SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Qupperneq 36

SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Qupperneq 36
36 29. nóvember 2009 E rfitt er að hugsa sér lífið án tónlistar. Af því hún hreyfir við einhverju inni í okkur. Stundum kemur hún fram tárunum, stundum fyllir hún okkur gleði og stundum vekur hún slíka girnd að við nötrum af þrá. Ég brá mér norður yfir heiðar um síðustu helgi og fór með- al annars á tónleika á Græna hattinum, með þeim félögum Mugison og Björgvini Gíslasyni. Ég hafði ekki séð Björgvin á sviði í áraraðir og það var un- aður að fylgjast með því hvernig þessi hlédrægi afalegi maður breyttist í galdrakarl þegar hann fór höndum um gítarinn. Áhrif tónanna voru líkamleg, einhver fugl vaknaði í brjóstinu og flaug með eld um æðarnar. Magnað tónaflóðið tendraði bál og það var gott að vera til. Það losnaði um efni í hausnum og maður færðist yfir á ein- hverja óútskýrða bylgjulengd þegar þeir félagar miðluðu þessu ósnertanlega í gegnum tónlist sína. Mugison var ekki síður sjarmerandi, með hjartað á réttum stað (sem skiptir auðvitað öllu máli í listsköpun), hann var dásamlega slakur, segjandi sögur af gúanó-konum sem voru teknar aftanfrá upp við síldartunnur, karlarnir skelltu sér umsvifalaust á þær þegar þær beygðu sig ofan í tunnu, pilsin sviptust upp í golunni og við blasti nærbuxnaleysið. Lái þeim hver sem vill að geta ekki staðist það. Engin uppskrift er til að kynþokkafullri tónlist, þessari sem snertir strengina hið innra. Hún getur verið margskonar og ekki ólíklegt að tíðarandinn hverju sinni ráði þar einhverju um. Sjálfsagt hitnar gelgjum nútímans innan í sér þegar þær hlusta á hiphop- eða R&B-tónlist, á meðan Vilhjálmur Vil- hjálmsson veldur titringi í hnjám þeirra sem voru ungar á sama tíma og hann. Besta af öllu er þegar saman fara kynferðisleg útgeislun flytjandans og tónlistarlegir hæfileikar. Elvis hafði til dæmis hvort tveggja, enda lágu konur í öngviti í hrönnum þar sem hann hóf upp raust sína. Þær urðu gjörsamlega frávita af ómótstæðilegri blöndu þokkans og tónlistarinnar. Siðprúðar mæðgur hér í bæ fundu sterklega fyrir þessari sömu blöndu þegar þær brugðu sér á tónleika með Leonard Cohen og sögðu að þeim loknum: „Hann söng með þessari djúpu sexí rödd sem hljómaði alveg niður í eistu.“ Ekki er ólíklegt að þessi sami víbringur sé það sem veldur því að fyrirbærið grúppíur er og verður alltaf til, en vert er að taka fram að þær eru af báðum kynjum. Fætur þessa fyrir- bæris færast sundur í návist goðanna, það missir alla mót- stöðu og breytist í viljalaust verkfæri. Eða eins og maður nokkur á miðjum aldri í íslenskri hljómsveit sagði: „Bara af því að ég stend á sviði og spila tónlist, þá vill ótrúlegasta fólk sofa hjá mér.“ Gott dæmi um ofurmátt þeirra sem hafa til að bera réttu útgeislunina og hæfileikana er heimsókn flamenco- dansarans Joaquins Cortes hingað til lands. Stuttu eftir að hann steig á svið ásamt hljómsveit sinni hafði hann hvern einasta kjaft í stútfullri Laugardalshöll á valdi sínu. Úff, það var næstum of mikið af því góða. Forleikurinn einn fékk blóðið til að sjóða: Spænsku tregafullu söngraddirnar smugu inn í hverja taug í bland við gítar, fiðlur, þverflautur og áslátt. Þegar dansarinn með sinn sveitta skorna kropp fór svo að steppa um sviðið með eldheitri líkamstjáningu, þá var hverri konu lokið. Maðurinn dansar þannig að það veldur andköfum. Súludans allra heimsins kvenna er eins og hvert annað fálm í samanburði við hreyfingar hans í einbeittum flamencodansinum. Það eru engar ýkjur að segja að konur þær sem fóru til að sjá goðið, þær runnu nánast fram af stól- um sínum í lokin. Slíkur er máttur unaðsfagurra sviðslista. Tónar sjóða blóð Stigið í vænginn Kristín Heiða khk@mbl.is Gatan mín M argrét Örnólfsdóttir, tónlistarkona og rithöfundur, hefur sl. fimm ár búið ásamt eiginmanni og fjórum börnum á Þinghólsbraut í Kópa- vogi. „Gatan er mjög löng. Ég bý í númer 80 og þegar við vorum að leita að húsinu í fyrsta skipti ætluðum við aldrei að komast út á enda.“ Mar- grét segir lítið hafa breyst í götunni síðustu árin og í raun hafi hverfið lítið breyst frá upphafi. „Reyndar fyrir tveimur árum voru miklar fram- kvæmdir við sum hús hérna, það voru BM Vallá- hersveitir fyrir utan ákveðin hús þar sem var verið að endurnýja allt en það hefur róast aftur. Núna nýtur fólk þess sem það hefur, Innlit/útlit- tíminn er liðinn.“ En hvað heillaði Margréti við götuna í upphafi? „Það fyrsta sem heillaði mig var þegar við vorum að keyra hér og leita að húsinu, þá voru krakkar úti að leika sér í götuleikjum og það var einhver nostalgía sem kviknaði hjá mér. Þetta er rosalega rólegt hverfi, næstum eins og að búa í litlum bæ úti á landi. Maður fer t.d. upp á bensínstöð að kaupa mjólk og það er lítil umferð. Ég bý rétt fyrir ofan höfnina svo það er hægt að ganga beint niður á bryggju, þannig að það er smá sveitafílingur og þorpsstemning.“ Hún segir gallann hins vegar þann að gatan sé ekki í göngufæri við búðir svo íbúarnir séu háðir því að vera á bíl. Hins vegar er afar gott að ala upp börn í göt- unni. „Það hefur reynst mér mjög vel. Það eru margir krakkar hérna, hér er góður leikskóli og skóli, stutt niður í fjöru og í höfnina svo börnin eru sátt við þetta.“ Morgunblaðið/Heiddi Götuleikir og þorpsstemning Brátt er á enda alþjóðlegt stjörnufræðiár sem minnst hef- ur verið með ýmsum hætti hér heima og erlendis. Væntanlega hefur það glætt áhuga manna á að skima út í geim, en til þess að stunda þá iðju þarf almenni- legar græjur eins og til að mynda Celestron FirstScope- sjónaukann sem hér er tekinn til kosta; opinber sjónauki stjörnufræðiársins. Strangt til tekið má vitanlega komast af með minni græjur til þess að rýna aðeins í stjörn- urnar, en þá fyrst átta menn sig á um hvað málið snýst þegar þeir horfa í alvörusjónauka – þá fyrst sér maður stjörnurnar al- mennilega. Celestron FirstScope- sjónaukinn er ekki mikill um sig 76 mm spegilsjónauki á svo- nefndu Dobson-stæði, stalli sem hægt er að snúa og eins stilla halla sjónaukans, en hon- um fylgja tvö augngler, 20 mm og 4 mm sem gefa 15x og 75x stækkun. Eitt af því sem gerir sjónaukann frábrugðinn mörg- um öðrum sem ég hef komist í tæri við hið minnsta er að hann er ekki á þrífæti. þetta er kost- ur því að hann er meðfærilegri (og ódýrari) fyrir vikið, en ókostur að því leyti að þá þarf maður að skaffa stöðuga und- irstöðu. Ég leysti það með því að fara með koll út á svalir við fyrstu tilraunir, en frekari prófanir voru gerðar með að- stoð áltröppu. Celestron FirstScope fæst á tilboði hjá www.sjonaukar.is og með fylgir pakki með leit- arsjónauka, augnglerjum, hug- búnaði og tunglsíu sem kom í góðar þarfir í vikunni. arnim@mbl.is Græjan Celestron FirstScope Fyrstu skrefin í stjörnuskoðun Celestron FirstScope er með- færilegur og handhægur sjónauki fyrir byrjendur og lengra komna.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.