Morgunblaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 31
Elsku pabbi minn, bara nokkur
kveðjuorð.
Mig langar að segja þér hvað ég
er þakklát fyrir þessi fáu ár sem við
fengum saman.
Þið foreldrar mínir slituð sam-
vistum þegar ég var rúmlega 4 ára
og varð samband okkar stopult eftir
það. En svona er nú lífið stundum.
Eftir margra ára veru erlendis
fluttumst við hjónin heim aftur til
Íslands og lágu leiðir okkar saman
á ný. Við áttum margar góðar
stundir saman, elsku pabbi minn.
Eru mér sérstaklega kærar stund-
irnar þegar við sátum yfir kaffibolla
og þú sagðir mér frá bernsku þinni
og uppvaxtarárum. Þessi ár voru
ekki alltaf svo auðveld fyrir þig.
Ég komst fljótt að því að þú varst
góður vinur vina þinna. Ávallt
reiðubúinn að leggja öðrum lið sem
á þurftu að halda.
Tónlistin var líf þitt og yndi og
varst þú hrókur alls fagnaðar hvar
sem þú komst, enda munnharpan
aldrei langt undan. Annað áhuga-
mál átti stóran þátt í lífi þínu, en
það var fótboltinn.
Margar sögurnar sagðir þú okkur
hjónum frá því þegar þú og bróðir
þinn Skarphéðinn fóruð að horfa á
fótboltaleiki t.d. upp á Akranes og
víðar.
Það var gott að fá að kynnast
þér, pabbi minn, heyra hlýju orðin
þín og njóta umhyggju þinnar.
Stundirnar með þér eru mér ómet-
anlegar.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
✝ Einar Magnússonvar fæddur á Ísa-
firði 4. júlí 1924.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Grund
1. desember síðastlið-
inn.
Einar var sonur
hjónanna Magnúsar
Guðmundssonar, f.
16.9. 1869 í Kaldbak,
Kaldrananeshreppi,
Strandasýslu, d. 3.1.
1959, og Karítasar
Skarphéðinsdóttur, f.
20.1. 1890 í Æðey,
Snæfjallahreppi, N-Ís., d. 29.12.
1972.
Hálfsystkini Einars voru 6:
Sophus, f. 19.10. 1893, d. 6.10.
1986, Þorvaldur, f. 19.8. 1895, d.
12.1. 1976, Óskar, f. 31.12. 1896, d.
24.1. 1930, Hildur, f. 24.3. 1900, d.
27.11. 1997, Kristveig, f. 4.4. 1903,
d. 13.1. 1904 og Júlíana, f. 14.5.
1904, d. 7.9. 1904.
Systkini Einars voru 10: Svan-
berg, f. 9.1. 1909, d. 25.4. 1974,
Petrína, f. 5.10. 1910, d. 14.10.
1943, Þorsteinn, f. 13.4. 1913, d.
12.3. 1941, Aðalheiður, f. 3.10.
1915, d. 2.8. 1979, Guðmundur, f.
3.7. 1917, d. 5.7. 1917,
Anna, f. 3.7. 1917, d.
5.7. 1917, Halldóra, f.
24.6. 1918, d. 5.6.
1931, Skarphéðinn, f.
16.2. 1921, d. 26.7.
1984, Pálína, f. 25.6.
1926.
Einar kvæntist
2.10. 1954. Johönnu
Jörgensen, f. 10.5.
1931, d. 3.6. 1975.
(skildu). Þau eign-
uðust tvær dætur 1)
Petrína, f. 26.5. 1956,
gift Herði Kolbeins-
syni. Börn þeirra eru Dýrleif og Jó-
hann.
2) Stúlka, f. í júní 1957, dó frum-
vaxta. Með Margréti Owen, f. 26.5.
1946, eignaðist Einar eina dóttur 3)
Elísabet, f. 1.8. 1962. Börn hennar
eru Ask og Tinna. Með Elínu Krist-
mundsdóttur, f. 13.4. 1923, eign-
aðist Einar einn son 4) Skarphéð-
inn, f. 4.3. 1948. Börn hans eru
Hannesína, Svanur, Kristmundur
og Elín.
Útför Einars fer fram frá Fella-
og Hólakirkju í dag, föstudaginn
11. desember 2009, og hefst athöfn-
in kl. 13.
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hvíl í friði, elsku pabbi minn.
Petrína Einarsdóttir
(Peta).
Einar bróðir endaði líf sitt hér á
jörðu 85 ára gamall. Hann var glað-
ur þegar ég fæddist sagði mamma
mér. Þegar hann var 4 ára datt
honum í hug að fara með litlu syst-
ur sína til mömmu inni í Tungu á
Ísafirði, þar sem hún vann við að
mjólka kýr. Við áttum heima á
„Bökkum“ og hlýtur þá að hafa tek-
ið allt að klukkustund að ganga
þessa leið. Hann sagði við mig: „Við
skulum fara til mömmu,“ og skildi
ég vel.
Við vorum að sjálfsögðu send til
baka. Heiða systir sem átti að
passa okkur var ásamt öðrum að
leita um allt.
Ég man eftir á vetrum þegar
hann var með mig á dragsleða og lá
ég þá á maganum og svo sitjandi í
kassa með framglugga á kassanum
en enga rúðu í. Margs er að minn-
ast á þessum árum okkar Ninna
(eins og ég kallaði hann þá). Eitt
sumar vorum við í síldarvinnu á
Siglufirði, þá 13 og 15 ára gömul.
Það var þá sem hann gat keypt sér
munnhörpu og byrjað að spila í frí-
stundum fyrir fólk. Móðir okkar
var með okkur, hún var vön að fara
í síld á sumrin. Á seinni árum eftir
að hann byrjaði að vinna í Granda
höfðum við mikið samband. Einatt
var það á góðum grundvelli. Gátum
við hjálpað hvort öðru, ekki síst síð-
ustu árin. Nú er ég ein eftir af 16
systkinum.
Einar söng með Gerðuberg-
skórnum í mörg ár. Þar fékk hann
góðan félagsskap, var í Vinaband-
inu þar sem hann spilaði á munn-
hörpuna. Þá var hann ánægðastur.
Í mörg ár eftir að hann fékk blóð-
tappa í heilann hefur dóttir hans
Petrína hugsað frábærlega vel um
pabba sinn og á ég henni mikið að
þakka. Hún og maður hennar,
Hörður, bjuggu lengi í Svíþjóð, en
eftir að þau komu heim hafa þau
bæði hjálpað honum af einstakri
natni. Höfðu hann á jólum, fóru
með hann í bíltúra o.fl. Þau studdu
við bakið á mér í bókstaflegri
merkingu, þau snertu hann til síð-
asta andartaks.
Hafið þökk fyrir, Guð blessi ykk-
ur og börn ykkar. Ég votta ykkur
samúð mína.
Guð geymi elsku bróður minn.
Pálína Magnúsdóttir
(Palla).
Einar Magnússon HINSTA KVEÐJA
Hinsta kveðja til afa.
Fel þú, Guð, í faðminn þinn,
fúslega hann afa minn.
Ljáðu honum ljósið bjarta,
lofaðu hann af öllu hjarta.
Leggðu yfir hann blessun þína,
berðu honum kveðju mína.
(L.E.K.)
Hvíldu í friði, elsku afi.
Dýrleif og Jóhann.
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009
Valgerður Guðmundsdóttir
Hansen
✝ ValgerðurGuðmunds-
dóttir Hansen
fæddist í Svíra í
Hörgárdal 3. júní
1911. Hún and-
aðist í New Jersey
í Bandaríkjunum
28. nóvember sl.
Foreldrar hennar
voru Unnur Guðmundsdóttir frá Þúfna-
völlum, f. 5. júlí 1887, d. 22. apríl 1963,
og Guðmundur Benediktsson frá Svíra,
f. 3. október 1885, d. 13. ágúst 1919.
Systkini Valgerðar voru: Guðmundur, f.
1. október 1909, d. 18. mars 1935, Álf-
hildur, f. 1. september 1913, d. 5. janúar
1997, Steingrímur, f. 11. júlí 1916, d. 1.
janúar 1987, og Guðmundur, f. 18. sept-
ember 1919, d. 30. apríl 1998.
Valla, eins og hún var jafnan kölluð,
giftist Eigil Hansen frá Esbjerg í Dan-
mörku. Hann andaðist háaldraður í júní
sl. Börn þeirra eru: 1) Eigil Hansen, f. 8.
ágúst 1946, sonur hans er Taylor Han-
sen. 2) Ingrid Hansen, f. 17. desember
1947, ekkja eftir Tom Dombrowski.
Valla fluttist tveggja ára með fjöl-
skyldu sinni að Ásláksstöðum í Hörg-
árdal og ólst þar upp. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1930. Valla fluttist til Reykja-
víkur á fjórða áratugnum og starfaði
m.a. í Hressingarskálanum við Austur-
stræti og versluninni Evu. Í janúar 1946
fluttust Valla og Eigil vestur til Banda-
ríkjanna og settust að í Bordentown,
litlum bæ í New Jersey, þar sem þau
bjuggu til æviloka. Eigil starfaði við
húsamálun en Valla sinnti húsmóð-
urstörfum og vann um tíma á veitinga-
húsi.
Útför Völlu var gerð frá Bordentown
Home for Funerals, föstudaginn 4. des-
ember 2009.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
Finnur Kristinsson
Höfundur: Kristín Stef-
ánsdóttir
Guðrún Öfjörð
Sigfúsdóttir
Höfundar: Lára, Guðrún Erla,
Þóra Björk, Haraldur og fjöl-
skyldur
Sigvaldi Egill
Jónsson
Höfundur: Ósk G.
Meira: mbl.is/minningar
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTBJÖRG GUÐBRANDSDÓTTIR,
Gilstúni 26,
Sauðárkróki,
sem lést á Sjúkrahúsi Skagfirðinga fimmtudaginn
3. desember, verður jarðsungin frá Sauðárkróks-
kirkju laugardaginn 12. desember kl. 11.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnunina
Sauðárkróki.
Magnús Heiðar Sigurjónsson,
Guðbrandur Magnússon, Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir,
Sigurjón Magnússon, Guðrún Bjarney Leifsdóttir,
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Elskuleg eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
KATRÍN KÁRADÓTTIR,
ljósmyndari,
Boðahlein 5,
Garðabæ,
sem lést á Landsspítala Fossvogi þriðjudaginn
1. desember, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni
í Reykjavík, mánudaginn 14. desember kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Gigtarfélag Íslands.
Eiríkur Svavar Eiríksson,
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, Dirk Lubker,
Steinunn Eiríksdóttir, Þorsteinn Lárusson,
Þóra Eiríksdóttir, Ómar Guðjónsson,
og barnabörn.
✝
Í dag, 11. desember 2009, á 90 ára ártíð, þökkum
við innilega fyrir samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐRÚNAR ÖFJÖRÐ SIGFÚSDÓTTUR,
Nesvegi 62,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund fyrir alúð og góða
umönnun.
Lára Erlingsdóttir,
Sigfús Öfjörð Erlingsson, Guðbjörg Gunnarsdóttir,
Auðbjörg Erlingsdóttir, Halldór B. Kristjánsson,
Inga Erlingsdóttir, Grétar Vilmundarson,
Erlingur Erlingsson, Harpa Ólafsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar tengdamóðir amma lang-
amma og systir,
HLÍF ÞÓRBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Grund,
áður Unnarbraut 28
Seltjarnarnesi,
andaðist þriðjudaginn 8. desember.
Minningarathöfn verður í Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn
15. desember kl. 15.00.
Útfararathöfn verður frá Heydalakirkju Breiðdal laugardaginn
19. desember kl 11.00.
Jarðsett verður í heimagrafreit á Þorvaldsstöðum.
Sigurjón Jónsson, Helga Ágústína Lúðvíksdóttir,
Guðný Elín Jónsdóttir, Reynir Loftsson,
barnabörn barnabarnabarn og systkini.
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag
Minningar á mbl.is