SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Side 47
29. nóvember 2009 47
LÁRÉTT
1. Á herra einn fyrir verkun? (5)
3. Að morgni missa dásamlegir mal. (7)
7. Fim fer úr loftstreymi út því sem erfitt. (8)
8. Stök feit kona er þrjósk. (7)
9. Happapeningar sem þarf að greiða til baka. (7)
10. Nafn á nýju fangelsi fyrir sérstaklega mikla
glæpamenn eða staðurinn þar sem það rís? (10)
11. Hrútleiðinleg er á förum. (6)
12. Víð teikning er alltaf í þremur víddum. (7)
13. Þýskur bær sem endaði í Hafnarfirði. (9)
15. Svört fær afl í talíu. (10)
19. Berja tvisvar með fimleikaáhaldi. (6)
21. Orðskýringar á dylgjum. (6)
23. Ráðvandur og án þess vera að með diskó-
hljómsveit að því að sagt er. (8)
26. Heyra af Tý með afrek og þau tafsöm. (8)
27. Fimmtíu bræddar í tón. (8)
28. Risnir ná einhvern veginn að gera atlögur. (8)
30. Við Helsingfors ná öngvar inn að kórmeðlimnum.
(13)
31. Enn æstir hjá eftirfarandi. (5)
32. Eitt hægindi við glugga. (9)
LÓÐRÉTT
1. Það hefur frést að Bára hefur fengið einhvers
konar sendingu. (9)
2. Frek nær að naga díl. (6)
3. Tímabil fer ofan út af hávaða. (7)
4. Enginn bolli fyrir Jón Pál. (6,3)
5. Stig rengd af þaninni. (7)
6. Sinnir erindum fyrir þær sem eru boðnar. (8)
8. Næri ástleitni fyrir matreiddan (7)
9. Flott er í happdrætti. (7)
14. Veiðidýr kýs mjög fallega. (7)
16. Gull gast einn ná í líkamshluta. (10)
17. Bera út með hljóðfæri. (6)
18. Sjávardýr kemur að jórturdýri og þau geta af sér
skeldýr. (8)
19. Tonn og króna á ný kaupa afl. (10)
20. Þola og vera rétt. (8)
22. Píla snýst við þegar hún kemur að góðum mat og
stingst í það sem finnst í tölvum. (6)
24. Mark með engan efa er skotfimur (8)
25. Fugl sem seldur hefur verið mansali? (8)
29. Fífl hvernig sem á þá er litið. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn kross-
gátunnar. Senda skal þátttökuseðilinn
með nafni og heimilisfangi ásamt úr-
lausninni í umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 29. nóvember rennur út
næsta föstudag. Nafn vinningshafans
birtist laugardaginn 5. desember. Hepp-
inn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgát-
unnar 21. nóvember sl. er Jón Guðmundsson. Hann hlýtur
í verðlaun bókina Reisubók Guðríðar Símonardóttur eftir
Steinunni Jóhannesdóttur. Mál og menning gefur út.
Krossgátuverðlaun
NORSKA undrið Magnús Carls-
son sem verður 19 ára gamall á
mánudaginn sló tvær flugur í
einu höggi á minningarmótinu
um Mikhael Tal sem lauk í
Moskvu í síðustu viku. Í fyrsta
lagi komst hann upp fyrir Búlg-
arann Topalov í efsta sætið á
stigalista FIDE og í öðru lagi sigr-
aði hann með glæsibrag á heims-
meistaramótinu í hraðskák sem á
eftir fylgdi.
Þegar aðeins tvær umferðir af
aðalmótinu voru eftir hafði Magn-
ús gert jafntefli í öllum skákum
sínum en á lokasprettinum reif
hann sig upp og lagði Ponomariov
og síðan Peter Leko. Samkvæmt
óbirtum stigalista FIDE munar þó
ekki miklu á efstu mönnum: 1.
Magnús Carlsen 2.805,7 2. Ven-
selin Topalov 2.805,1
Hvað varðar efsta sætið á
minningarmótinu kom enda-
sprettur Magnúsar of seint;
Vladimir Kramnik, sem eins og
Magnús átti við veikindi að
stríða á meðan á mótinu stóð,
hafði þá unnið þrjár skákir og
stóð að lokum einn uppi sem
sigurvegari. Í mótslok lét hann
þess getið að hann væri staðráð-
inn í að endurheimta heims-
meistaratitilinn.
Lokaniðurstaðan varð þessi:
1. Vladimir Kramnik 6 v. 2.-3.
Magnús Carlsen og Vasilí
Ivantstjúk 5½ v. 4.-5. Levon Ar-
onjan og Wisvanthan Anand 5 v.
6. Boris Gelfand 4½ v. 7. Ruslan
Ponomariov 4 v. 8. Peter Svidler
3½ v. 9.-10. Peter Leko og Alex-
ander Morozevich 3 v.
Sigurskák Magnúsar við
Ponomariov fylgir hér á eftir. Í
ensku árásinni kemur nýr
„snúningur“ í 11. leik, De1 og
eins og svo oft áður snýst taflið
um það hvort svartur nái að
koma skipulagi á liðsafla sinn.
Oft þarf ekki nema einn óná-
kvæman leik og 16. … Dc5 virð-
ist ekki svara kröfum stöðunnar.
Magnús gerir sig reiðubúinn til
að fórna á e6 með 17. Db3! og
fyrsta sprengjan fellur í 19. leik.
Það er svo 29. leikur hvíts sem
endanlega gerir út um taflið.
Gott dæmi um alhliða stíl Norð-
mannsins sem nýtur sín ekki
síður í rólegri stöðubaráttu:
Magnús Carlsen – Ruslan
Ponomariov
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. f3
b5 8. Dd2 Rbd7 9. g4 h6 10. 0-
0-0 Re5 11. De1 Dc7 12. h4 b4 13.
Rce2 Rc4 14. Rf4 Rxe3 15. Dxe3
Db6 16. Bc4 Dc5 17. Db3 d5 18.
exd5 Bd6 19. Rfxe6 fxe6 20. dxe6
Be7 21. Dd3 0-0 22. Bb3 Hd8 23.
g5 Rh7 24. gxh6 Dh5 25. De4
Dxh6+ 26. Kb1 Ha7 27. Rf5
Hxd1+ 28. Hxd1 Df6
29. Hd7 Bxd7 30. exd7+ Kf8 31.
Dd5
– og svartur gafst upp.
Heimsmeistaramótið í hrað-
skák sem fram fór strax á eftir dró
til sín 22 skákmenn sem tefldu
tvöfalda umferð. Mótið stóð í tvo
daga. Framan af var Anand í far-
arbroddi en Magnús seig fram úr á
lokasprettinum og vann glæsi-
legan sigur hlaut 31 vinning af 42
mögulegum sem er nálega 75%
vinningshlutfall. Hann var með 10
vinninga af 10 mögulegum á þá
fimm skákmenn sem komu næst-
ir á töflunni:
1. Magnús Carlsen 31 v. (af 42) 2.
Anand 28 v. 3. Karjakin 25 v. 4.
Kramnik 24½ v. 5. Grichukm 24
v. 6.-7. Svidler og Ponomariov
23½ v.
Tímafyrirkomulagið var 3 2 eða
þrjár mínútur á alla skákina og
síðan tvær sekúndur til viðbótar á
hvern leik. Þetta er sennilega of
stíft því alltof mörgum skákum
lauk með því að annar féll allt í
einu á tíma í óljósri stöðu. Grein-
arhöfundur renndi yfir flestar
skákir sigurvegarans en hægt var
að fylgjast með mótinu í beinni
útsendingu á ýmsum vefsíðum.
Óhætt er að fullyrða að hand-
bragðið hafi verið gott. En hjá
honum og öðrum sem þátt tóku
vantar dálítið upp á þá töfra sem
einkenndu Tal. Að lokum:
Í síðasta pistli var sú ágæta kona
Guðrún sögð Jónsdóttir en er
Sigurjónsdóttir og er beðist vel-
virðingar á því.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Carlsen heimsmeistari í
hraðskák og stigahæstur
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang