Skinfaxi - 01.11.2011, Side 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Úr hreyfingunni
Í haust, þegar skólaár hófst, fór Héraðs-
samband Vestfirðinga, í samstarfi við
aðildarfélög, af stað með íþróttaskóla HSV
fyrir börn í 1.-4. bekk grunnskóla Ísafjarðar-
bæjar.
Íþróttaskóli HSV leggur áherslu á grunn-
þjálfun barna ásamt því að þau fái þjálfun
í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði
eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV. Yfir-
þjálfari sér um skipulagningu ásamt því
að sjá um grunnþjálfun. Hann mun einnig
skipuleggja og þjálfa aðrar greinar í sam-
starfi við aðildarfélög HSV.
HSV og aðildarfélög hafa unnið að þessu
verkefni í langan tíma og hefur sú vinna nú
borið árangur. Ísafjarðarbær styður verk-
efnið og var stofnun skólans ein af grunn-
stoðum í nýjum samningi Ísafjarðarbæjar
og HSV sem undirritaður var síðastliðinn
vetur.
Markmið skólans eru:
• Að fá sem allra flest börn til að iðka íþróttir.
• Að fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun
séu jákvæð.
• Að börn fái að kynnast sem flestum
íþróttagreinum.
• Að auka gæði þjálfunar.
• Að lækka kostnað heimila við
íþróttaiðkun barna.
• Að auka grunnþjálfunarhluta æfinga,
almenna hreyfingu, hreyfiþroska og
hreyfigetu.
„Skólinn lofar mjög góðu og aðsóknin í
hann hefur verið mjög góð. Í boltaskólan-
um erum við með handbolta, körfubolta,
fótbolta og blak. Svo erum við með sund
og í inni-grunnþjálfun eru kenndir leikir
almennt, þrautir, fimleikar og frjálsar
íþróttir. Eftir áramótin fórum við af stað
með alpagreinar og skíðaíþróttir. Það ríkir
almenn ánægja með starfsemina,“ sagði
Kristján Þór Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Héraðssambands Vestfirðinga.
Sagnagarður Landgræðslunnar
Saga landgræðslu í máli og myndum.
Fróðleg og lifandi fræðsla um gróðursögu,
landeyðingu og endurheimt landgæða á Íslandi.
Upplýsingar um opnunartíma í síma 488-3000 og á land.is
Landgræðsla ríkisins
Velkomin
á Selfoss
Verslunarmannahelgina
3.–5. ágúst 2012
Áhersla á grunnþjálfun barna í íþróttaskóla HSV