SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Blaðsíða 8
8 29. nóvember 2009
Shankly, ævisaga Skotans kjarnyrta, var endur-
útgefin á dögunum í tilefni tímamótanna. Bókin, sem
blaðamaðurinn John Keith skrifaði eftir samtöl við
Shankly, kom út árið 1976, tveimur árum eftir að
meistarinn hætti störfum hjá Liverpool.
Bók þeirra Keiths vakti á sínum tíma mikið umtal
og forráðamönnum félagsins var ekki skemmt vegna
ummæla þjálfarans fyrrverandi. Þeir höfnuðu því að
bókin yrði til sölu í félagsversluninni á Anfield en nú
er öldin önnur. Bókin, og ýmsir gripir sem framleiddir
hafa verið í tilefni þess að hálf öld er liðin síðan
Shankly hóf störf á Anfield, er í hávegum höfð þar
sem hún var bannvara fyrir hálfum þriðja áratug.
Það sem Shankly sveið mest var að hann skyldi
ekki fá neitt hlutverk hjá félaginu sem hann reisti úr
rústunum og gerði að stórveldi. Þótt hann settist í
helgan stein sem aðalþjálfari og hugmyndasmiður
væri hann enn á lífi! Honum var ekki einu sinni boðið
á leik hjá Liverpool fyrr en 20 mánuðum eftir að hann
hætti en kvaðst vera auðfúsugestur hjá ýmsum öðr-
um félögum.
Bókin sem ekki fékkst
seld í Liverpool-búðinni
er nú höfð í hávegum
Kápa bókarinnar sem endurútgáfin var á dögunum.
Á
standið var aumt haustið 1959. Heima-
völlur enska knattspyrnufélagsins Liv-
erpool var lélegur, aðstaðan fyrir
áhorfendur var afar bágborin og það
sem flestum þótti verst: liðið var ekki beysið.
Liverpool hafði fimm sinnum unnið enska
meistaratitilinn, síðast vorið 1947 en félagið lifði
ekki á fornri frægð frekar en önnur og var um
þessar mundir í 2. deild, þeirri næst efstu.
Skotinn Bill Shankly var þá ráðinn skipstjóri
skútunnar og ástandið varð ekki samt aftur. Hann
mætti til leiks 1. desember. Hálf öld er á þriðju-
daginn frá þeim merka degi í sögu félagsins.
Hreingerningin tók örlítið lengri tíma en í Ajax-
auglýsingunni um árið. Fall er fararheill því Liver-
pool tapaði fyrsta leiknum undir stjórn Shankly,
4:0 fyrir Grimsby á heimavelli og þeim næsta 3:0
fyrir Charlton á útivelli. En Shankly vissi að Róm
var ekki byggð á einum degi; liðið varð tvö ár í röð
í þriðja sæti 2. deildar undir stjórn Skotans en
komst upp í efstu deild í þriðju tilraun, vorið 1962,
og þá var grunnurinn að góðu liði tilbúinn.
Aðeins tveimur árum seinna fögnuðu lærisvein-
ar Shanklys Englandsmeistaratitlinum. Ári síðar
bættist enski bikarinn í safnið og liðið varð Eng-
landsmeistari á ný 1966.
Bill Shankly fæddist í Glenbuck, litlum kola-
námubæ í Skotlandi, árið 1913. Þar var knatt-
spyrnan aðaláhugamál strákanna eins og víða
annars staðar. Alla dreymdi um atvinnumennsku
og Shankly fetaði þá grýttu braut; hóf ferilinn með
Carlisle og fór síðan til Preston North End. Hann
lék sjö sinnum með skoska landsliðinu en heims-
styrjöldin síðari setti strik í reikninginn og þegar
keppni atvinnumanna á Englandi hófst á ný að
henni lokinni var Shankly orðinn 33 ára. Þá var
tímabært að leggja skóna á hilluna en hann var
ákveðinn í því að snúa sér að þjálfun.
Ferill Shanklys var sannarlega ekki alltaf dans á
rósum. Hann þjálfaði fyrst Carlisle, síðan
Grimsby, þá Workington og loks Huddersfield.
Hann yfirgaf tvö fyrstu félögin í hálfgerðu fússi.
Forráðamennirnir gátu ekki útvegað peninga til að
styrkja liðið og honum fannst þeir ekki hafa nægi-
lega ástríðu fyrir íþróttinni. Hana skorti Bill
Shankly ekki. Hann vildi vinna; vildi alltaf að liðið
hans væri best og fékk leikmennina oft til að trúa
því, þótt innst inni vissu þeir að svo væri ekki.
Þegar þjálfari tekur við stjórn liðs ræður hann
gjarnan sína eigin menn sér til aðstoðar en eitt af
því fyrsta sem Shankly gerði eftir að hann kom til
Liverpool var að tilkynna þeim þjálfurum sem fyr-
ir voru að þeir færu hvergi. Eitt var þó á hreinu:
Hann legði línurnar og væri viss um að þeir
myndu fljótlega átti sig á því hvað hann vildi. Í
hópnum voru bæði Bob Paisley, sem tók við af
Shankly þegar hann hætti 1974, og Joe Fagan, sem
tók svo við af Paisley.
Shankly var grjótharður nagli. Hann vildi sigra;
alltaf. En hann var líka bljúgur og bar hag fólksins
í borginni fyrir brjósti. Hann vildi nefnilega sigra
til þess að gera fólkið hamingjusamt.
Stöpullinn undir styttunni af Shankly er úr
skosku graníti, sem þótti vel við hæfi vegna upp-
runa þessa merka knattspyrnuþjálfara. Á plötu á
stöplinum er þessi áletrun: Shankly – hann gerði
fólkið hamingjusamt.
Algeng sjón; að tekin sé mynd af aðkomumönnum úr hópi dyggra stuðn-
ingsmanna Liverpool við styttuna af Shankly fyrir utan leikvanginn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mestu máli skipti
að gleðja fólkið
Fimmtíu ár síðan Bill Shankly
hóf störf hjá Liverpool
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Bill Shankly er minnst með myndarlegum hætti í Liv-
erpool safninu á heimavelli félagsins, Anfield Road.
Bill Shankly var eftirlæti
blaðamanna enda orðhepp-
inn með afbrigðum. Stund-
um er sagt um slíka menn
að þeir tali í fyrirsögnum.
„Vitaskuld fór ég ekki með
konuna að horfa á Roch-
dale spila á brúðkaups-
afmælinu okkar. Trúir því
einhver að ég hefði gift mig
meðan á keppnistímabilinu
stóð? Þetta var afmæl-
isdagurinn hennar. Og það
var varalið Rochdale...“ Shankly og eiginkonan Nessie.