Morgunblaðið - 11.12.2009, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 11.12.2009, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2009 ORRI Vigfússon, formaður NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna, hefur sent Bar- ack Obama Bandaríkja- forseta bréf þar sem hann skorar á hann að greiða ekki götu inn- flutnings norsks lax vestur um haf. Fjallað er um málið á vef Dagens Næringsliv en þar segir að Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Nor- egs, hafi verið hvattur til að nota tækifærið og víkja að aðgangi norsks laxaútflutnings að Banda- ríkjamarkaði á fundi með Obama í Noregi, þar sem hann veitti friðar- verðlaunum Nóbels viðtöku í gær. Hafa farið illa að ráði sínu Aðspurður um tilefnið vísar Orri til framgöngu Norðmanna. „Við erum búin að reyna að ná eyrum norskra stjórnvalda í mörg ár. Þeir hafa farið mjög illa að sínu ráði með stjórn á villtum laxastofn- um. Það eru tvö meginatriði sem má finna að hjá þeim. Annars vegar eru svokallaðar veiðar úr óaðgreindum stofnum, þ.e.a.s. netaveiðar í sjó [...] Hins vegar er fiskeldið ástæðan fyr- ir hruni laxastofna í Noregi sem hef- ur verið að gera það að verkum að lúsafaraldur við ströndina margfald- ast og leggst á öll seiði.“ Orri skorar á Obama Orri Vigfússon Laugavegi 8 - s: 5522412 Opið: mán-fös. 9-18, lau. 10-18, sun. 13-18 Litla Jólabúðin Leðurkápur Leðurjakkar KRINGLAN www.outfittersnation.com ENERGETIC DENIM FYRIR UNGA FÓLKIÐ STÆRÐIR XXS-L STELPUR STELPUR STRÁKAR STELPUR STRÁKAR STELPUR STRÁKAR STRÁKAR BOLUR 2.490 BOLUR 2.490 HETTUPEYSA 6.990 LOÐFÓÐRUÐ HETTUPEYSA 6.990 BOLUR 2.490 HETTUPEYSA 5.990 BOLUR 2.490 HETTUPEYSA 6.990 Eddufelli 2, sími 557 1730 Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Glæsilegir jólatoppar - Munið gjafakortin - Betri silki- og ullarfatnaður Náttúrulækningabúðin Skólavörðustíg 20 www.ullogsilki.is Jólagjafir fyrir alla fjölskylduna. Frábært í útivistina, leikskólann sem og dagsdaglega. vera • Laugavegi 49 Sími 552 2020 20% afsláttur af öllum peysum og betri buxum fram að jólum. UNDIRBOÐ í verk í byggingariðn- aði leiða til þess að launin eru pínd niður úr öllu valdi, að mati Finn- björns Hermannssonar formanns Fagfélagsins, sem er félag bygg- ingamanna í Reykjavík og Eyjafirði. Stjórn félagsins hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er áhyggjum yfir þeirri óheillaþróun sem nú á sér stað á útboðs- og vinnumarkaði í bygginga- og verktakastarfsemi. Finnbjörn segir að félagið fái margar kvartanir frá félagsmönnum um að níðst sé á þeim. Þetta gerist þannig að fyrirtæki séu að bjóða lágt í verkin. Tilboðin miðist við ákveðin tilboð í efni sem erfitt sé að hreyfa og því sé ráðist að laununum. Finnbjörn segir að fyrirtækin sem fái verkin bjóði út einstaka verkþætti til að fá þá á lægra verði. Í ályktun félagsins segir að þá fari í gang hrunadans, undirverktakarnir leiti sér að öðrum undirverktökum og svo koll af kolli. Dæmi sé um fimm til sex lög undir- verktaka í sama verkinu. Þá sé leiðin orðin greið fyrir undirboð, svarta at- vinnu og vörusvik með því að sníða hjá iðnaðarmönnum. Setja þarf betri reglur Í mörgum tilvikum eru opinber fyrirtæki verkkaupendur. Finnbjörn telur að þau fylgist ekki nægjanlega með því hvernig staðið sé að verki hjá undirverktökum. Setja þurfi al- mennar reglur um það hvernig verk eru boðin út. „Þeir sem taka tilboð- um sem eru 60-70% af kostnaðar- áætlun eiga annað hvort að reka þá sem gerðu kostnaðaráætlunina eða sjá að eitthvað er varhugavert við þessi lágu tilboð,“ segir Finnbjörn. helgi@mbl.is Launin pínd niður hjá undirverktökum Fagfélagið varar við óheillaþróun á útboðsmarkaði Morgunblaðið/RAX Í járnum Margir undirverktakar koma að mörgum verkum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.