Organistablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 11

Organistablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 11
Hljóðfærið hefur og nýst til annarrar starfsemi og má í því sambandi nefna orgel- kennslu á vegum Tónlistarskólans á Akureyri og Tónskóla þjóðkirkjunnar. En org- elið er ekki eingöngu tónleikahljóðfæri. f>að er órjúfanlega tengt helgihaldi safnað- arins og sannar ágæti sitt hvern helgan dag ársins sem einleikshljóðfæri, til leiks með öðrum hljóðfærum, með kórsöng, almennum söng og einsöng. Nú hefur verið ákveðið í samráði við sóknarnefnd og sóknarpresta að auka hlut þess enn meir í helgihaldi kirkjunnar með því að halda hádegistónleika einu sinni í mánuði, þar sem skiptast á orgelleikur og ritingarlestur. Björn Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju Orgel Selfosskirkju endurbætt og stækkað Við hátíðarguðsþjónustu þann 11. ágúst 1991 vígði sr. Pétur Sigurgeirsson biskup safnaðarheimili Selfosskirkju til notkunar. Um leið var lokið turnbyggingu og mikl- um endurbótum og stækkun á kirkjunni og orgelinu. Orgelið var stækkað úr tveimur hljómborðum í þrjú, mcð því að smíðað var nýtt „rygpositív" svo sem vera átti samkvæmt fyrstu ákvörðunum sem horfið var frá vegna kostnaðar þegar orgelið var smíðað og sett upp 1964. Upphaflega var orgelið 28 raddir, en er nú eftir stækkun, 38 raddir. 14 raddir eru alveg nýjar og sú 15. oktava 4‘ í aðalverki bætist við á næsta ári og kemur í stað núverandi okt. 4‘, auk hennar hef- ur veriö skipt um 4 raddir. Ein rödd (rankett 16‘) var flutt úr swellverki í rygpositiv. Orgelið var upphaflega smíðað hjá G. F. Steinmeyer í Þýskalandi, en endursmíði og stækkun nú var á liöndum Bruno Christcnsen & Sönncr í Danmörku. Sama dag héldu þrettán organistar í Árnesprófastsdæmi þriggja klukkustunda langa tónleika á orgelið. Auk þeirra lék einnig Guðmundur Gilsson, fyrsti organisti Selfosskirkju. Glúmur Gylfason, organisti Selfosskirkju Pípuorgel til sölu Til sölu er pípuorgel af gerðinni Streichardt. Orgelið hefur 2 1/2 rödd, á tveimur hljómborðum og viðhengt fótspil. Orgelið er hægt að stækka í 4 1/2 rödd. Hljóðfærið hentar ágætlega litlum kirkjum eða sem æfingarhljóðfæri. Upplýsingar hjá Helga Bragasyni í síina 91-53584 heinia eða 91-52588 í vinnu. ORGANISTABLAÐIÐ 11

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.