SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 47

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 47
28. febrúar 2010 47 LÁRÉTT 1. Hamingjusamar vegna fyrri hluta SingStar og lin- dýra. (9) 4. Kveikjulás í Evrópulandi. (5) 6. Lokaðir ávextir fyrir þann sem er ekki fyrir alla. (8) 9. Blek fyrir erlendan konung er plat. (8) 11. Með Finni þaust og ólst. (6) 12. Vaggi kryddi einu. (5) 13. Í hamar glittir hjá litskrúðugu. (8) 14. Sjá kvöl út af snúningi í hugsmíð. (8) 15. Keppnisferðin hjá íþróttafélagi leiddi til end- urbótarinnar. (9) 17. Kól Ester með ól og fituefni. (10) 19. Stjórna feðrum í flækjum í traffík. (11) 20. Helli sopa næstum því í innganga. (8) 22. Milli doktors og bachelors of science lendir master út af útgáfufyrirtæki og hroka þess. (9) 26. Af hverju ná tveir eins að sjá fölt? (5) 27. Hópurinn sem sér um gildið á gjaldmiðlinum. (6) 28. Athöfn myrkvi sýn. (9) 29. Mættir níu villtum að nóttu. (9) 30. Hefur núorðið skilning á dómnum. (9) 31. Einn með BA nam ei nið úr dánarorsökinni. (10) LÓÐRÉTT 1. Snafs á bar dag einn endar í ofbeldi (11) 2. Þrep til gjafa eru ákveðið mat. (9) 3. Á Lér eftir að finna klæði? (7) 4. Bakar skóbotna. (5) 5. Kann við ásýnd á áþekkum (9) 7. Bjarni er skapvondur og digur. (7) 8. Aum fer úr skíðadeildum út af bálinu. (9) 10. Óvægin við þýska bræður. (5) 12. Læknir og lítið líffæri fá sopa? (8) 15. Fas á teig hjá Anais út af byggingunni. (10) 16. Sá seinasti mætti á ráðstefnu fullur af beiskju í garð einhvers. (8) 18. Fimur útlimur er stúlka. (7) 20. Tröppur sem Kerling fékk fyrir snúð sinn? (10) 21. Finnur í söng aðallega. (3,1,4) 23. Keyra Daníel á Evrópumeistaramót í Ameríku til að hitta vísindafélag. (8) 24. Kvarti yfir brjósti. (5) 25. Sjá húsnauta hypja sig. (6) 26. Stoppið hjartarkollu við skjögur. (7) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðilinn með nafni og heimilisfangi ásamt úr- lausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykja- vík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 28. febrúar rennur út föstudaginn 5. mars. Nafn vinningshafans birtist í blaðinu 7. mars. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 21. febrúar sl. er Loftur Þorsteinsson. Hann hlýtur í verðlaun bókina Vonarstræti eftir Ármann Jakobsson. JPV gefur út. Krossgátuverðlaun Eftir góða byrjun þeirra íslensku skákmanna sem mestar vonir eru bundnar við á Reykjavík- urskákmótinu kom talsvert bak- slag í annarri umferð en þá töp- uðu þeir flestir. Hannes Hlífar Stefánsson sem var meðal efstu manna á síðasta Reykjavíkur móti hélt hinsvegar sínu striki og er í hópi þeirra sem unnið hafa báðar skákir sínar. Hann er til alls líklegur en auðvitað er við ramman reip að draga þegar horft er til keppendalistans. Þessir hafa unnið í fyrstu tveim umferðunum: 1.-16. Bakl- an, Kuzubov, Shulman, Gupta, Hannes Hlífar Stefánson, Gupta, lenderman, Nataf, Romanishin, Cori, Grover, Dreev, Sokolov, Ehlvest, Kogan, Dronavalli og Bromann allir með 2 vinninga. Stigahæsti skákmaður mótsins er Úkraínumaðurinn Vladimir Baklan en á hæla hans koma landi hans Kuzubov, Bosn- íumaðurinn Ivan Sokolov og Rússinn Alexey Dreev sem tefldi síðast á Reykjavíkurskákmótinu 2004 ásamt hinum geðþekka Úkraínumanni Oleg Rom- anishin. Vel fer á því að hýsa Reykjavíkurskákmótið í Ráðhúsi Reykjavíkur en að var fyrsta gert árið 2000. Það myndi bæta að- stöðuna ef hægt væri að bregða tjaldi milli keppnisvettvangsins og gangsins í gegnum húsið. Framkvæmd þess er miklum ágætum og er SÍ og styrktarað- ilanum MP banka til mikils sóma. Aðstaða fyrir áhorfendur er góð og ýmsir valinkunnir meistarar munu spreyta sig á skákskýringum á næstu dögum. Mikill styrkleikamunur er á keppendum í stigum talið, þús- und elo-stig eru á milli þess efsta og þess neðsta. Ungum skák- mönnum gefst þarna kostur á tefla við nafntogaða meistara. Eftirtektarverð er frammistaða Daða Ómarssonar og Ingvars Þ. Jóhannessonar sem eru báðir með 1½ vinning. Af stúlkunum hefur Sigríður Helgadóttir teflt af mestu harðfylgi. Sú stigahæsta þeirra Hallgerður Helga var óheppin að missa niður unnið tafl gegn Guðmundi Halldórs- syni. Ein eftirtektarverðasta við- ureign annarrar umferðar var skák Guðmundar Kjartanssonar og Hannesar Hlífars. Guð- mundur „fór með löndum í byrj- un“ og Hannes fékk ágæta stöðu en leitaðist við að opna taflið. Hinn snjalli leikur, 26. e3 setti allt í loft upp en þó gat Guð- mundur sennilega haldið taflinu en spilaði út trompinu – Df6 of snemma í stað þess að treysta varnir sínar: Guðmundur Kjartansson – Hannes Hlífar Stefánsson Enskur leikur 1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rc6 4. g3 Bb4 5. Bg2 0-0 6. 0-0 e4 7. Be1 Bxc3 8. dxc3 h6 9. Rc2 He8 10. Re3 d6 11. b3 Re7 12. Dc2 Rf5 13. Rd5 Rxd5 14. cxd5 De7 15. c4 h5 16. Dc3 Bd7 17. Bb2 Dg5 18. Bc1 Dg6 19. Bf4 c5 20. dxc6 Bxc6 21. Had1 Had8 22. Da5 a6 23. Bh3 Bd7 24. Bxf5 Bxf5 25. Hd5 Bg4 26. Dd2 e3! 27. fxe3 Bh3 28. Dd4 Bxf1 29. Hg5 Dh7 30. Kxf1 h4 31. gxh4 Hc8 32. Kg2 b5 33. cxb5 axb5 34. Dxd6 Hc2 ( Stöðumynd ) Vendipunkturinn. Hér varð hvítur að leika 35. h5! t.d. Hxe2+ 36. Kg3 Hxa2 37. Be5! og stendur síst lakar. Eftir 36. De4 getur hvítur tryggt jafntefli með 37. Hxg7+! Kxg7 38. Dh6+ Kg8 39. Dg5+. 35. Df6 Hxe2 36. Kf3 He1 37. Kf2 Hd1 38. Dc6 Hed8 39. Dxb5 Dxh4 40. Bg3 De4 41. Bf4 f6 41. H8d2+42. Kg3 Hg1+ var fljótvirkara og leiðir til máts. 42. Hf5 H8d2 43. Kg3 Hg1 – og Guðmundur gafst upp. Um helgina fara fram þrjár um- ferðir. Fjórða umferð hefst kl. 9 á laugardagsmorguninn en fimmta og sjötta kl. 15.30 báða dagana. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Hannes Hlífar í hópi efstu manna Skák Nafn Heimilisfang Póstfang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.