SunnudagsMogginn - 29.11.2009, Síða 52
52 29. nóvember 2009
E
itt mesta hrós sem hægt er að
skenkja rithöfundi er að segja
hann vera frábæran stílista. En
ef sama höfundi er sagt þetta
oft þá kemur að því að hann fyllist óör-
yggi og fer að verja fyrir sig fyrir hrós-
inu með orðunum: „Ég er ekki bara stíl-
isti.“
Þessi vörn rithöfundarins stafar vita-
skuld af því að honum finnst að með því
að vera stimplaður sem stílisti sé um
leið verið að hafa af honum þann heiður
að vera sögumaður. Og rithöfundar vilja
langflestir segja sögur.
Vel stíluð saga veitir yndi og fær
mann til að lesa áfram í næstum leiðslu-
kenndu ástandi. Stílistarnir fanga les-
andann. Það eru þeir sem fá hann til að
líta upp úr bókinni segja upphátt: „Mik-
ið óskaplega er þetta góð bók!“ Og góð
bók eftir afburða stílista getur varla ver-
ið of löng.
Þegar kemur að skorti á góðum stíl
hvarflar hug-
urinn óneit-
anlega til
barna- og
unglinga-
sagnahöfunda
og glæpa-
sagnahöfunda.
Á þessum
bæjum er
furðu lítið lagt
upp úr stíl.
Almennt – og
nú er verið að
tala almennt –
einkennast ís-
lenskar barna-
bækur af eins
konar sam-
ræmdum stíl,
talmálslegum og hversdagslegum. Þar
koma alltof sjaldan fyrir setningar sem
hægt er að dást að. Ungur aldur lesenda
ætti ekki að vera afsökun höfunda fyrir
að dekra ekki við stílinn. Góður stíll á
alls staðar við. Höfundarnir eru hins
vegar uppteknir af söguefninu og stíll
verður útundan. Það er engu líkara en
þeim finnist að það sé ekki þeirra hlut-
verk að sýna tilþrif í stíl. Hið sama á
sannarlega við um spennusagnahöfunda.
Íslenskir spennusagnahöfundar hafa
fæstir áhuga á stíl. Í huga þeirra er
morðið í forgrunni og líf spæjarans, sem
er yfirleitt markað af alls kyns veseni.
Það er of mikil flatneskja í íslenskum
spennusögum, tafskenndar endurtekn-
ingar og óvandað málfar. Sjálfsagt telja
höfundarnir sig með þessu vera að end-
urspegla nútímaraunveruleika. Þeir vilja
ekki dútla við eitthvert textafínerí.
Ef rithöfundar vilja að bækur þeirri
lifi og séu einhvers virði verða þeir að
huga að stílnum. En kannski er þeim
mörgum alveg sama um ódauðleikann.
Hvar
eru stíl-
istarnir?
Orðanna
hljóðan
Kolbrún Bergþórs-
dóttir
kolbrun@mbl.is
Almennt –
og nú er
verið að tala
almennt –
einkennast ís-
lenskar barna-
bækur af eins
konar samræmd-
um stíl, talmáls-
legum og hvers-
dagslegum. Þar
koma alltof sjald-
an fyrir setningar
sem hægt er að
dást að.
M
innisvarðinn um Stephan G.
Stephansson rís hátt yfir
Skagafirði, á Arnarstapa, og
margir staldra þar við.
Stephan G. fæddist á kotbýli í Skagafirði
árið 1853. Fjölskyldan bjó síðar á öðru koti
nærri þeim stað þar sem minnisvarðinn
stendur, og Stephan lést í Alberta í Kanada
árið 1927, tæplega 74 ára gamall.
Stephans G. er minnst sem „Kletta-
fjallaskáldsins“, enda ól hann sinn full-
orðinsaldur sem fátækur bóndi í Banda-
ríkjunum og Kanada, bóndi sem eyddi
frístundum í skriftir og skapaði merkileg
verk á íslenskri tungu, fjarri fósturjörð-
inni. „Mun ýkjulaust, að einginn ein-
stakur höfundur hafi auðgað túngu vora í
svipuðum mæli sem hann,“ skrifaði Hall-
dór Laxness í minningargrein.
Stephan G. kom í heimsókn til Íslands
árið 1917 og var hylltur hvar sem hann
kom. Eins og oft gerist með verk lista-
manna, þá fennir í sporin og vissulega
hefur það verið raunin með Kletta-
fjallaskáldið, þótt margir þekki hans
þekktustu kvæði, á borð við Úr Íslend-
ingadagsræðu: „Þó þú langförull legðir /
sérhvert land undir fót …“
Fyrir nokkrum árum ritaði Viðar
Hreinsson vandaða ævisögu Stephans og
má segja að þá hafi verk hans komist aftur
í umræðuna. Nú hefur Skólavefurinn gefið
út athyglisvert og afar aðgengilegt verk,
„Hlývindi – Ljóð og laust mál eftir Steph-
an G. Stephansson“. Baldur Hafstað ritar
inngang og rýnir í texta eftir skáldið, bæði
í ljóð og laust mál, og skýrir hvað verið er
að fara.
„Vinur aftansólar sértu“
Í bókinni Hlývindi
rýnir Baldur Hafstað í
ljóð og laust mál eftir
skáldið Stephan G.
Stephansson.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Sem dæmi má nefna vísuna Hug og
hjarta frá árinu 1901:
Láttu hug þinn aldrei
eldast eða hjartað –
vinur aftansólar sértu,
sonur morgunroðans vertu.
Í athugasemdum segir Baldur meðal
annars: „Á þessa vísu mætti líta sem ein-
kunnarorð Stephans G. Þetta er ákall eða
hvatning: menn haldi vöku sinni og rækti
vináttu og frændsemi. Náttúran er per-
sónugerð – og morgunn og kvöld renna
saman við æsku og elli …“
Í „Hlývindi“ eru birt ljóð og prósa-
textar, og að auki drög að sjálfsævisögu.
Verkið er vel til þess fallið að kynna skrif
skáldsins fyrir nýjum lesendum, og af-
staða skáldsins til lífs og listar er útskýrð.
Eins og kemur fram var Stephan oft um-
deildur. Hann tók afstöðu til málefna
samtíma síns, deildi til að mynda á strísð-
rekstur – og hlaut bágt fyrir. En þessi
maður þekkti lífið, þekkti basl hins fá-
tæka, en „lét baslið ekki smækka sig“,
eins og hann segir. Stephan var ekki sáttur
við allar stéttir, prestar og við blaðamenn
beittu til að mynda ekki alltaf frumlegri
hugsun að hans mati. Sú skoðun hans
birtist í smáprósanum Sjöundi dagurinn:
Á sex dögum skapaði Guð himin
og jörð. Hann fann upp eitthvað
nýtt hvern þann dag. Sjöunda
daginn hvíldist hann. Eða, sama
sem – hann skapaði þá bergmálið,
prestana og ritstjórana.
Stephan G. Steph-
ansson sat við
skriftir hvenær
sem færi gafst.
Bækur
Allar bækur
1. (1.) Brauð– og kökubók
Hagkaups – Jóhannes
Felixson / Hagkaup
2. (2.) Svörtuloft – Arnaldur
Indriðason / Vaka–
Helgafell
3. (–) Loftkastalinn sem hrundi
– Stieg Larsson / Bjartur
4. (–) Vigdís – kona verður for-
seti – Páll Valsson / JPV
5. (8.) Karlsvagninn – Kristín
Marja Baldursdóttir / Mál
og menning
6. (–) Ef væri ég söngvari –
Ragnheiður Gestsdóttir /
Mál og menning
7. (–) Stórskemmtilega stelpu-
bókin / A.J. Buchanan & M.
Peskowitz / Vaka–Helgafell
8. (–) Núll núll 9 – Þorgrímur
Þráinsson / Mál og menning
9. (–) Skúli Skelfir og jólin –
Francesca Simon / JPV
10. (5.) Snorri – Ævisaga –
Óskar Guðmundsson / JPV
Ævisögur, handbækur
og almennt efni
1. (1.) Brauð– og kökubók
Hagkaups – Jóhannes Fel-
ixson / Hagkaup
2. (–) Vigdís – kona verður for-
seti – Páll Valsson / JPV
3. (4.) Snorri – Ævisaga –
Óskar Guðmundsson / JPV
4. (–) Heimsmetabók Guin-
ness 2010 / Vaka–
Helgafell
5. (–) Útkall við Látrabjarg –
Óttar Sveinsson / Útkall
6. (–) Matur og drykkur – Helga
Sigurðardóttir / Opna
7. (–) Landsliðsréttir Hag-
kaups –Landslið mat-
reiðslumeistara /Hagkaup
8. (7.) Hjartsláttur – Hjálmar
Jónsson /Veröld
9. (5.) Prjónadagar 2010 –
Kristín Harðardóttir/
Tölvusýsl
10. (–) Veisla – Matreiðslubók
Nóatúns / Nóatún
Barna– og
unglingabækur
1. (1.) Ef væri ég söngvari –
Ragnheiður Gestsdóttir /
Mál og menning
2. (–) Stórskemmtilega stelpu-
bókin / A.J. Buchanan & M.
Peskowitz / Vaka–Helgafell
3. (7.) núll núll 9 – Þorgrímur
Þráinsson / Mál og menning
4. (2.) Skúli Skelfir og jólin –
F. Simon / JPV útgáfa
5. (3.) Skúli skelfir og hræðilegi
snjókarlinn – F. Simon / JPV
6. (6.) Jólasveinarnir 13 – B.
Pilkington / Mál og menning
7. (4.) Lubbi finnur málbein –
Eyrún Ísfold Gíslad. og Þóra
Másd. / Mál og menning
8. (10.) Nýtt tungl – Stephenie
Meyer / Mál og menning
9. (–) Spurningabókin 2009 /
Bókaútgáfan Hólar
10. (–) Prinsessan á Bessa-
stöðum – Gerður Kristný /
Mál og menning
Íslensk og þýdd
skáldverk
1. (1.) Svörtuloft – Arnaldur
Indriðason / Vaka–Helgafell
2. (–) Loftkastalinn sem hrundi
– S. Larsson / Bjartur
3. (2.) Karlsvagninn – Kristín
Marja Baldursdóttir / Mál
og menning
4. (5.) Hyldýpi – Stefán Máni /
JPV
5. (–) Stúlkan sem lék sér að
eldinum – S.Larsson /
Bjartur
6. (3.) Enn er morgunn –
Böðvar Guðmundsson /
Uppheimar
7. (4.) Sex grunaðir – Vikas
Swarup / JPV
8. (–) Harmur englanna – Jón
Kalman Stefánsson / Bjartur
9. (–) Karlar sem hata konur –
S. Larsson / Bjartur
10. (10.) Berlínaraspirnar –
Anne B. Ragde / Mál og
menning
Metsölulisti Morgunblaðsins
Listinn byggist á upplýsingum frá Bókabúð Máls og menningar Laugavegi, Bókaversluninni Iðu í Lækjargötu, Hagkaupum Eiðistorgi, Kringlunni, Skeifunni, Holtagörðum, Spönginni, Smaára-
torgi, Garðabæ, Njarðvík, Borgarnesi og Akureyri, Nettó Mjódd, Salavegi, Grindavík, Akureyri og Höfn, Strax Hófgerði, Búarkóri, Flúðum, Akranesi og Búðardal, Úrval Hafnarfirði, Selfossi,
Njarðvík, Borgarnesi, Ísafirði, Blönduósi, Dalvík og Akureyri, Krónunni Akranesi, Árbæ, Bíldshöfða, Breiðholti, Granda, Hvaleyrarbraut, Lindum, Mosfellsbæ, Reyðarfirði, Reykjavíkurvegi,
Selfossi og Vestmannaeyjum, Nótaúni Austurveri, Grafarholti, Hamraborg, hringbraut og Nóatúni.