SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 4
4 28. febrúar 2010
Baklandið í Reykjanesbæ byggist að hluta til á verk-
efni sem María Rós Skúladóttir þróaði við gerð loka-
verkefnis í félagsfræði. Hún lærði úti í Danmörku og
kynnti sér félagsráðgjafarverkefni sem þar eru unnin
úti í hverfum borganna.
„Barnavernd Reykjanesbæjar óskaði eftir því að fá
svona verkefni. Ég tók raunar aðeins fyrir úrræði fyrir
börn alkóhólista vegna þess að betra er að vera með
þrengri hóp þegar maður gerir verkefni af þessu tagi.
Baklandið er mun víðtækara en verkefnið mitt nýtist
samt á ýmsan hátt,“ segir María Rós og er ánægð að
sjá lokaverkefnið verða að veruleika.
Sveitarfélög hér á landi eru með unglingaathvörf,
unglingasmiður og stuðning af ýmsu tagi við börn
sem eiga við erfiðar heimilisaðstæður. Í Reykja-
nesbæ var vísir að slíku. Það form sem er á Bakland-
inu er hins vegar nýjung hér á landi.
Starfið sem María Rós kynnti sér í Danmörku
snýst um að veitt er félagsráðgjöf allan sólarhringinn
í húsnæði í úthverfum þar sem hátt hlutfall útlend-
inga býr og félagsleg vandamál eru mest. Börn og
unglingar eiga þá alltaf kost á að sækja sér ráðgjöf í
heimilislegu umhverfi, nálægt heimili sínu.
„Þetta er allt miklu smærra í sniðum hjá okkur. Við
erum aðeins með starfsmann í hálfu starfi en von-
andi verður hægt að auka þetta. Þá eru aðstæður
hér allt aðrar. Við erum til dæmis með starfsemina á
Ásbrú eingöngu vegna þess að þar fengum við góðan
stuðning og gott húsnæði,“ segir María Rós.
Lokaverkefnið komst í framkvæmd
María Rós Skúladóttir og María Gunnarsdóttir fé-
lagsráðgjafar sjá um Baklandið.
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
H
ópur barna og unglinga, sem njóta
stuðnings og þjónustu Barnavernd-
ar Reykjanesbæjar, hefur fengið
stærra bakland. Þróunarverkefnið
„Baklandið“ er að danskri fyrirmynd og snýst
um að aðstoða börnin eftir skóla, við heimanám,
samskipti og athafnir daglegs lífs.
Tveir félagsráðgjafar hjá Barnavernd Reykja-
nesbæjar hafa veg og vanda af Baklandinu.
Hentugt húsnæði fékkst á Ásbrú og hófst starf-
semin fyrr í mánuðinum.
Samtals átta til tíu börn og unglingar á aldr-
inum tíu til fimmtán ára sem búa við erfiðar
heimilisaðstæður koma í athvarfið tvisvar í viku
eftir skóla, 4-5 börn í senn.
Skriflegur samningur um þátttöku
Yfir 300 barnaverndarmál eru skráð á hverju ári
hjá félagsmálayfirvöldum í Reykjanesbæ og
þörfin fyrir úrræði af þessu tagi er mikil, að sögn
félagsráðgjafanna. „Við getum ekki annað allri
þörfinni, eins og staðan er núna, enda er þetta
þróunarverkefni,“ segir María Gunnarsdóttir fé-
lagsráðgjafi. „Þessi hópur er valinn af því að
börnin fá ekki þann stuðning sem þau þurfa
heima hjá sér, til dæmis við heimanám. Þau eiga
erfitt með félagsleg samskipti og þurfa þjálfun í
því að eiga samskipti við önnur börn,“ segir
María.
Í upphafi er gerður skriflegur samningur á
milli Barnaverndar, barnanna og foreldra þeirra
um þátttöku í Baklandinu. María segir að for-
eldrarnir hafi tekið þessari þjónustu vel, sér-
staklega séu foreldrar yngri barnanna ánægðir.
„Það er betra að hefja forvarnarstarf þegar börn-
in eru yngri, þá eru þau jákvæðari og móttæki-
legri fyrir fræðslunni.“
Betur í stakk búin til að takast á við lífið
Starfsmaður athvarfsins sækir börnin í skólann.
Lögð er áhersla á að athvarfið sé heimilislegt,
andrúmsloftið hlýlegt og að barnið taki þátt í því
sem er að gerast. Þannig segir María að auk þess
að aðstoða börnin við heimanám sé reynt að
þjálfa þau í samskiptum við önnur börn og
kenna þeim að athafna sig í daglegu lífi. Það er
meðal annars gert með því að láta börnin taka
þátt í umhirðu á heimilinu og ganga frá eftir sig.
Þá er reynt að koma á betri tengslum við kenn-
ara barnanna. Foreldrarnir sækja þau síðan í at-
hvarfið klukkan fimm.
„Við vonumst til að geta aðstoðað börnin við
að fylgja skólafélögum sínum eftir í námi því ef
þau dragast aftur úr verður erfiðara fyrir þau að
vera hluti af bekknum. Þá vonumst við til að þau
eflist félagslega og að þau nái að þroskast á eðli-
legan hátt og læri á umhverfið. Þannig verði þau
á allan hátt betur í stakk búin að takast á við lífið
í framtíðinni,“ segir María.
Verkefnið er kostað af sjóðum og félögum og
stendur tilraunin fram á vorið. Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar leggur húsnæði til endur-
gjaldslaust og Styrktarfélag Keflavíkurflugvallar
og Manngildissjóður Reykjanesbæjar styrkja
það. Þeir sem standa að þessu tilraunaverkefni
segja að það hafi farið vel af stað, börnin séu
ánægð og foreldrarnir sáttir, og full ástæða til að
halda því áfram. „Við getum vonandi fengið
fjármagn til að þróa þetta áfram og auka vinn-
una. Það væri gott að geta byrjað hópavinnu og
ekið börnunum í frístundastarf. Það er draum-
urinn að vera með krakkana alla daga og gera
meira fyrir þau,“ segir María Rós Skúladóttir fé-
lagsráðgjafi.
Barnaverndarmálin þyngjast
Þörfin virðist vera fyrir hendi. Þótt barnavernd-
armálum í Reykjanesbæ hafi ekki fjölgað mikið
eru málin að þyngjast. Fleiri tilkynningar berast
um hvert barn.
Atvinnuleysi er mikið á Suðurnesjum, það
mesta á landinu, og dæmi um að báðir foreldrar
séu án vinnu. Þá á fólk í fjárhagslegum erf-
iðleikum af ýmsum öðrum ástæðum, eins og fólk
annars staðar á landinu, tekjurnar standa í stað
eða minnka en útgjöldin og skuldirnar aukast.
„Í svona árferði lenda fjölskyldur sem hafa
getað haldið sjó í venjulegu árferði í vanda-
málum, báturinn ruggar meira. Við sjáum að
vandamál fullorðna fólksins koma beinlínis nið-
ur á börnunum, vanlíðan foreldranna hefur áhrif
á börnin,“ segir Hjördís Árnadóttir, félagsmála-
stjóri Reykjanesbæjar.
Nýtt bak-
land fyrir
börnin
Unglingar í
Reykjanesbæ fá
aðstoð eftir skóla
Markmið Baklandsins er að bæta lífskjör þeirra barna og unglinga sem þurfa á viðbótarstuðningi að halda.
Morgunblaðið/Árni SæbergVikuspegill
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is
„Við vonumst til að
geta aðstoðað börnin
við að fylgja skóla-
félögum sínum eftir í
námi því ef þau drag-
ast aftur úr verður erf-
iðara fyrir þau að vera
hluti af bekknum. Þá
vonumst við til að
þau eflist félagslega
og að þau nái að
þroskast á eðlilegan
hátt og læri á um-
hverfið. Þannig verði
þau á allan hátt betur
í stakk búin að takast
á við lífið í framtíð-
inni.“
freistandi
& gott
Lambaprim
e2198kr.kg
verð áður 2
998
27%afsláttur