands.
Komst á bragðið og hef
eiginlega hlaupið síðan
„Það eru um 14 ár síðan að ég fór að
hlaupa fyrir alvöru. Í byrjun var ég ég í
erobikk en þegar ég flutti suður haustið
1997 datt ég inn í hlaupahóp sem hljóp
saman tvisvar í viku. Á þessum tíma hljóp
ég 10 km í miðnæturhlaupi í Laugardaln-
um og náði þar ágætum árangri. Í fram-
haldinu hljóp ég hálft maraþon í Reykja-
víkurmaraþoninu og þar með varð ekki
aftur snúið. Ég komst á bragðið og hef
eiginlega hlaupið stanslaust síðan,“
sagði Rannveig en þess má geta að fullt
maraþon hljóp hún á 2,57 klst. árið 2010
og í hlaupinu í sumar hljóp hún hálft
maraþon á sínum besta tíma.
Hlaupin eru fyrir mér í dag
eins konar lífsfylling
„Ég var ekki mikið í íþróttum sem ungl-
ingur. Tók aðeins þátt í frjálsum íþróttum
úti í sveit eitt sumar og æfði sund í stuttan
tíma. Það er svo ekki fyrr en ég er orðin
24 ára gömul sem ég fer að hlaupa fyrir
alvöru. Það má segja að hlaupin séu fyrir
mér í dag eins konar lífsfylling og partur
af lífi mínu. Ég held að ég geti sagt að ég
hlaupi um 60 km á viku og svo er ég inn
á milli að synda og lyfta aðeins. Ég hef
alltaf átt mér þann draum að taka þátt í
einu af stóru maraþonunum á erlendum
vettvangi og sá draumur er að rætast því
að ég hef skráð mig í Berlínarmaraþonið
á næsta ári,“ sagði Rannveig Oddsdóttir,
hlaupari í Ungmennafélagi Akureyrar, í
samtali við Skinfaxa.
Rannveig Oddsdóttir, hlaupari hjá Ungmennafélagi Akureyrar:
Hleypur 60 km á viku og hefur skráð sig í Berlínarmaraþonið