SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Page 10
10 29. nóvember 2009
H
ver áttar sig á því hvað er satt og hvað er logið í
sambandi við skuldamál 1998 ehf. og Haga inni í
Arion banka? Skyldi nokkur skilja fléttuna til fulls,
nema þá aðalhandritshöfundur og leikstjóri, Jón
Ásgeir Jóhannesson?
Trúir einhver því að breskir fyrrverandi viðskiptafélagar
Jóns Ásgeirs séu á hraðferð til landsins, með marga milljarða í
ferðatöskum, til þess að fjárfesta með vini sínum í Högum? Er
Jón Ásgeir ennþá vinur þeirra?
Voru þessir „vinir“ Jóns Ásgeirs, þeir Tom Hunter og Don
McCarthy, ekki skaðbrenndir eftir viðskipti sín með Baugi
Group, sem er nú í yfir 300 milljarða króna gjaldþrotameðferð?
Tom Hunter átti hlut í Glitni og FL Group og hann fjárfesti með
Baugi í fasteignaverkefnum í Lúxemborg. AMX sagði m.a. um
Hunter fyrr í vikunni: „Á auðmannalista Sunday Times árið
2008 var talið að verðmæti eigna Toms Hunters væri um 1,05
milljarðar punda. Hann komst ekki á listann á þessu ári en talið
er að eignir hans hafi minnkað um allt að 300 milljónir punda.
Áður var Tom Hunter sagður auðugasti maður Skotlands.
Tom Hunter er aðaleigandi fjárfestingarfélagsins West Coast
Capital. Það félag var einn eigenda Jötuns, ásamt Baugi og
Fons. Jötunn var síðan hluthafi í Glitni banka og gegndi lyk-
ilhlutverki í valdabaráttu um bankann. Þá áttu West Coast
Capital og Baugur í samstarfi í ýmsum fjárfestingum í Bret-
landi. West Coast var m.a. hluthafi í matvælaheildsölukeðjunni
Booker, ásamt Baugi. Baugur og Tom Hunter áttu einnig sam-
starf um eignarhluti í House of Fraser.“ Talsmaður Hunters
sagði hér í Morgunblaðinu fyrr í vikunni að Hunter væri ekki í
hópi erlendra fjárfesta sem sagðir voru ætla að endurfjármagna
1998 ehf., móðurfélag Haga.
Malcolm Walker stofnaði Iceland-matvörukeðjuna árið
1970, sem var reyndar engin keðja þá, heldur aðeins ein versl-
un. Hann byggði hins vegar upp á 30 ára tímabili gífurlega öfl-
uga verslanakeðju og seldi hana svo árið 2001. Þegar Baugur
Group, Fons, Landsbankinn og fleiri aðilar keyptu Iceland-
keðjuna árið 2005 var Walker ráðinn sem forstjóri að keðjunni
á nýjan leik, með einhverjum kauprétti, ef vel gengi, en Bill
Grimsey, sem hafði rekið keðjuna með tapi frá því Walker
hætti, var rekinn.
Walker tókst það sem hann ætlaði sér, hann snarsneri
rekstrinum við og Iceland fór að stórgræða og Walker eignaðist
þannig hlut í keðjunni.
Ég hef tvisvar sinnum tekið viðtal við Walker. Í fyrra skiptið
snemma árs 2005 úti í Bretlandi þegar Íslendingarnir höfðu
keypt keðjuna og hann var um það bil að hefja störf sem for-
stjóri og síðara skiptið var hér á Íslandi sumarið 2006, en þá var
hann hér á landi í auðkýfingalaxveiðiboði. Þar fyrir utan ræddi
ég margsinnis við Walker símleiðis, nú síðast á mánudags-
kvöldið, þar sem hann sagðist enga ákvörðun hafa tekið um að
fjárfesta í Högum. Breskir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni
að Walker segði að til greina kæmi að hann fjárfesti lítillega í
Högum.
Af kynnum mínum af Malcolm Walker að dæma held ég að
mér sé óhætt að fullyrða að hann er grjótharður „business-
nagli“. Grjótharður! Ég leyfi mér líka að fullyrða að hann
myndi ekki taka þátt í því að endurfjármagna Haga fyrir þá
Bónus-feðga, nema slík fjárfesting lofaði feitum gróða.
Ég veit ekkert um fjármál Dons McCarthys, stjórnarfor-
manns House of Fraser, en hallast þó að því að hann geti ekki
verið áfjáður í að koma hingað með peninga, ef hann á ein-
hverja, til þess að fjárfesta í fákeppnisrekstri þeirra feðga, sem
ráða yfir um 60% matvörumarkaðar á Íslandi og eiga vonandi
yfir höfði sér að fá á sig löggjöf, sem geri þeim ókleift að halda
slíkri hlutdeild til frambúðar.
DV hélt því fram fyrr í vikunni, að Kaupþing hefði afskrifað
um 25 milljarða króna af skuldum 1998 ehf. þegar bankinn tók
yfir bréf 1998 ehf. Það hefur ekki fengist staðfest, en sé það
rétt, þá þurfa stjórnendur bankans, sem nú heitir Arion banki,
að gera grein fyrir því, með hvaða hætti slík vinnubrögð féllu
undir hinar „skýru og gegnsæju verklagsreglur bankans“. Geta
stjórnendur og stjórnarmenn bankans gert slíkt? Geta þeir
haldið störfum sínum og andlitinu, ef þeir leyfa sér slík vinnu-
brögð? Ég bara spyr!
Flækjustigið
vex frá degi
til dags
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
6:30 Heiðar fer fyrstur fjöl-
skyldumeðlimanna á fætur,
hellir upp á kaffi og hleypir
hundinum Pjakki út. Síðan sest
hann niður með kaffibolla og les
blöðin. Að blaðalestrinum lokn-
um vekur Heiðar börnin,
Myrkva, 3 ára, og Eneku, 9 ára.
Þá er kveikt á morgunsjónvarp-
inu og krakkarnir fá sér morg-
unkorn yfir teiknimyndunum.
„Svo mætum við Myrkvi saman í
vinnuna klukkan hálfníu. Ég
sæki morgunmatinn og fer með
hann út í skúr þar sem elsta
deildin er. Ég sest svo niður með
krökkunum og fæ mér að
borða,“ segir Heiðar um upphaf
vinnudagsins.
Þegar Heiðar hefur rennt nið-
ur hafragrautnum mætir hann á
deildarstjórafund þar sem
vinnudagurinn er skipulagður.
Að fundinum loknum fer Heiðar
aftur inn á deild og þá byrjar
hópastarf. „Ég er með skólahóp,
elstu börnin. Þau eru algjörir
snillingar. Við erum með vinnu-
stund og í dag erum við að æfa
okkur að skrifa nöfnin okkar
eftir forskrift,“ segir Heiðar.
Á deildinni hans Heiðars,
Krummakoti, er 21 barn og þar af
eru 12 börn sem eru að fara í
skóla. „Eftir hópastarfið er
myndrænt val. Það er vinsælast
að fara í tölvu og þá eru bara
uppbyggilegir leikir í boði eins
og Doppa og Bogi blýantur.“
Á meðan börnin eru í vali eru
kaffitímar starfsmanna. „Þetta
er kvennavinnustaður og það er
mikil kvennamenning í gangi,
sérstaklega í kaffitímanum. Það
er setið og prjónað og oft komið
inn á eitthvað sem ekki snertir
endilega mitt áhugasvið og ég
læt prjónaskapinn alveg eiga
sig,“ segir Heiðar sem er þrátt
fyrir ólík áhugamál afar ánægður
með samstarfsfólk sitt.
Að valinu loknu er samveru-
stund og þá kemur sér vel að
vera með tónlistarbakgrunn. „Ég
dreg fram gítarinn og við syngj-
um í okkur hungrið og síðan
gæðum við okkur á grjónagraut
og slátri,“ segir Heiðar. Eftir
matinn fer Heiðar út og rifjar
upp fótboltatakta, börnunum til
mikillar gleði. Rjóð í kinnum fara
börnin síðan inn í samverustund
þar sem Heiðar les um ævintýri
Talnapúkans. Í kaffinu er boðið
upp á maltbrauð með kindakæfu
og mjólk, sem leggst jafn vel í
Heiðar og börnin. Því næst fara
börnin aftur í val.
17:30 Vinnudegi er lokið og
Heiðar og Linda, kona hans,
ákveða að drífa sig beint í Suð-
urbæjarlaugina í sund með
börnin. „Þetta er besta sund-
laugin á landinu. Það er bara
eitthvað við það að fara í sund
úti. Þeim mun kaldara sem það
er, þeim mun þægilegra. Ég
syndi fyrst svona 15 ferðir og
svo syndir konan.“
Það er ákveðið að hafa hakk og
spaghettí sem fellur í góðan jarð-
veg hjá yngri fjölskyldumeðlim-
unum. „Föður mínum áskotn-
aðist heilt naut um daginn og
hakkið kemur úr því nauti. Við
erum að fara nú um helgina að
ganga frá tuddanum og úrbeina
hann. Nú á að fylla allar frysti-
kistur í fjölskyldunni,“ segir
Heiðar.
Þegar Heiðar er inntur eftir því
hvort þeirra sjái oftar um elda-
mennskuna er hann skjótur til
svars: „Eldhúsið er minn heima-
völlur og ég er kóngurinn þar því
mér finnst svo gaman að elda.
Pabbi er sko kokkur, kannski hef
ég smitast eitthvað af honum.“
Að kvöldmatnum loknum er
börnunum komið í ró. Sonurinn
Myrkvi fær að sofna í mömmu og
pabba rúmi, en það þykir honum
gott. Heiðar les fyrir hann sögu
um Tomma lest. Dóttirin Eneka
dundar sér örlítið lengur enda
töluvert eldri en litli bróðir.
21:00 Heiðar fer út að ganga
með hundinn og saman leggja
þeir undir sig Vellina í Hafn-
arfirði í klukkustundargöngu.
Þreyttir koma svo pjakkurinn og
húsbóndinn heim. Heiðar sest
fyrir framan sjónvarpið með
Lindu og dottar yfir dansþætti.
„Ég er oft skammaður fyrir það
að sofna fyrir framan sjónvarpið.
Þegar ég byrja að detta út fyrir
framan skjáinn fer ég að drífa
mig upp í rúm. Sjónvarpið er
ágætis svefnmeðal. Það slokknar
svo yfirleitt á mér milli klukkan
ellefu og tólf,“ segir Heiðar.
signyg@mbl.is
Dagur í lífi Heiðars Arnar Kristjánssonar leikskólakennara
Heiðar vílar ekki fyrir sér að skella sér fótbolta eða eltingaleik með krökkunum.
Morgunblaðið/Heiddi
Syngur í sig hungrið
www.noatun.is
GRÍSALUNDIR
KR./KG
1199
Nóatún
bestir
í kjöti
40%
afsláttur
1998
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI