Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1960, Síða 11

Skólablaðið - 01.04.1960, Síða 11
131 - mánuði, að tungl var fullt og norðurljós sindruðu á himni. Ég var andvaka, og gat eigi sofnað vegna breims í köttum tveim. Ég opnaði því gluggann, tók Skólablaðið í hönd og las upphátt, svoað vel heyrðist út. Mig langaði svo sannar- lega til að vita, hvort kettir hefðu nokk- urn bókmenntasmekk : "Ný strýkur ekki sumarsól sýldan hliðarvangann", las ég og lagði sérstaka áherzlu á orðið hliðarvangi. Toku þá kattaskammirnar að hvæsa og láta öllum illum látum. "NÚ hlymur loft af hrafnaklið, sem húka upp við skáinn", las ég áfram. Varð breimið þá hærra en nokkru sinni fyrr. Kattaskömmunum hefur bersýnilega ekki verið neitt um hrafna gefið. "En brátt mun koma betri tíð", las ég enn. Litu þá kattaskammirnar upp í gluggann til mín, hristu hausinn og tóku á rás. Ég komst að því seinna, að þetta hefðu verið afkomendur katta Steins Steinars. í>að var því engin furða, þótt þeir hefðu næman bókmenntasmekk. Menntaskólinn í Reykjavík á því láni að fagna að geta skartað tveimur ágætum hugsjonamönnum, sem báðir rita í síð- asta blað. Það eru þeir Þorsteinn Gylfa- son og Ólafur R. Grímsson. Slxkir dýrgripir meðal manna eru fágætir. Vakið, vakið því hrund og halur og gætið þess, að þeir verði eigi fyrir háði og spotti, þvíað ritað er : "Vormenn íslands yðar bíða, eyðiflákar - heiðalönd". Reykjavík, hinxi 13.marz 1960. Sverrir Tómasson. EATfNA í IV.-B Ottó : morior - mortuus sum - mori nescor ....... Jón Ingv. : Afsakið, kennari, en hvað þýddi þessi setning ? PUID NOVI, frh. af bls. 129. ÞAÐ ER RANGT : að saga hafi birzt í Skólablaðinu, sem hafi heitið "Ég varð yxna". Sverrir á hér líklega við söguna "Hann stangaði mig" (þetta er ákaflega at- hyglisvert misminni frá sjónarhóli sálfræð- ings). Sagan sú var paródía, sem ætlað var að gera gys að hinum væmnu ástalífssögum, sem eru að gera alla vitlausa. Tel ég sög- una eitt af því bezta, sem birzt hefur í blaðinu, enda sá hinn ágæti ábyrgðarmaður þegar hvar fiskur lá undir steini og leyfði hana. Reyndar frétti ég, að Sverrir ætti sér sálu- félaga á kennarastofunni, sem skildi ekki skopstælinguna, en hélt að þetta væri ástar- saga, fulldjörf á köflum. Leiðréttist þetta hér með. Menn sjá, að ég hef aðeins leiðrétt það, sem reiði ungi maðurinn fer rangt með. Ég hef ekki reynt að rífa grein hans niður með rökum. Þá skemmtun eftirlæt ég les- endum. Að lokum þakka ég Sverri ágæta ádrepu, en ráðlegg honum að vanda betur málflutn- ing næst. MÁL_ER _AÐ _LINNL Þetta er síðasta tölublaðið, sem ég gef út og er því harðla glaður. Eins og menn sjá, eru blöðin fimm í vetur, en voru sex í fyrra. Ekki munar nema 20 blaðsíðum á árgöngunum, en þó hefði mátt standa sig betur. Þess ber að geta, að sökum hinnar ágætu verðbólgu hefðu fjármunir blaðsins ekki hrokkið fyrir sjötta blaðinu, og erum við því löglega afsakaðir. Aðstaða til fjölritunar batnar sífellt. Fyrir skemmstu bárust Fjölritunarstofu Daníels Halldórssonar ný tæki. Með þeim er hægt að yfirfæra hvers konar fyrirmynd á prentspjald og opnast með þeim ótal nýjar leiðir til skreyting- ar Skólablaðsins. Gerlegt er nú að af- mynda stóra fyrirmynd, minnka hana (eða stækka) eftir vild fyrir fjölritun. Forsíða þessa tölublaðs er svo gerð. Er það spá mín, að þessi nýju tæki eigi eftir að gera byltingu á útliti blaðsins. Ég bíð Einar Má Jonsson velkominn til hins vanþakkláta og erilsama starfa, sem, þótt undarlegt megi virðast, er heillandi og umfram allt ákaflega þroskandi. þrái ég.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.