Morgunblaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009
BJARNI Ármannsson hefur gert
samkomulag við slitastjórn og skila-
nefnd Glitnis, um að hann greiði til
baka yfirverð sem Glitnir borgaði
honum fyrir hlutabréf í bankanum,
alls 650 milljónir króna. Áður hafði
Bjarni endurgreitt 370 milljónir
króna. Alls hefur hann því greitt til
baka allt yfirverð vegna starfsloka-
samnings síns við bankann árið
2007, eða 1.020 milljónir króna.
Í kröfuhafaskrá Glitnis, sem birt
var kröfuhöfum í gær og Morg-
unblaðið hefur undir höndum, er
krafa upp á 3,9 milljarða frá Land-
sýn ehf., félagi Bjarna. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins hafði
verið gengið frá kröfunni áður en
listinn var birtur og hefði hún því
ekki átt að birtast þar. Að auki segir
í fréttatilkynningu skilanefndar að
Bjarni falli frá öðrum kröfum félaga
sinna á hendur bankanum, alls upp á
273 milljónir króna.
Því hefur Bjarni gefið eftir rúm-
lega fjögurra milljarða kröfu á
hendur bankanum, auk þess að
greiða honum rúman milljarð. Sam-
tals nemur því eftirgjöf Bjarna rúm-
um fimm milljörðum króna. Bjarni
vildi í samtali við blaðið ekki tjá sig
um málið að öðru leyti en því að
hann væri sáttur við málalok.
ivarpall@mbl.is
Bjarni Ár-
mannsson
gefur eftir
5 milljarða
SEX dagar liðu frá því að Nýja
Kaupþing, nú Arion banki, tók yfir
rekstur 1998 ehf. og skipaði nýja
stjórn þar til
aftur voru
gerðar breyt-
ingar á stjórn
félagsins og
Jóhannes Jónsson kom inn í hana.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fyrirtækjaskrá leysti Arion til sín
allt hlutafé í 1998 ehf, móðurfélagi
Haga, og skipaði þrjá starfsmenn
sína í stjórn félagsins og leysti þar
með þáverandi stjórn af. Í stað
þeirra Ingibjargar Pálmadóttur,
Kristínar Jóhannesdóttur og
Hreins Loftssonar komu Sigurjón
Pálsson, Regin Mogensen og Signý
Sif Sigurðardóttir. Sex dögum síð-
ar, þann 26. október, var ný til-
kynning send til Fyrirtækjaskrár
þar sem greint var frá því að Signý
væri gengin úr stjórn 1998 ehf. og í
stað hennar kæmi Jóhannes Jóns-
son, oft kenndur við Bónus.
Frá þeim degi hófust svo við-
ræður um fjárhagslega endur-
skipulagningu á félaginu og þann
22. nóvember síðastliðinn barst Ar-
ion tilboð frá Jóhannesi Jónssyni,
stjórnendum Haga og ótilgreindum
erlendum fjárfestum. Hefur bank-
inn tekið sér frest fram í miðjan
janúar næstkomandi til að taka af-
stöðu til tilboðsins.
Sex daga
stjórnarseta
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
EINS og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær nemur kostnaðurinn
við rekstur þrotabús Landsbankans
frá október í fyrra fram til sept-
ember í ár um 11,5 milljörðum
króna. Stærsti kostnaðarliðurinn er
aðkeyptur lögfræði- og sérfræði-
kostnaður en hann nemur um 4,5
milljarða króna. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins fellur hann
að mestu til vegna þjónustu sem er
fengin á Bretlandseyjum.
Að sögn Páls Benediktssonar,
upplýsingafulltrúa skilanefndar
Landsbankans, er mestur hluti
kostnaðarins tilkominn vegna þjón-
ustu lögfræðistofunnar Morrison &
Foerster og ráðgjöf frá breska fjár-
málafyrirtækinu Barclays. Enn-
fremur nefnir Páll að endurskoð-
endafyrirtækið Deloitte hafi verið
fengið til þess að taka út og votta þá
vinnu sem er að baki verðmati á
eignasafni bankans, en það fer fram
á sex til átta vikna fresti.
Að sögn Páls hefur skilanefndin
leitað til ofangreindra fyrirtækja, og
fleiri, ekki síst að ósk kröfuhafa sem
vilja tryggja að unnið sé að fag-
mennsku að því að hámarka virði
eigna bankans og hagsmunir þeirra
séu varðir.
Kröfu FME hafnað
Eins og fram kom í blaðinu í gær
hefur Fjármálaeftirilitið þurft að
leggja út um 130 milljónir vegna
starfa skilanefndarinnar. FME lýsti
kröfu í þrotabúið vegna útgjaldanna
en þeirri kröfu hefur verið hafnað
og að öllu óbreyttu mun hún því
lenda á ríkissjóði. Annar rekstrar-
kostnaður mun því falla á sjálfan
bankann verði ekki gerður um hann
ágreiningur. Samkvæmt upplýsing-
um blaðsins er hann jafnt og þétt
greiddur af eignum þrotabúsins og
mun því á endanum leiða til rýrn-
unar á þeim sem koma til skipta
kröfuhafa og er íslenska ríkið þar
með talið.
Há ráðgjafarútgjöld skilanefndar
Reuters
Kostnaður Stærsti hluti kostnaðar
bankans fellur til í Bretlandi.
Mesti kostnaður
er vegna tveggja
fyrirtækja
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Það er minna mál að skipta um
banka en þú heldur.
Hafðu samband í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · www.mp.is
Netgreiðsluþjónusta
Gjaldeyrisreikningar
Sparnaðarreikningar
Yfirdráttur
Debetkort
Launareikningur
Kreditkort
Netbanki
Já, við bjóðum upp
á vildarþjónustu.
Fyrir alla okkar viðskiptavini.
Súsanna Antonsdóttir, viðskiptastjóri
F
í
t
o
n
/
S
Í
A