SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Blaðsíða 6
6 29. nóvember 2009
Roberto Saviano hefur haldið
áfram að skrifa þrátt fyrir erfiðar
aðstæður og ýmis vandkvæði á að
nálgast heimildir. Nýjasta bók
hans heitir Andstæðan við dauð-
ann. Þar setur Saviano fram þá
spurningu hvort hægt sé að lifa
heiðarlegu lífi réttu megin við lög-
in á svæði þar sem camorra er við
völd. Eina tækifæri ungra manna í
Kampaníu felist iðulega í því að
ganga í lögregluna eða herinn. Og
þó greinir hann lífskraft á þessum
slóðum, þrátt fyrir morðin, glæp-
ina og ruslið.
Þegar hann fékk verðlaunin,
sem kennd eru við Scholl-
systkinin og veitt fyrir að sýna
„borgaralegt hugrekki“, flutti
Giovanni di Lorenzo, ritstjóri Die
Zeit, ávarp og sagði að Saviano
hefði breytt ímynd Ítalíu: „Ro-
berto Saviano skuldbindur okkur
til að líta gagnrýnum augum á
land sitt, sem við öll þekkjum og
mörg okkar, þrátt fyrir óbærilegt
ástand, sem enn er ástæða til að
harma, getum ekki hætt að
elska … Ítalía – mig tekur sárt að
segja þetta – stefnir í að verða
siðferðislegt „þrotríki“ og mafían
á þátt í því enn einnig ríkjandi
stjórnmálamenn og fjölmiðlakerf-
ið.“
Er Ítalía að verða siðferðislegt „þrotríki“?
Lögregla á vettvangi morðs í Napolí. Ítök mafíunnar eru víða á Ítalíu.
Reuters
F
rá því að Roberto Saviano hóf pennann á loft og
lagði til atlögu við camorra, mafíuna í Napolí,
hefur líf hans verið í hættu. Bókin Gómorra kom
út fyrir þremur árum (hún kom út í íslenskri
þýðingu í fyrra) og vakti gríðarlega athygli. Ástæðan var
ekki sú að hann afhjúpaði hluti, sem enginn vissi, heldur
sagði það, sem allir í kringum hann vissu, en þorðu ekki
að segja upphátt. Saviano hefur fengið fjölda hótana.
Mafíuforinginn Carmine Schiavone, kallaður Sandokan,
lét þau boð ganga til Savianos að hann hefði verið dæmd-
ur til dauða: „Þú munt deyja um leið og uppnámið í
kringum þig fjarar út.“ En hann hefur ekki aðeins hrist
upp í mafíunni, mörgum almennum borgurum finnst
hann líka ganga of langt.
Saviano er með lífvörð allan sólarhringinn og er á far-
aldsfæti á milli lögreglustöðva og íbúða. Honum hefur
verið líkt við flakkara í óvinalandi. Móðir hans, bróðir og
frænka fara huldu höfði. Flugfélög hafa neitað að flytja
hann og á veitingastöðum og hótelum er gripið til sér-
stakra ráðstafanna þegar hann kemur.
Saviano lýsir tilveru sinni sem víti, en hann getur þó
ekki án verndarinnar verið. „Á hverjum morgni spyr ég
mig hvers vegna ég hafi gert þetta og finn ekkert svar,
veit ekki hvort það var þess virði,“ sagði Saviano eitt
sinn. En hann vill líka vera þyrnir í auga þeirra, sem líkar
ekki boðskapur hans.
Honum varð um og ó í liðnum mánuði þegar lögreglu-
stjórinn í Napolí sagði að hann þyrfti ekki lengur á líf-
verði að halda. Reiði braust út á Ítalíu og yfirmaður lög-
reglunnar í landinu greip í taumana. Saviano mun áfram
hafa lífvörð, en tilraunin til að svipta hann gæslunni hef-
ur vakið illan grun um að átt hafi að gefa færi á Saviano.
„Nú byrja þeir að snúa við þér baki“
Sjálfur sagði hann í grein, sem birtist í þýska vikuritinu
Die Zeit í október, að yfirmaður lífvarðarins hefði tekið
móti sér með orðunum: „Sjáðu, nú byrja þeir að snúa við
þér baki. Ég vissi þetta.“ Í greininni kveðst Saviano óttast
að rekinn hafi verið fleygur í samstöðuna gegn mafíunni:
„Einsemd mannanna sjö, sem hafa verndað mig í þrjú ár,
hefur snortið mig djúpt. Eftir að lögreglustjórinn í Napólí
gerði lítið úr verkefni þeirra og setti fram efasemdir um
rannsóknina gegn mafíunni í Napolí og lögregluna losnar
maður ekki við þá tilfinningunni að samstaðan gegn
klíkunum sé að bresta.“
Saviano hlaut fyrr í þessum mánuði verðlaun, sem
kennd eru við Scholl-systkinin, sem nasistar tóku af lífi
fyrir andóf. Þegar Saviano tók við verðalaunum ræddi
hann hugrekki systkinanna, sem trúðu á mátt orðsins og
voru sannfærð um að þýskir menntamenn myndu veita
nasistum mótspyrnu. „Það að skrifa merkir andóf,“ sagði
hann í ræðunni og bætti við: „Ef ég á mér draum þá er
hann að ná einhverju fram með orðum mínum, að sanna
það að hið skrifaða orð hefur enn nægan þunga og styrk
til að breyta veruleikanum.“
Þyrnir í auga mafí-
unnar í Napolí
Skrif um mafíuna þýddu líf í lög-
reglufylgd fyrir Roberto Saviano
Roberto Saviano hefur farið huldu höfði í þrjú ár.
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Hlutskipti kvenna í mafíunni
Roberto Saviano birti í sumar grein um hlutskipti
kvenna í mafíunni. „Þar sem mafían ríkir eru konur
bundnar af stífum, órjúfanlegum hegðunarreglum,“
skrifar hann. „Konur mega fyrirskipa morð, en ekki
taka hliðarspor eða yfirgefa menn sína. Þær mega
fjárfesta að vild, en alls ekki nota snyrtivörur þegar
menn þeirra eru á bak við lás og slá.“ Þegar eigin-
maðurinn gengur laus gegnir öðru máli. Þá heldur
konan sig til: „Útlit hennar er til marks um vald
hans.“ Ekkja þarf að bíða í sjö ár áður en hún geta
farið að líta í kringum sig. Vilji hún giftast á ný þarf
hún leyfi sona sinna. Karlar, sem daðra við konur
mafíósa, stefna lífi sínu í hættu. Saviano vitnar til
réttarhalda þar sem eitt vitnið sagði hættuminna að
myrða eiginkonu mafíuforingja, en sofa hjá henni. Þá
væri þó ekki útilokað að sleppa lífs.
Þessi mafíuaftaka um hábjartan dag á götu úti í Napolí
náðist á öryggismyndavél. Lögregla birti myndirnar og
auglýsti eftir vitnum en enginn þorði að gefa sig fram.
Reuters
Jólatilboð
20% afsláttur af stillanlegum heilsurúmum
Faxafeni 5 • Sími 588 8477