Morgunblaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009 holar@simnet.is Glæsilegt tveggja binda verk eftir Smára Geirsson. Fjallað er um þéttbýlið og dreifbýlið við Norðfjörð; þróun byggðar á svæðinu, atvinnusöguna og margs konar félagsmálastarfsemi. Um 400 ljósmyndir prýða bækurnar, auk korta og uppdrátta.  Norðfjarðar saga     frá 1895 t il 1929      Norðfjarðarsaga    frá 1895 til 1929 Norðfjarðarsaga II tímabilið 1895-1929 „Þessar bækur eru algjör fjársjóður.“ Stefán Þorleifsson fyrrv. sjúkrahúsráðsmaður „Hér er svo mikil vitneskja sett fram á aðgengilegan og skemmtilegan hátt að maður vill helst lesa meira.“ Jakob Jakobsson fiskifræðingur Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is HALLI á rekstri lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu á þessu ári mun væntanlega nema 30-60 milljónum. Hallinn gæti því jafngilt kostnaði lög- reglu vegna mótmælanna í fyrravetur en hann nam um 50 milljónum og fékkst hann ekki bættur með sérstakri aukafjárveitingu, líkt og óskað var eftir. Á næsta ári er embættinu gert að skera nið- ur um 220 milljónir sem jafngildir um 6,4% sparn- aði. Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri fjár- mála- og þjónustudeildar lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu, segir að gripið hafi verið til marg- víslegra hagræðingaraðgerða og hann telur ekki að sparnaðurinn komi niður á löggæslu. Skipulaginu hafi verið umbylt. Búið sé að færa löggæslu í auknum mæli út í borgarhverfin, loka tveimur lögreglustöðvum en stækka þær sem fyr- ir eru. Þá hafi vaktakerfinu verið breytt en það spari um 130-150 milljónir. „Með sameiginlegu átaki okkar og lögreglumanna tókst okkur að fjölga lögreglumönnum á götunni,“ segir hann. Meðal þeirra aðgerða sem gripið var til var að loka lögreglustöðinni á Seltjarnarnesi og í Breiðholti en Halldór segir að hverfislöggæsla þar hafi engu að síður verið efld. Þá sé í skoðun að taka á leigu húsnæði í vesturhluta Reykjavíkur undir nýja lög- reglustöð. Spari 220 milljónir 2010  Halli hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu jafngildir kostnaði við mótmælin  Fjármálastjóri segir að lögreglumönnum hafi fjölgað á götunni þrátt fyrir sparnað Morgunblaðið/Júlíus Dýrt Kostnaður lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu vegna mótmælanna var 50 milljónir. ÁLFHEIÐUR Ingadóttir hefur verið harðlega gagnrýnd í tengslum við mótmælin í fyrravetur. Stein- grímur J. Sigfússon, fjármálaráð- herra og formaður VG, segir að Álf- heiður svari sjálf þessari gagnrýni og færi rök fyrir sínum skoðunum. „Ég var ekki á vettvangi en ég veit að hún er sammála mér um að allar svona aðgerðir eigi að vera frið- samlegar og lögmætar.“ Rétturinn til mótmæla væri sömuleiðis mik- ilvægur. Ragna Árnadóttir dóms- málaráðherra vildi ekki tjá sig um hugsanlegar athafnir Álfheiðar enda hefði hún ekki verið á staðnum. Álfheiður svarar sjálf Ragna Árnadóttir Steingrímur J. Sigfússon Eftir Ágúst Inga Jónsson og Sigurð Boga Sævarsson „VIÐ höfum séð smá ræping af stórri kynþroska loðnu hér við landið norðanvert, það er frá Langaneskanti og vestur á Kolbeinseyjarhrygg. Hins vegar er þetta ekki mikið og ef við finnum ekki meira er ekkert útlit fyrir vetrarvertíð. Hins vegar höfum við sjaldnast fundið mik- ið af kynþroska loðnu á þessum tíma svo við megum ekki draga of miklar ályktanir,“ segir Sveinn Sveinbjörnsson fiskifræðingur og leiðangursstjóri á rannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni. Vonir hafa verið bundnar við árganginn 2008, en ekki er á vísan að róa með afkomu seiða, að sögn Sveins. Enn er vonast til að sjá talsvert af ársgamalli loðnu í leiðangr- inum, en eftir er að fara yfir svæðið þar sem hennar er helst að vænta. Sú loðna gæti komið inn í veiðina eftir eitt ár. „Við sáum reyndar smávegis af ársgamalli loðnu syðst á grænlenska landgrunninu þar sem við fórum yfir áður en við hrökkluðumst í burtu vegna veðurs. Það litla sem við fundum í fyrra var á svæði vestar en við erum núna búnir að leita á. Þá höfum við lítið séð af ársgamalli loðnu sem gæti verið uppistaðan í veiðinni árið 2011,“ segir Sveinn. Aðspurður hvort leiðangurinn skili jólagjöfum til þeirra sem hafa lifibrauð af loðnuveiðum og -vinnslu, vill Sveinn ekki gera mikið úr því. „Ég er hvorki bjartsýnn né svartsýnn, en til þessa hefur enginn kraftur verið í þessu.“ Kynþroska við Kolbeinsey  Urðu varir við loðnu út af Langanesi  Vestursvæðið eftir Morgunblaðið/Þorkell Árni Friðriksson Eftir er að rannsaka svæðið úti fyrir Vestfjörðum og vestanverðu Norðurlandi, en búist er við að loðnuleiðangrinum ljúki á þriðjudag. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höf- uðborgarsvæðinu, segir að lögreglan sé betur nú undir það búin að takast á við mótmæli og óeirðir eins og urðu í fyrra- vetur. Fjöldi lögreglumanna sé svipaður og lögregla hafi nú öðlast mikla reynslu til að takast á við svona atburði. Að- ferðafræði lögreglu miðaðist við að skapa ekki verri aðstæður en verið var að leysa úr. Stefán segir að aðgerðirnar í heild hafi tekist afar vel og betur en gera hefði mátt ráð fyrir. Nauðsynlegt hefði verið að forgangs- raða. „Því miður fór ýmislegt fram hjá okkur. Við náðum til dæmis ekki þeim sem köstuðu gangstéttarhellu í höfuð lögreglu- manns þessa nótt [aðfaranótt 22. janúar, innsk. blm.] þrátt fyrir mikla rannsókn.“ Reynslunni ríkari Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is „VIÐ þurfum að auka áhrif kvenna í samfélaginu og þá á ég ekki bara við í stjórnmálum,“ sagði Hanna Birna Kristinsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, á opn- um fundi Mannréttindaráðs Reykjavíkur í gær. Samfélagið verði einfaldlega ekki jafn gott, hvað þá lausnirnar eða niðurstöð- urnar án fullrar þátttöku kvenna. „Það er oft staldrað við stjórnmálin í þessu samhengi, en staðan er þó mun verri í atvinnu- lífinu,“ sagði Hanna Birna. Visst jafnvægi hefði náðst í stjórn- málum, í borgarstjórn væri kynja- hlutfall nú t.d. sanngjarnt og á Al- þingi væru þingkonur ekki minna virkar en karlkyns kollegar þeirra. Þessu væri hins vegar ekki að heilsa í atvinnulífinu. Að hennar mati hefði tækifæri til að breyta leikreglunum líka gefist í kjölfar hrunsins. „Ég held að konur eigi að grípa tækifærið sem nú gefst og breyta leikregl- unum, spyrja nýrra spurninga og fara nýjar leiðir,“ sagði hún. Þætti ólíðandi í pólitík Samfélagið hefði í langan tíma mótast af því að þar hefðu karlar verið ráðandi og vissulega hefði margt gott gerst, en þörf væri á auknu jafnvægi. Sú leið sveigjan- leika og samstarfs sem hentaði vel í dag, væri líka að hennar mati leið sem konur færu vel með. „Þess vegna finnst mér sorglegt að hugsa til þess að ekki nema 20% stofnenda fyrirtækja á Ís- landi eru konur og 18% stjórnenda fyrirtækja. Í 70% stjórna fyr- irtækja sitja líka einungis karlar og aðeins 8% forstjóra fyrirtækja eru konur. Í pólitík í dag þætti þetta ólíðandi og þessar tölur eru auðvitað eitthvað sem verður að breyta.“ Morgunblaðið/Árni Sæbærg Vakandi Meðal þeirra skoðana sem fram komu var að konur þyrftu að vera á verði og gæta að sínum hlut. Konur geta breytt núverandi leikreglum „Í þeim löndum þar sem húsverk- unum er hvað jafnast skipt er jafn- réttisbaráttan hvað lengst komin.“ DR. STEFANÍA ÓSKARSDÓTTIR „Það er halli í fjölmiðlaumræðu er kemur að kyni, málefnum og stjórnmálaflokkum.“ VIGDÍS HAUKSDÓTTIR Það er mikilvægt að missa ekki sjónar á jafnréttisumræðunni.“ GUÐRÚN ÖGMUNDSDÓTTIR Samstaða kvenna getur virkað mjög vel og auðveldað konum að fá karla til liðs við sig.“ ANNA ÓLAFSDÓTTIR BJÖRNSSON Það þarf að breyta því hversu sjaldan rætt er við konur í „alvöru“ fréttum.“ ÁSTA ÓLAFSDÓTTIR Atvinnulífið hefur skuldbundið sig til átaks í þessum efnum [kynja- hallanum]. SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR Þarf að passa stöðuna ÞAÐ er áhugavert að skoða kynja- hlutfall í hafnarstjórn Faxaflóahafna og stjórn Orkuveitu Reykjavíkur á kjörtímabilinu. Upplýsingar er að finna í úttekt Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur á kynjaskiptingu í ráð- um og stjórnum borgarinnar. Á tíma- bili fyrsta meirihluta kjörtímabilsins er engin kona meðal aðalmanna í stjórn fyrirtækjanna. Í tíð annars meirihlutans voru 40% aðalmanna í stjórn Faxaflóahafna konur og 20% í stjórn OR. Hjá báðum fyrirtækjum nær þátttaka kvenna hámarki á tíma- bili þriðja meirihlutans – 60%. Í dag eru 40% aðalmanna í stjórn OR konur en 20% í hafnarstjórn. Kynjahlut- föllin sveiflast Kynjahlutfall í stjórnum Faxaflóahafna og OR Faxaflóahafnir 1. meirihluti 4. meirihluti Orkuveita Reykjavíkur 1. meirihluti 4. meirihluti 100% KARLAR 80% KARLAR 20% KONUR 100% KARLAR 60% KARLAR 40% KONUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.