Morgunblaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 38
38 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009 TÓNLEIKAR sem haldnir voru í Kaupmannahöfn á mánudagskvöld í tengslum við alþjóðlegu loftslags- ráðstefnuna breyttust í martröð sem margir Danir vildu helst gleyma. Ákveðið var að halda tónleikana, sem nefndir voru Dance 4 Climate Change, í Parken, og gert ráð fyrir um 15-20 þúsund gestum. Auglýstir flytjendur voru m.a. Angelique Kidjo, Akon, Youssou N’Dour, hljómsveitin Europe og Danseor- kesteret og miðar auglýstir til sölu á 300-800 danskar krónur (7.400- 19.600 ísl.). En áhuginn var enginn og miðar seldust mjög illa. Þrem dögum fyrir tónleika buðu tónleikahaldararnir miða á 75 kr. eða innan við tvö þús- und, en það gekk ekki heldur og gerði þá fáu sem búnir voru að kaupa miða dýrum dómum ösku- reiða. Daginn fyrir tónleika boðaði senegalska hip-hop stjarnan Akon forföll. Málið var ekki síst vand- ræðalegt vegna þess að tónleikana átti að senda beint til annarra landa, til um 40 milljón áhorfenda, og vegna þess að skipuleggjendum hafði verið boðið að halda tónleikana endurgjaldslaust á Ráðhústorginu. „Gapandi tóm“ sagði Politiken, en aðeins um 1.500 manns mættu á tón- leikana í Parken. Gapandi tóm Loftslagstónleikar í Kaupmannahöfn Parken Fámenni á tónleikum. BÍÓMIÐASALA í Bandaríkjum nær nýjum hæð- um fyrir árslok, en allar líkur benda nú til þess að ársvelta miða- sölu fari í fyrsta sinn yfir 10 millj- arða dala, eða andvirði um 1.250 milljarða króna á einu ári. Með því verður slegið met frá árinu 2007, þegar salan nam um 9,6 milljörðum dala Þótt ekki séu nema þrjár vikur eftir af árinu á enn eftir að frumsýna stórmyndir sem víst þykir að muni hala inn fúlgur; þar á meðal er myndin Sherlock Holmes með Ro- bert Downey Junior, Avatar og mynd nr. 2 um Alvin og íkornana. Miðasölumet Robert Downey LISTASAFN Íslands býður gestum að skyggnast á bak við tjöldin á morgun kl. 14. Ólafur Ingi Jónsson forvörður safns- ins fræðir gesti um falsanir og fjallar um þær í tengslum við það sem kennt hefur verið við „stóra málverkafölsunarmál- ið“. Enn fremur kynnir rithöf- undurinn og gagnrýnandinn Ragna Sigurðardóttir bók sína Hið fullkomna landslag sem fjallar um íslenskan listheim og þá atburðarás sem fer af stað þegar falsað verk ratar inn á gólf í virtu safni. Nú stendur yfir sýning á verkum Svavars Guðnasonar í safninu og mun Ólafur Ingi skoða höfundarverk Svavars í þessu samhengi. Myndlist Þekkir þú falsanir frá frumgerð? Ólafur Ingi Jónsson Á AÐVENTUTÓNLEIKUM Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói í kvöld kl. 19.30 hljómar hátíðleg jólatónlist frá ýmsum tímum í flutningi Ingi- bjargar Guðjónsdóttur og Gissurar Páls Gissurarsonar. Bach, Handel, Corelli, Mozart, Adolphe Adam og Sigvaldi Kaldalóns eiga allir sinn skerf á jólalegri efnisskránni. Ævin- týrið um snjókarlinn verður leikið og Páll Óskar mun bæði segja söguna og syngja. Tveir ungir og efnilegir fiðluleikarar leika þátt úr konserti fyrir tvær fiðlur eftir Bach og síð- an sér Graduale-kórinn um að koma öllum í rétt skap með jólalögum! Tónlist Páll Óskar og Snjó- kallinn hjá Sinfó Páll Óskar NAFN tónlistar- og ráðstefnu- hússins opinberað í dag, en því verður gefið nafn við hátíðlega athöfn á hafnarbakkanum, Austurbakka við húsið kl. 15.30. Efnt var til samkeppni um nafn á húsið í febrúar í fyrra og létu viðbrögð ekki á sér standa. Nú er komið að því að kynna hvaða nafn varð fyrir valinu. Af því tilefni mun Stór- sveit Samma, Samúels Samú- elssonar básúnuleikara spila og í tilefni nafngjaf- arinnar verður boðið upp á, kakó og kleinur á hafnarbakkanum, Austurbakka, frá kl. 15.30- 16.30. Allir eru hjartanlega velkomnir, en gengið er inn á svæðið frá Geirsgötu. Tónlist Tónlistarhúsinu gefið nafn í dag Tónlistarhúsið við Austurbakka. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „DEYÐU snögglega hjón úr Gríms- eyju með því móti, að maðurinn datt dauður niður úti, og kona hans í sama stað daginn eftir.“ Svo er frá sagt í Djáknaannálum 1779. Líklegt er að fátt annað tíðinda vert hafi gerst í lífi þeirra hjóna en sviplegur og samtaka dauðinn. Í bókinni Ísland í aldanna rás, sem nú er komin út, skrifar Bjarki Bjarnason bókmenntafræðingur um 18. öldina, þar sem hann fléttar sam- an eigin skrif og aðrar heimildir. Á þeim tíma var hvorki dagblöðum né tímaritum til að dreifa, hvað þá ljós- myndum og auðvelt að ímynda sér að öflun heimilda fyrir svo stóra bók hafi reynst stórmál. „Heimildanna þarf að leita alls staðar, bæði í fræðiritum og víðar,“ segir Bjarki. „Annálarnir svokölluðu eru samtímaheimildir og sama má segja um Alþingisbækur Íslands sem hafa verið gefnar út. Annálarnir eru gullkista. Þeir eru auðvitað skrifaðir með þess tíma formerkjum og maður þarf að lesa þá með gagn- rýnu hugarfari.“ Annálaritun í tísku á öldinni Það voru helst menntamenn og prestar sem skráðu annála, að sögn Bjarka, sýslumenn og einstaka góð- bóndi. „Þetta var í tísku á 18. öldinni. Eftir aldamótin 1800 datt þetta úr tísku, enda komu þá til sögunnar annars konar fjölmiðlar eins og t.d. Skírnir. Flestir rituðu annálana af fræðilegum áhuga á því að skrá hlut- ina, árferðið og helstu tíðindi. Í bókinni hef ég fasta dálka, bæði „Úr annálum“ og „Frá Öxarár- þingi“, með textum úr annálunum og alþingisbókunum. Alþingisbæk- urnar eru oft svolítið skýrslu- kenndar; lýstu til dæmis yfir- heyrslum, en þar var líka lýst eftir sakafólki. Öldin er svotil myndalaus, en lýsingar á sakafólki eru mjög myndrænar. Þar er sagt hvort fólk sé bólugrafið, hvaða kæki það hefur og hvað það kann til verka. Þar eru t.d. tvær lýsingar á Fjalla-Eyvindi, þar sem verið er að lýsa eftir honum. Lýsingarnar eru svipaðar; í þeirri fyrri segir að hann sé farinn að reykja, en í hinni, alllöngu síðar, er sagt að hann reyki mikið.“ Bjarki fór yfir ógrynni af heimild- um við vinnslu bókarinnar, enda hef- ur verkið tekið tvö ár. Hann líkir vali á efni bókarinnar við vinnu blaða- manns sem velur efni til umfjöllunar og hafnar eftir því hversu bitastætt það er og áhugavert. Skúbb frá 18. öld En hvaða sýn telur höfundurinn að almenningur fái á 18. öldina við lestur bókarinnar og er það ef til vill önnur sýn sem sú sem fékkst af lestri skólabóka? „Textinn ber í sér að miklu leyti sjónarhorn alþýðufólks. Þegar við lesum Íslandssöguna lesum við um Skúla fógeta, Magnús Stephensen og hvað margir dóu í móðuharðind- unum og bólusóttinni. Fyrir utan mektarmennina eru andlitin nafn- laus andlit. Í bókinni eru hins vegar sagðar margar sögur, örlagasögur alþýðufólks, sakamál og fleira slíkt. Þar eru margar sögur sem ég held að hafi ekki verið á almannavitorði áður. Það er kannski fullseint að kalla það „skúbb“ en margar sög- urnar eru mjög áhugaverðar og lýs- ingin á kjörum alþýðufólks breið. Þetta var mikil harðindaöld og ekki skemmtileg. Réttarfarið var grimmilegt, dauðarefsingar og rétt- trúnaður. En þótt það hafi ekki alltaf verið skemmtilegt að lifa á 18. öld- inni, þá var mjög gaman að gera grein fyrir henni á bók.“ Sjónarhorn alþýðufólks  Bjarki Bjarnason sagnfræðingur hefur ritað mikla bók, Ísland í aldanna rás, um 18. öldina á Íslandi  Mikið til af heimildum í annálum og alþingisbókum Morgunblaðið/RAX Bjarki Bjarnason „Það er kannski fullseint að kalla það „skúbb“ en margar sögurnar eru mjög áhugaverðar og lýsingin á kjörum alþýðufólks breið.“ Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is BÓKAFÉLAGIÐ Ugla gefur út 21 bók á árinu. Jakob F. Ásgeirsson útgefandi segir að oft hafi áhersla Uglu verið á rit um stjórnmál og sögu, en nú sé hún almennari. „Af barnabókum er fyrst að nefna nýja út- gáfu á Öddubókunum eftir Jennu og Hreiðar með teikningum Halldórs Péturssonar; Kvöld- sögur handa börnum, þar sem Gunnar Dal vel- ur og þýðir þrettán bestu ævintýri allra tíma og Jólaævintýri Dickens í afbragðsþýðingu Karls Ísfeld með upprunalegum myndum.“ Kvæðaúrval Kristjáns Karlssonar er fyrst þeirra skáldverka sem Jakob nefnir og svo kiljuútgáfa af Hinum mikla Gatsby og frum- útgáfa af meistaraverki Elie Wiesel, handhafa friðarverðlauna Nóbels, Nótt; áhrifamikil lýs- ing á veru í útrýmingarbúðum nasista. Tvær bækur eftir Agöthu Christie koma út hjá Uglu á þessu ári, en önnur þeirra er ein þekktasta bók hennar, Minning um morð, sem ekki hefur komið út áður á íslensku. „Þá gef ég út merkilega sögu sem heitir Freyjuginning eftir bandarískan höfund, Christinu Sunley, sem er af íslenskum ættum. Í vissum skilningi má segja að bókin sé um menningarheim Vestur-Íslendinga en sögu- hetja hennar leitar á vit forfeðra sinna á Ís- landi með óvæntum endalokum. Bókin kom út í Bandaríkjunum fyrr á árinu og fékk mjög góðar viðtökur.“ Bókafélagið Ugla gefur út æviminningar Einars Benediktssonar sendiherra og Alfreðs- saga og Loftleiða eftir Jakob sjálfan er endur- útgefin í tilefni af því að nýlega var gerð heim- ildamynd um Alfreð Elíasson. Jakob er einnig höfundur bókar um Aung San Suu Kyi og bar- áttu hennar fyrir mannréttindum og lýðræð- isumbótum í Búrma. „Jólaminningar er vönduð og hugljúf bók sem Jónas Ragnarsson hefur tekið saman um jólahald og jólasiði Íslendinga. Í fyrsta hlut- anum eru minningar frá fyrri tíð, í öðrum hluta samtöl við tólf þjóðþekkta Íslendinga og loks er rifjaður upp margvíslegur fróðleikur um jólahald á 20. öld.“ Fjármálasaga heimsins er rakin í met- sölubók heimsþekkts sagnfræðings, Nialls Ferguson, Peningarnir sigra heiminn. „Þá hefur Óli Björn Kárason tekið saman skemmtilega bók sem hann kallar Þeirra eigin orð, og hefur að geyma fleyg orð auðmanna, stjórnmálamanna, álitsgjafa og embættis- manna í útrásinni.“ Fyrr á árinu kom út bók Þorkels Sig- urlaugssonar Ný framtíðarsýn, um nýja stjórnarhætti við endurreisn Íslands eftir hrunið, bók Björns Bjarnasonar, Hvað er Ís- landi fyrir bestu, um tengsl Íslands við Evr- ópusambandið, og reyfari eftir Patriciu Corn- well. „Loks er að nefna fjórðu bókina í gagnmerkum bókaflokki Ólafs Teits Guðna- sonar þar sem fjallað er um vinnubrögð á fjöl- miðlum. „Þú sérð að hér kennir ýmissa grasa.“ Fjölbreytni hjá Uglu Morgunblaðið/Golli Jakob Skrifar bók um Aung San Suu Kyi. Jólasaga Dickens með upprunalegum myndum Frá Öxarárþingi: „Sama dag [12. júlí] féll solátandi dómur í barneignar-máli Bárðar Hávarðssonar: Bárður Hávarðsson hefur so vel fyrir héraðs sem þessum lögþingis- rétti fríviljuglega meðkennt sig begengið hafa fjögur frillulífis-brot með liðugum kvennpersónum og það fimmta með sínu þá verandi konu-efni, Þorkötlu Jónsdóttur, áður en þau trúlofuð voru, hvörs vegna sýslumanns- ins Arnórs Jónssonar á Kjalardals-þingi næstliðinn 25. Junij yfir hönum gegninn dómur, hvar inni hann eftir innihaldi forordningarinnar af 3. Jun- ij 1746, 10. art., er dæmdur til að erfiða í Kaupenhafnar tugt-húsi sína lífstíð, er hér með aldeilis confirmeraður.“ Frillulífisbrot með liðugum kvennpersónum Raunverulegt líf Waits er í raun afskaplega vel varðveitt leyndarmál. 42 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.