Morgunblaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009
✝ Gréta Stef-ánsdóttir fædd-
ist 20.3. 1941 á Ak-
ureyri. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
2. desember sl. For-
eldrar hennar voru
Jóhanna Sigurð-
ardóttir, húsmóðir,
f. á Svalbarðseyri á
Svalbarðsströnd
27.5. 1904, d. 22.3.
1985 og Stefán
Ágúst Magnússon,
verkamaður, f. í
Skálavík 12.8. 1899, d.13.8. 1985.
Systkini Grétu eru: 1) Björg Sig-
urlín Stefánsdóttir Hansen, f.
1931, gift Bent Brink Hansen, f.
1937, d. 1985. 2) Herborg Stef-
ánsdóttir, f. 1933, gift Guðmanni
J. Valberg, f. 1936. 3) Magnús Jó-
Þau: 1) Bergþóru Pálsdóttur, f.
28.6. 1962, á hún 2 börn – Björn
Pál og Grétar Þór. 2) Sigurður
Pálsson, f. 12.10. 1965, er giftur
Hólmfríði Sveinmarsdóttur, eiga
þau 3 börn saman, þá Pál Hólm,
Svavar og Sindra, Sigurður átti
fyrir Hafdísi og Hólmfríður átti
fyrir Sveinmar.
Gréta lauk prófum úr barna-
skóla Akureyrar. Gréta hóf störf í
verksmiðjunum á Akureyri fljót-
lega eftir fermingu og kynntist
þar eiginmanni sínum Páli. Einnig
starfaði Gréta hjá Útgerðarfélagi
Akureyrar en lengst starfaði hún
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri en hætti þar vegna baráttu
við veikindi 2001. Gréta byrjaði
sem ung kona í kvennadeild slysa-
varnafélagsins á Akureyri og hef-
ur verið mjög virk alveg þar til
hún kvaddi þennan heim.
Gréta verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju í dag, föstudag-
inn 11. desember, og hefst athöfn-
in kl. 13.30.
hannes Stefánsson, f.
1936, giftur Guð-
björgu Reynisdóttur,
f. 1942. 4) Sigurður
Stefánsson, f. 1944,
giftur Ingu Mörtu
Ingimundardóttur, f.
1943.
Eftirlifandi eig-
inmaður Grétu er
Páll Hólm Gíslason,
f. á Siglufirði 29.12.
1940, þau kvæntust
12.6. 1960. Foreldrar
hans voru Gísli Gísla-
son starfsmaður við
Laxárvirkjun í Aðaldal, f. í Skaga-
fjarðarsýslu 20.7. 1917, d. 13.3.
1985, og Bergþóra Bryndís Jóa-
kimsdóttir, húsfreyja við Lax-
árvirkjun í Aðaldal, f. á Siglufirði
30.6. 1920, d. 28.10. 1973.
Páll og Gréta eignuðust 2 börn
Elsku mamma mín, þá er komið að
kveðjustund í bili hjá okkur. Þegar ég
hugsa til baka frá því að ég var barn
og til fullorðinsára þá eru minning-
arnar ljúfar og umhyggju þinni fyrir
okkur Sigga bróður varla hægt að
lýsa með orðum. Mikið voru barna-
börnin þín heppin að eiga þig að og
mikið eiga þau eftir að sakna þín eins
og við hin, það er svo margt sem ég
gæti sagt en ætla að eiga fyrir mig.
Ég veit að þú hefur fengið góðar mót-
tökur á nýjum stað.
Elsku mamma mín, hvíldu í friði,
þín verður sárt saknað.
Vil ég þakka starfsfólki heima-
hlynningar á Akureyri fyrir allt og
starfsfólki lyfjadeildar Fsa fyrir kær-
leika og umhyggju sem þau sýndu
henni og bið guð að blessa starf
þeirra.
Hafðu þökk fyrir allt, elsku
mamma mín.
Þín dóttir,
Bergþóra (Bebba).
Elsku amma mín og vinkona, ég
sakna þín svo mikið að ég trúi ekki
enn að þú sért farin. Allar þær ynd-
islegu stundir sem við áttum saman
frá því ég fæddist eru ógleymanlegar.
Ég man þegar þú og afi fóruð með
mér í Hlíðarfjall og voruð að kenna
mér á skíði þegar ég var lítill og svo
þegar ég og þú sátum saman inni í
sjónvarpsherbergi og horfðum á
Strandverði á meðan þú klóraðir mér
á bakinu.
Karamellukakan sem þú gerðir
alltaf var svo góð enda var hún í
helstu afmælisveislum innan fjöl-
skyldunnar og þegar ég kom í heim-
sókn og fékk ristað brauð með marm-
elaðinu sem þú gerðir og er það besta
marmelaði sem ég hef smakkað.
Ég man vel eftir því þegar ég kom
og heimsótti þig í vinnuna á sjúkra-
húsið en ekki grunaði mig að ég
myndi síðan kveðja þig þaðan úr þess-
um heimi þegar veikindin voru orðin
óviðráðanleg en þau tóku þig frá mér
alltof snemma. Þegar ég flutti frá Ak-
ureyri var ég hræddur um að sam-
bandið milli okkar mundi minnka en
við hittumst oft og töluðum nánast á
hverjum degi saman í síma sem var
gott enda forréttindi að eiga ömmu
eins og þig.
Núna ertu komin á æðri stað og
vonandi líður þér vel, ég veit að þú
vakir yfir mér en ég mun hitta þig aft-
ur og ég mun aldrei gleyma því sem
þú sagðir við mig síðustu sólarhring-
ana sem þú áttir eftir, þú varst mjög
mikil baráttukona og barðist lengi við
veikindin af krafti og sýndir mikinn
styrk.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með
þér,
– hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
(Halldór K. Laxnes.)
Þú ert mín hetja og ég mun varð-
veita okkar stundir sem við áttum
saman í hjarta mínu alla ævi.
Þitt barnabarn og vinur,
Björn Páll Valsson.
Elsku besta Gréta. Ég trúi því
varla að þessi tími sé kominn, að ég
þurfi að kveðja þig og hugsa til þess
með kökk í hálsinum og tár í augun-
um að ég eigi aldrei eftir að sjá þig
aftur. Þó svo að ég viti að þú sért kom-
in á góðan stað þar sem amma og afi
og Magga frænka taka á móti þér þá
er jafnframt stórt skarð komið í fjöl-
skylduna sem verður erfitt og sárt að
fylla. Þú varst ótrúleg báráttukona
sem aldrei gafst upp þrátt fyrir
margra ára sjúkrasögu. Alltaf barð-
istu hetjulega og lést aldrei bilbug á
þér finna. Þannig gera aðeins sannar
hetjur, og það, elsku Gréta, varst þú
svo sannarlega.
Þórunnarstrætið hjá ykkur Palla
var alltaf staður sem gott var að koma
á og alltaf var maður leystur út með
kaffi, kökum og góðu knúsi. Það
mætti í raun segja að í Þórunnar-
strætinu hafi mitt líf byrjað því þar
var ég eftir að ég fæddist, hjá mömmu
og pabba og ykkur Palla. Alltaf var
órjúfanlegur þáttur að koma við hjá
ykkur þegar Akureyri var heimsótt.
Þegar ég sit og skrifa þetta þá fer ég
að hugsa um öll þessi litlu atriði sem
virðast ekki skipta miklu en gera það
svo eins og t.d bara það að fá ekki
hringingu frá þér þegar ég átti af-
mæli og að horfa á inniskóna sem þú
notaðir þegar þú varst í Skólagerðinu,
að geta ekki „skammað“ þig fyrir að
klippa allt of mikið af nöglunum á þér
og naglaböndum. Ég er strax farin að
sakna þín. Þinn tími átti ekki að vera
komin, þú áttir eftir að gera svo miklu
miklu meira. Mamma á eftir að sakna
sinnar bestu vinkonu og systur og það
verður skrítið að sjá þig ekki í Skóla-
gerðinu á tveggja mánaða fresti. Ég
veit að núna ertu loksins verkja- og
veikindalaus og þér líður vel og amma
örugglega búin að gefa þér eitthvað
gott að borða. Elsku Gréta – takk fyr-
ir að vera í lífinu mínu, ég er ríkari
fyrir vikið og heppin að hafa fengið að
fylgjast með og taka þátt í þínu.
Elsku besta fjölskylda – Palli, Bebba
og fjölskylda, Siggi og Hólmfríður og
börn, mamma, Björg, Maggi, Siggi og
ykkar fjölskyldur, mínar dýpstu sam-
úðarkveðjur til ykkar. Nú er mikil-
vægt að standa saman sem stór og
góð fjölskylda og halda utan um hvert
annað.
Elsku hjartans Gréta frænka – þín
verður sárt saknað.
Þín,
Berglind.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ég kveð hér kæra vinkonu, sem
hefur nú kvatt þennan heim
eftir erfið veikindi sem hún tókst á
við með miklu æðruleysi.
Elsku Palli og fjölskylda, innilegar
samúðarkveðjur.
Sveinbjörg.
Gréta Stefánsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku besta amma mín.
Þá er komið að kveðjustund.
Ég trúi því ekki að þú sért farin
frá okkur, ég sem kom svo oft
til þín og afa, alltaf komst þú
með snakk og gafst mér og svo
margt annað. Ég veit að afi
saknar þín svo mikið. Við skul-
um passa afa fyrir þig. Elsku
amma mín, hvíldu í friði, ég
hefði ekki getað eignast betri
ömmu.
Þinn,
Grétar Þór.
✝
GEORG HERMANNSSON
frá Ysta-Mói,
Fljótum,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar föstudaginn
4. desember.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
12. desember kl. 13.00.
Jarðsett verður í Barðskirkjugarði sama dag.
Systkini og aðrir aðstandendur.
✝
Fyrrverandi eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁSGEIR SÆMUNDSSON
frá Selparti,
andaðist á Fossheimum, Selfossi, laugar-
daginn 5. desember.
Útförin fer fram frá Villingaholtskirkju laugardaginn
12. desember kl. 11.00.
Magnea Sigurbergsdóttir,
Guðbrandur Gíslason,
Anna Lísa Andersen,
Sæmundur Ásgeirsson,
Ólína Ásgeirsdóttir, Alexander Hafþórsson,
Bragi Ásgeirsson, Petra Nicola Deatrich,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi,
ÓLAFUR HELGI RUNÓLFSSON,
Austurbrún 6,
áður Fjólugötu 11,
Vestmannaeyjum
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss-
vogi mánudaginn 7.desember.
Útförin fer fram frá Áskirkju, fimmtudaginn
17. desember kl.13.00.
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Petra Ólafsdóttir, Jóhannes Kristinsson,
Ester Ólafsdóttir, Einar Bjarnason,
Birgir Ólafsson, Helga Jónsdóttir,
Stefán Runólfsson, Helga Víglundsdóttir,
Erling Þór Pálsson, Jóna Björk Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVANHILDUR HERVARSDÓTTIR,
Sólheimum 23,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 8. desember.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
18. desember kl. 13.
Auðunn Snæbjörnsson,
Ása Ásgeirsdóttir, Guðvarður Halldórsson,
Kristín Ásgeirsdóttir, Viðar Þórisson,
Aðalsteinn Auðunsson,
Engilbjört Auðunsdóttir, Ólafur Teitur Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra,
ÞÓREY SIGURÐARDÓTTIR,
frá Skúfsstöðum,
Möðruvallastræti 1,
Akureyri,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð
mánudaginn 30. nóvember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju 14. desember
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Sumarbúðirnar Hólavatni, sími 588 8899 og
Kristniboðssambandið, sími 533-4900.
Inga, Anna, Sveinn og Bragi Ingólfsbörn,
Þórleifur Haraldsson,
Þorvaldur, Björg og Anna Sigurðarbörn
og fjölskyldur.
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
✝
Elskulega móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ÁGÚSTA ÓSKARSDÓTTIR,
Ásavegi 2g,
Vestmannaeyjum,
lést þriðjudaginn 8. desember á heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja.
Jarðarför auglýst síðar.
Jóhanna Hjálmarsdóttir, Sigurjón Þór Guðjónsson,
Viðar Hjálmarsson, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir,
Hjálmar, Guðrún Ágústa, Bjarni Ólafur,
Guðjón Orri og Franz.