SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 47
28. febrúar 2010 47
LÁRÉTT
1. Hamingjusamar vegna fyrri hluta SingStar og lin-
dýra. (9)
4. Kveikjulás í Evrópulandi. (5)
6. Lokaðir ávextir fyrir þann sem er ekki fyrir alla. (8)
9. Blek fyrir erlendan konung er plat. (8)
11. Með Finni þaust og ólst. (6)
12. Vaggi kryddi einu. (5)
13. Í hamar glittir hjá litskrúðugu. (8)
14. Sjá kvöl út af snúningi í hugsmíð. (8)
15. Keppnisferðin hjá íþróttafélagi leiddi til end-
urbótarinnar. (9)
17. Kól Ester með ól og fituefni. (10)
19. Stjórna feðrum í flækjum í traffík. (11)
20. Helli sopa næstum því í innganga. (8)
22. Milli doktors og bachelors of science lendir
master út af útgáfufyrirtæki og hroka þess. (9)
26. Af hverju ná tveir eins að sjá fölt? (5)
27. Hópurinn sem sér um gildið á gjaldmiðlinum.
(6)
28. Athöfn myrkvi sýn. (9)
29. Mættir níu villtum að nóttu. (9)
30. Hefur núorðið skilning á dómnum. (9)
31. Einn með BA nam ei nið úr dánarorsökinni. (10)
LÓÐRÉTT
1. Snafs á bar dag einn endar í ofbeldi (11)
2. Þrep til gjafa eru ákveðið mat. (9)
3. Á Lér eftir að finna klæði? (7)
4. Bakar skóbotna. (5)
5. Kann við ásýnd á áþekkum (9)
7. Bjarni er skapvondur og digur. (7)
8. Aum fer úr skíðadeildum út af bálinu. (9)
10. Óvægin við þýska bræður. (5)
12. Læknir og lítið líffæri fá sopa? (8)
15. Fas á teig hjá Anais út af byggingunni. (10)
16. Sá seinasti mætti á ráðstefnu fullur af beiskju í
garð einhvers. (8)
18. Fimur útlimur er stúlka. (7)
20. Tröppur sem Kerling fékk fyrir snúð sinn? (10)
21. Finnur í söng aðallega. (3,1,4)
23. Keyra Daníel á Evrópumeistaramót í Ameríku til
að hitta vísindafélag. (8)
24. Kvarti yfir brjósti. (5)
25. Sjá húsnauta hypja sig. (6)
26. Stoppið hjartarkollu við skjögur. (7)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta
lausn krossgátunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn með
nafni og heimilisfangi ásamt úr-
lausninni í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins,
Hádegismóum 2, 110 Reykja-
vík. Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 28. febrúar rennur út
föstudaginn 5. mars. Nafn vinningshafans birtist í
blaðinu 7. mars. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í
vinning. Vinningshafi krossgátunnar 21. febrúar sl.
er Loftur Þorsteinsson. Hann hlýtur í verðlaun bókina
Vonarstræti eftir Ármann Jakobsson. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Eftir góða byrjun þeirra íslensku
skákmanna sem mestar vonir
eru bundnar við á Reykjavík-
urskákmótinu kom talsvert bak-
slag í annarri umferð en þá töp-
uðu þeir flestir. Hannes Hlífar
Stefánsson sem var meðal efstu
manna á síðasta Reykjavíkur
móti hélt hinsvegar sínu striki og
er í hópi þeirra sem unnið hafa
báðar skákir sínar. Hann er til
alls líklegur en auðvitað er við
ramman reip að draga þegar
horft er til keppendalistans.
Þessir hafa unnið í fyrstu
tveim umferðunum: 1.-16. Bakl-
an, Kuzubov, Shulman, Gupta,
Hannes Hlífar Stefánson, Gupta,
lenderman, Nataf, Romanishin,
Cori, Grover, Dreev, Sokolov,
Ehlvest, Kogan, Dronavalli og
Bromann allir með 2 vinninga.
Stigahæsti skákmaður mótsins
er Úkraínumaðurinn Vladimir
Baklan en á hæla hans koma
landi hans Kuzubov, Bosn-
íumaðurinn Ivan Sokolov og
Rússinn Alexey Dreev sem tefldi
síðast á Reykjavíkurskákmótinu
2004 ásamt hinum geðþekka
Úkraínumanni Oleg Rom-
anishin. Vel fer á því að hýsa
Reykjavíkurskákmótið í Ráðhúsi
Reykjavíkur en að var fyrsta gert
árið 2000. Það myndi bæta að-
stöðuna ef hægt væri að bregða
tjaldi milli keppnisvettvangsins
og gangsins í gegnum húsið.
Framkvæmd þess er miklum
ágætum og er SÍ og styrktarað-
ilanum MP banka til mikils
sóma. Aðstaða fyrir áhorfendur
er góð og ýmsir valinkunnir
meistarar munu spreyta sig á
skákskýringum á næstu dögum.
Mikill styrkleikamunur er á
keppendum í stigum talið, þús-
und elo-stig eru á milli þess efsta
og þess neðsta. Ungum skák-
mönnum gefst þarna kostur á
tefla við nafntogaða meistara.
Eftirtektarverð er frammistaða
Daða Ómarssonar og Ingvars Þ.
Jóhannessonar sem eru báðir
með 1½ vinning. Af stúlkunum
hefur Sigríður Helgadóttir teflt af
mestu harðfylgi. Sú stigahæsta
þeirra Hallgerður Helga var
óheppin að missa niður unnið
tafl gegn Guðmundi Halldórs-
syni.
Ein eftirtektarverðasta við-
ureign annarrar umferðar var
skák Guðmundar Kjartanssonar
og Hannesar Hlífars. Guð-
mundur „fór með löndum í byrj-
un“ og Hannes fékk ágæta stöðu
en leitaðist við að opna taflið.
Hinn snjalli leikur, 26. e3 setti
allt í loft upp en þó gat Guð-
mundur sennilega haldið taflinu
en spilaði út trompinu – Df6 of
snemma í stað þess að treysta
varnir sínar:
Guðmundur Kjartansson –
Hannes Hlífar Stefánsson
Enskur leikur
1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rc6 4.
g3 Bb4 5. Bg2 0-0 6. 0-0 e4 7. Be1
Bxc3 8. dxc3 h6 9. Rc2 He8 10.
Re3 d6 11. b3 Re7 12. Dc2 Rf5 13.
Rd5 Rxd5 14. cxd5 De7 15. c4 h5
16. Dc3 Bd7 17. Bb2 Dg5 18. Bc1
Dg6 19. Bf4 c5 20. dxc6 Bxc6 21.
Had1 Had8 22. Da5 a6 23. Bh3
Bd7 24. Bxf5 Bxf5 25. Hd5 Bg4 26.
Dd2 e3! 27. fxe3 Bh3 28. Dd4 Bxf1
29. Hg5 Dh7 30. Kxf1 h4 31. gxh4
Hc8 32. Kg2 b5 33. cxb5 axb5 34.
Dxd6 Hc2 ( Stöðumynd )
Vendipunkturinn. Hér varð
hvítur að leika 35. h5! t.d. Hxe2+
36. Kg3 Hxa2 37. Be5! og stendur
síst lakar. Eftir 36. De4 getur
hvítur tryggt jafntefli með 37.
Hxg7+! Kxg7 38. Dh6+ Kg8 39.
Dg5+. 35. Df6 Hxe2 36. Kf3 He1
37. Kf2 Hd1 38. Dc6 Hed8 39.
Dxb5 Dxh4 40. Bg3 De4 41. Bf4 f6
41. H8d2+42. Kg3 Hg1+ var
fljótvirkara og leiðir til máts.
42. Hf5 H8d2 43. Kg3 Hg1
– og Guðmundur gafst upp.
Um helgina fara fram þrjár um-
ferðir. Fjórða umferð hefst kl. 9 á
laugardagsmorguninn en
fimmta og sjötta kl. 15.30 báða
dagana.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Hannes Hlífar í hópi efstu manna
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang