SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Side 42

SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Side 42
42 29. nóvember 2009 T jáskipti í kynlífi eru afar mik- ilvæg. Pör einblína oft um of á tilteknar hreyfingar eða verknað þegar til stendur að bæta kyn- lífið en vanmeta hversu mikilvægt er að ræða um innileikann og nándina. Mik- ilvægt er að tala við makann og komast að því hvort maður sé sama sinnis og hann, læra um það sem kemur honum mest til og hvernig hann bregst við því. Kynlífið getur stórbatnað aðeins með því að nota raddböndin og munninn, og svo eitthvað meir … Tjáskipti í kynlífi eru afar mikilvægur hluti hvers sambands, jafnvel þótt það hafi varað árum eða áratugum saman og maður telji sig þekkja makann inn og út og vita fullkomlega hvað hann vill, hvað þarf til að örva hann og viðhalda ástríð- unni. Séu pör opinská um hvað þeim líkar og hvað ekki og hvað þau langar að prófa, þá geta þau orðið nánari og meðvitaðri í kynlífinu. Þetta er þó allt hægara sagt en gert, sérstaklega þegar kemur að því að tjá sig á skilvirkan máta. Hvort sem rætt er um hversu oft kynlíf er stundað, hvort á upptökin, erf- iðleika við að fá fullnægingu eða eitthvað sem þú eða makinn þinn vill prófa, þá þarf að fylgja eftir- töldum aðferðum til að efla kynlífið. Hreinskilni og ritskoðun. Þú þarft að tjá hugsanir þínar og tilfinningar á skýran og heiðarlegan máta. Reyndu þó aðeins að ritskoða þig og forðastu að tala um nei- kvæða hluti sem skipta ekki máli eða geta sært makann. Hlustaðu. Hlustaðu vandlega á makann þegar þið ræðið um kynlíf og ekki setja þig í varnarstellingar. Taktu eftir líkamstján- ingunni, svipbrigðum og hvernig makinn beitir röddinni og reyndu þannig að ráða þær duldu tilfinningar sem brjótast um með honum. Umorðaðu. Sýndu að þú hafir hlustað á makann með því að segja í þínum orðum hvað þér fannst hann vera að reyna að segja. Þannig er það alveg skýrt að þið skiljið bæði það sem um er rætt. Fáðu makann til að opna sig. Ekki spyrja spurninga sem aðeins er hægt að svara með já eða nei. Spurðu opinna spurninga sem bjóða upp á meiri umræð- ur, t.d.: Hvað langar þig að prófa? Gættu að framsetningunni. Gættu að því hvernig þú beitir röddinni, snertingu, líkamstjáningu og svipbrigðum í um- ræðum. Allir þessir hlutir hafa áhrif á hvernig þú kemur þínum skoðunum á framfæri. Leggðu áherslu á það jákvæða. Rann- sóknir sýna að við löðumst að þeim sem veita okkur jákvæða styrkingu (positive reinforcement upp á ensku) og að slíkt styrkir sambönd og gerir pör hamingju- samari. Þegar verið er að deila hugsunum og tilfinningum hvort með öðru ber að forðast að vera gagnrýninn og dóm- harður. Ef þú þarft að leiðrétta eitthvað skaltu gera það með uppbyggilegri gagn- rýni, þ.e. útskýra hvað þér líkar við það sem makinn var að segja, hvað megi betur fara og leggja fram tillögur um hvernig það megi verða. Hafa ber ofangreind atriði í huga þegar til stendur að ræða við makann um kyn- lífið. Mikilvægt er að velja góðan tíma þar sem hægt er að ræða málin í næði. Byrjaðu á því atriði sem auðveldast er að tala um og beindu samræðunum síðan að erfiðari og viðkvæmari málum. Þegar þið talið saman er mikilvægt að það liggi ljóst fyrir hvort umræðuefnið sé hvernig þið getið gert hvort öðru til hæfis eða að þið hafið áhyggjur af núverandi ástandi. Ein árangursrík aðferð, þegar kemur að því að deila löngunum og þrám með mak- anum, er að taka dæmi um það sem þið sækist eftir. Sum pör nota kynlífsbækur, klámblöð, ástarsögur eða klámmyndir til að sýna hvað þau vilja eða hvað kveikir í þeim. Slíkt getur hjálpað umtalsvert. Láttu langanir þínar í ljós Kynfræð- ingurinn Dr. Yvonne Kristín Fulbright kyn@mbl.is E ins og margir vita hefur Hið íslenzka reðasafn á Húsavík átt auknum vinsældum að fagna undanfarin ár. Það sem færri vita er að á safninu má sjá, eða ekki sjá, meint huldu- mannstyppi í krukku. Sigurjón Baldur Hafsteinsson, lektor í safnafræði við Háskóla Íslands, flutti um það fyrirlestur fyrir skömmu sem kallaðist Huldumanns- typpi og næmar konur. „Þegar ég fór á safnið sá ég ekki þetta typpi sem er í krukkunni. Aðrir sem ég þekki hafa ekki heldur séð það en Sigurður [Hjart- arson, eigandi og stofnandi safnsins] hefur hinsvegar sagt að eingöngu næmar konur sjái þetta typpi og samkvæmt viðtölum beri þeim konum, sem hafa séð typpið, öllum saman um stærð og lögun þess.“ Tengist menningararfi okkar Í fyrirlestrinum fjallaði Sigurjón um að þó mörgum þyki safnið skondið búi alvarlegri tónn að baki, safnið sé meira en brandari. Sýn Íslendinga á hinn efnislega hlut inni á söfnum hafi t.a.m. breyst á undanförnum árum. „Þá hefur þessi hlutur, huldumannstyppið, ákveðna tengingu við menningararf okkar. Við tölum um álfatrú og álfasögur sem hluta af okkar menning- ararfi. Þarna er Sigurður að gera sér mat úr því með því að tengja þetta tiltekna líffæri, sem er þarna til sýnis, við sögur t.d. af kynlífi við álfa, en samkvæmt sagnahefð okkar voru til konur sem lögðust með álf- um og eignuðust með þeim börn og sömuleiðis álfa- konur sem lögðust með jarðneskum mönnum.“ Ekki kynlífssafn Sigurjón segir að þegar Sigurður leiði gesti um safnið og segi þeim frá næmu konunum sé hann einnig að benda fólki á að þegar það fer á söfn setji það sig í menntandi stellingar, auki næmni sína, skerpi skiln- ingarvitin og þurfi að vera opið fyrir því sem safnið býður upp á. „Með því að fjalla um huldumannstyppi og næmar konur er hann að benda okkur á að hlutur gestsins inn á menningarstofnun eins og safni er mjög mikill í því að búa til það sem er inni á safninu. Merk- ingarmyndunin er ekki síst hjá gestunum sjálfum.“ Sigurjón segir að huldumannstyppið og hugmyndin um gestinn og næmi hans og hlutverk í að búa til merkingu sé ákveðin tilvísun í að margt á íslenskum söfnum hafi ekki verið kynjað. Ekki sé fjallað um gripi út frá því hvort karlar eða konur bjuggu þá til, af hverju og hvort kynið notaði þá frekar. „Huldu- mannstyppið kynjar gripina fyrir okkur og verður til- efni til að ræða um kynjapólitísk efni í tengslum við söfnun.“ Sigurjón fékk hugmyndina að fyrirlestrinum sl. vetur þegar hann gegndi stöðu forstöðumanns Menn- ingarmiðstöðvar Þingeyinga. Hann kynntist þá Sigurði og vaknaði mikill áhugi á safninu. „Það er áhugavert að fólk kemur í pílagrímsferðir frá útlöndum til að sjá þetta sérstæða safn. Það er mjög sérstakt því eins og Sigurður hefur sagt sjálfur þá er þetta ekki kynlífssafn. Til viðbótar fannst mér mjög áhugavert að safngestir hafa verið duglegir að senda honum hluti og benda honum á hluti. Vöxtur safnsins hefur verið í góðum tengslum við bæði Íslendinga og erlenda gesti.“ ylfa@mbl.is Huldu- manns- typpi fáum sýnilegt Reður og reðurminjar Hið Íslenzka reðasafn safnar, sýnir og fræðir gesti safnsins um reði af íslenskum spendýrum. Safnið var opnað í Reykjavík 23. ágúst 1997 í 60 fermetra bakhúsi við Laugaveg 24. Safninu var lokað í Reykjavík í byrjun apríl 2004 og það flutt til Húsavíkur, þar sem það var opnað 21. maí 2004. Stofnandi og eigandi safnsins er Sigurður Hjartarson sagnfræðingur, en hann hóf söfnun á reðum árið 1974 sem tómstundagaman þegar nokkrir félagar hans gáfu honum fjögur eintök af nautsreðum. Safnkostur og gestafjöldi hefur smám saman verið að aukast frá stofnun safnsins. Safnið á í dag um 300 eintök af reðum og reðurhlutum og er stærsta eintakið yfir 170 sentimetra langt eintak af búrhval. Reðirnir eru sýndir í krukkum fylltum af formalíni eða alkóhóli, uppstoppaðir á sigurskjöldum eða sýndir á myndum eða í sýningarskápum s.s. eins og reðurbein. Ekkert mannlegt eintak er á safninu fyrir utan forhúð og tvö eistu. Safnið á í dag fjögur fyrirheit frá innlendum og erlendum reðurgjöfum sem hafa ánafnað safninu sín eintök. Safn- ið safnar einnig því sem hægt er að kalla „reðurminjar“ (e. phallobilia) og er að finna í safninu mynd af umskurði Krists frá 18. öld og snuð í líki reðurs. Úr Huldumannstyppi og næmar konur eftir Sigurjón B. Hafsteinsson. Sigurjón B. Haf- steinsson segist ekki hafa séð huldumanns- typpið í krukkunni. Sérð þú huldumannstyppið? Mannlíf

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.