SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Síða 31

SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Síða 31
29. nóvember 2009 31 G ott starf er unnið hjá Unicef, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem stendur fyrir degi rauða nefsins og safnar heimsforeldrum til að styðja uppbygging- arstarf í Mósambík. Það er erfitt fyrir Íslendinga að ímynda sér þau bágu kjör og þær ömurlegu aðstæður sem fólk býr við á þeim slóðum. Ekki þarf annað en að nefna að 12% barna lifa ekki fyrsta aldursárið, lífslíkur við fæð- ingu eru 42 ár, 70% skóla eru án vatns og hreinlætisaðstöðu og 1,6 milljónir barna eru munaðarlausar. Um 470 þúsund börn hafa misst annan eða báða foreldra vegna alnæmis, enda eru 16,3% þjóðarinnar alnæmissmituð. Og þetta er tölfræði, sem getur verið afar miskunnarlaus, þegar örlög einstaklinga eru annarsvegar. Eftirminnilegast úr ferð Ilmar Kristjánsdóttur leikkonu, sem lagði leið sína til Mósambík í október í fyrra, er eitt barn, sem var alnæmissmitað og „hafði misst for- eldra sína og átti einn tómat til að borða.“ Það er ekki nefnt í tölfræðinni. Í viðtali í Sunnudagsmogganum í dag rifjar Ilmur upp ferð sína. „Í Mósambík blasti við allt annar veruleiki og maður gat einhvern veginn ekki haft áhyggjur af því að góðærið á Íslandi væri að fara til fjandans. Á sama tíma horfði ég á börn í tötrum fá vítamínsprautu til að þau dæju ekki úr næringarskorti. Krepputalið hefur aldrei haft nein áhrif á mig og ég held að dvölin í Mósambík, þegar sjokkið kom, hafi töluvert með það að gera. Ef maður hugsar um grunnþarfirnar, þá eigum við nóg af vatni, jarðhita, hús og fisk í sjónum – það getur ekkert farið úrskeiðis. Þarna hefur fólk ekki einu sinni vatn. Þá verður viðmiðið annað.“ Auðvitað er mikilvægt að þjóðir sem betur standa leggi sitt lóð á vogarskálarnar til þess að bæta lífið í vanþróuðum ríkjum. Skref í þá átt er að taka þátt í átaki Unicef og Íslend- ingar eru í aðstöðu til þess – lítið þarf til að breyta miklu í lífi einstaklings. Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, ræðir um nýja bók sína, Umsátrið, í samtali við Sunnudagsmoggann. Titillinn vísar til þess að 2008 var þjóðin um- setin, seðlabankar grannríkja okkar tóku höndum saman um að loka okkur inni og reka í fangið á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þar hefðu þessar sömu þjóðir, Bretar og Hollendingar, með stuðningi Frakka og Norðurlandanna, sagt að Íslendingar fengju ekki aðstoð nema skrifað yrði undir Icesave. Styrmir segir að nú sé tímabært að „útfæra fulltrúalýðræðið og þróa áfram yfir í beint lýðræði“. Hann segir að eftir hrunið sjái hann ekki að þetta sé hægt að gera á neinn annan veg en „að við galopnum allt samfélagið, að hér verði allt opið“. Styrmir gagnrýnir að byrjað sé að einkavæða bankana að nýju með því að afhenda þá erlendum lánardrottnum án þess að sett hafi verið ný löggjöf í kringum starfsemi banka og fjármálafyrirtækja. „Þessi einkavæðing er framkvæmd af vinstri stjórn, fyrstu raun- verulegu ómenguðu vinstri stjórninni á Íslandi, án þess að sett hafi verið nokkur löggjöf um bankakerfið, þó ekki væri nema til að tryggja að ekki væri lengur hægt að reka við- skiptabankastarfsemi og fjárfestingabankastarfsemi saman undir einum hatti.“ Forustumenn í íslenskum stjórnmálum hafa ekki sagt hvernig þeir ætla að leiða Ísland inn í 21. öldina. Þeim væri hollt að lesa bók Styrmis. Sumir þeirra kunna að láta boðberann trufla sig, en þeir ættu að einbeita sér að boðskapnum. Lítið þarf til að breyta miklu „Álagið hefur aukist verulega. Engu að síður er þetta miklu léttara en áð- ur.“ Gunnlaugur Júlíusson hlaupagarpur stefnir að því að hlaupa 5.000 km á árinu. „En ég náði 89 myndum, horfði á þær allar, spólaði fram og til baka og skrifaði setning- arnar beint niður í tölvu um leið.“ Guðni Sigurðsson horfði á 89 íslenskar kvikmyndir fyrir bókina Ég tvista til að gleyma þar sem farið er yfir íslenska kvikmynda- sögu og fyndnar setningar og frasa. „Nei í dag getur verið eitthvað allt annað á morgun.“ Heiðar Örn Kristjánsson, sem fór fyrir hljómsveitinni Botnleðju, útilokar ekki að hljómsveitin komi saman á nýjan leik. „Þetta er góð vinna sem ég er í en leiðinlegt þegar maður fær ekki að mæta í hana.“ Grétar Rafn Steinsson, leikmaður enska úrvals- deildarliðsins Bolton, fær lítið að spila með liðinu sínu. „Í einu tilviki var fólk að aug- lýsa trúlofun sína á netinu með myndum af trúlofunarhringum með nöfnum og öllu á sama tíma og það fékk greiddar bætur frá Tryggingastofn- un.“ Halla Bachmann Ólafsdóttir, lög- fræðingur og forstöðumaður eft- irlitssviðs Tryggingastofnunar rík- isins, segir of algengt að fólk sem búi saman og eigi börn skrái sig á sitthvoru lögheimilinu til að fá bætur á þeim forsendum að það sé einstætt. „Ég var frægur fyrir það þegar ég var að byrja að læra að syngja, að vera kjaftfor og segja að ég ætlaði mér á toppinn. Þangað stefndi ég og þangað náði ég.“ Kristján Jóhannsson óperusöngvari. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal þjóðinni, af því að stjórnvöld okkar vilja ekki að snillingarnir beri ábyrgð á snilldarverkum sínum. Okkar hlutverk er að sitja uppi með hörmung- arnar sem og hin slöku eftirmæli snilldarinnar.“ Fyrrum stuðningsmaður núverandi ríkis- stjórnar heldur því fram að forráðamenn hennar séu farnir að trúa eigin fullyrðingum um að ís- lenska þjóðin beri ábyrgð á annarra manna skuld- bindingum og telji því ekki nauðsynlegt að fá dómsúrlausn í málinu. Illt er það ef rétt er. En hitt hefur ekki breyst að þjóðin er annarrar skoðunar og vildi láta reyna á enda tilefnið stórbrotið. „Brjótumst undan bölvun spillingar“ Nú er hins vegar staðan sú að jafnvel þótt Íslandi í andbyr sínum og tímabundinni ógæfu lánaðist það að bægja burtu hinu nýja frumvarpi standa lögin eftir. Þeim verður vísast ekki breytt. En spursmál er hvort einhver aðkoma sé til þess að láta reyna á þær spurningar fyrir dómi sem Sigurður Líndal hefur haft uppi um hvort stjórnarskráin sjálf setji ekki ríkisábyrgð af slíkri stærðargráðu takmörk. Rökstuðningur fræðimannsins fyrir því að slíkt verði að skoða er sterkur og sannfærandi. Í lok greinar Einars Más Guðmundssonar, sem fyrr var vitnað til, segir: „Þótt stór hluti góðæris- ins væri hagbóla, byggð á draumórum, þá má ekki gleyma því að undirstaða þess voru raunverulegar eignir fólksins: Fiskurinn, lífeyrissjóðirnir og ríkisfyrirtækin. Við þurfum að brjótast undan bölvun þeirrar spillingar sem nú ríkir. Það er alveg ljóst að þessi ríkisstjórn er ekki að brjótast undan bölvun spillingarinnar. Hafi hún ætlað að gera það hefur hún löngu gefist upp á því. Það er fjármála- kerfið sem er að taka allar stóru ákvarðanirnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er fulltrúi þess. Þetta fjármálakerfi sem Viðskiptaráð kom á hér á landi með ýmsar kanónur hrunsins innanborðs er úr- sérgengið um allan heim. Engu að síður ræður það öllu. Frelsi er að segja nei við þetta kerfi, nei við þetta fólk, nei við Yngva Örn og bankaforkólfana. Hlustum frekar á Ian Dury og þöngulhausana. Við þurfum nýtt afl, breiða samstöðu fólks þar sem ekki er spurt um flokksskírteini. Stjórnmálaflokk- arnir hafa fengið sitt tækifæri en eru óðum að klúðra því.“ Hvort sem menn eru sammála öllum skoðunum hins beitta höfundar eða ekki verður ekki fram hjá þeim horft. Enda væri það ekki hollt.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.