Organistablaðið - 01.12.1991, Side 28

Organistablaðið - 01.12.1991, Side 28
Fréttir úr Eyjafjarðarprófastsdæmi Söngmót Kirkjukórasambands Eyjafjaröarprófastsdæinis Hclgina 19. - 20. október s.l. var 10. söngmót Kirkjukórasambands Eyjafjarðar- prófastsdæmis haldið í Víkurröst á Dalvík. Tilhögun helgarinnar var á þennan veg: I.aiigardiigur 19. október: Kl. 10.00 - 12.00 Samæfing allra kóra í íþróttahúsinu við Víkurröst. Kl. 12.00 - 14.00 Matur og æfing sérefnisskrár. Kl. 14.00 - 15.30 Kenndir sálmar úr nýja sálmabókarheftinu.Sálmar 1991, og rætt um messusönginn í kirkjunni. Þessi liður fór fram í Dalvíkurkirkju undir stjórn sr. Jóns Hclga Þórarinssonar og sr. Kristjáns Vals Ingólfssonar. Kl. 15.30 - 16.30 Kaffihlé. Kl. 16.30 - 17.30 Samæfing allra kóra. Framhald dagskrárinnar fór fram í Árskógi. Kl. 18.00 Aðalfundur K.S.E. Kl. 19.00 Kvöldverður og að honum loknum kvöldvaka. Kórarnir sáu um skemmtiatriði en einnig var stiginn dans með harmonikkuleik. Sunnudagur 20. októbcr: Kl. 13.00 Samæfing allra kóra. Kl. 15.00 Tónleikar í íþróttahúsinu við Víkurröst. Að loknum tónleikum var kaffi- samsæti í grunnskólanum. Á tónlcikunum var tilkynnt að þrír söngstjórar hefðu verið gerðir að heiðursfélög- um K.S.E. Þetta eru: Áskell Jónsson fyrrum organisti og kórstjóri í Lögmannshlíð- ar- og Glerárkirkju og fyrsti fonnaður K.S.E.. Jakob Tryggvason fyrrum organisti og kórstjóri Akureyrarkirkju og formaður K.S.E. í fjölmörg ár og Sigríöur Schiöth organisti og kórstjóri Grundarkirkju og stjórnarmaður K.S.E. í mörg ár. Áskell og Jakob hafa stjórnað á öllum söngmótum K.S.E. nema þessu en Sigríði hefur einungis vantað á eitt söngmót en var með á þessu móti. Voru þeim þökkuð vel unnin störf á liðnum árum og þeim fært heiðursskjal. Jakob var ekki viðstaddur en verður sent skjalið. Þátttakendur í söngmótinu voru um 180 úr 9 af 12 kórum sambandsins, einn kór- inn var ekki með sérefnisskrá en tók þátt í sameiginlega kórnum, tveir kórar sungu sérefnisskrána saman og þrír kórar tóku ekki þátt. Mótið þótti takast vel og var mikil ánægja með að halda sameiginlega skemmtun eins og þá sem var á laugardagskvöldið. Aðalfundur K.S.E. var haldinn seinnipart laugardagsins og var stjórn sambandsins endurkjörin á fundinum. Efnisskrá tónleikanna var á þessa leið: 1. Kirkjukór Ólafsfjaröar, sjöngstjóri er Jakob Kolosowski: Bjarni Þorsteinsson: Kirkjiihvoll við texta Guðmundar Guðntundssonar og Smá- vinir fagrir eftir Jón Nordal við texta Jónasar Hallgrímssonar. 2. Kirkjukór Dalvíkur, söngstjóri er Hlín Torfadóttir: Mín sál þinn söngur hljómi, Þýskt lag frá 15. öld í raddsctningu Róberts A. Ottós- sonar, textinn er úr 104 Davíðssálmi í gerð Stefáns Thorarensen og Vagnar á skóla- lóð eftir Pál P. Pálsson við texta Þorsteins Valdimarssonar. 28 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.