SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 13

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 13
28. febrúar 2010 13 einkaaðila til að börnin geti keppt á mótum, og ótrúlegur árangur þeirra hefur síðan opn- að þeim möguleika á betri menntun. Þeim var boðið að stunda nám í einkaskóla, og nýverið var Daysi boðinn styrk- ur til náms við háskóla í Banda- ríkjunum. Styrktaraðilar þeirra í Perú hjálpuðu fjölskyldunni einnig að byggja sér hús. Skák- samband Perú er ekki sterkt miðað við önnur lönd og því ferðast faðirinn einn með börn- in á stórmót þegar aðrar þjóðir mæta til leiks með lið þjálfara, sálfræðinga og aðstoðarmanna. Læra fyrst, æfa svo Krakkarnir eru á heimavelli þegar þau eru spurð að því hve- nær þau hafi byrjað að tefla. „Ég var sex og hún var átta og pabbi kenndi okkur mannganginn. Þá var skákin ekki svo þekkt í Perú en hún er það núna. Þetta hefur ekki alltaf verið auðvelt en okk- ur finnst bara svo gaman að keppa á mótum og ferðast og hitta nýtt fólk,“ segir Jorge yngri. En eru þau ólíkir skákmenn? Daysi grípur orðið og segir að bróðir sinn sé rólegri og skipu- lagðari leikmaður en hún, en þau pæli lítið í því hvernig þau tefli. Ég spyr hvaða markmið þau hafi sett sér núna eftir heimsmeistaramótið og segir Daysi það vera að verða alþjóð- legur stórmeistari, sem aðeins tíu konur eru núna. Að auki vilji hún ná 2.600 ELO-stigum fyrir lok ársins. „En það var mitt markmið,“ segir litli bróðir hlæjandi. „Þú stalst því.“ Bæði gangast þau við því að vera miklir keppn- ismenn og fá gríðarlega mikið út úr því að sigra sér eldri og reyndari mótherja. Hvaðan koma þessir miklu skákhæfileikar? Jorge eldri hlær og svarar til: „Ég spyr sjálfan mig stundum hvernig standi á þessu!“ Hann lýsir því að það hafi í raun verið alger tilviljun að skákin kom inn í líf þeirra. „Ég kunni varla mannganginn þegar krakkarnir fóru á sum- arnámskeið, og við lærðum þetta saman til að byrja með. Kennarar barnanna tóku strax eftir hæfileikum þeirra og við leyfðum þeim að tefla út í eitt. Við tóku sigrar á skólamótum, héraðsmótum og landsmótum og þau færðust undrahratt upp styrkleikalistann. Þetta er það sem þeim finnst skemmtilegast að gera í lífinu og skákin sprett- ur svo eðlilega og áreynslulaust fram hjá þeim. Það hefur verið þannig frá upphafi og er reyndar enn í dag,“ heldur Jorge eldri áfram, „að þau þurfa að vera búin að læra heima áður en ég hleypi þeim að taflborðinu. Ég legg áherslu á það að þau passi upp á skólann og fái góða menntun, en þeim er alveg sama um það eins og er, skákin er númer eitt, tvö og þrjú. Og það er meðal annars lykillinn að ótrúlegum árangri þeirra, að þau njóta leiksins til hins ýtrasta. Þegar þau eru ekki að keppa á mótum fáum við einkakennara sem kemur á hverjum einasta degi, meira að segja á jólunum. Þá reyndar kvörtuðu börnin og móðir þeirra hástöfum en ég lít svo á að þau fái frí frá skólabók- unum þegar við erum á keppn- isferðalögum. Skákin er þó að mínu mati góð íþrótt, því hún þjálfar hugsunina, þú munt aldrei hitta skákmann sem er fátækur að því leyti.“ Og þetta virðist sannarlega vera fjölskylda í fríi fremur en keppnisíþróttamenn, þar sem ég horfi á eftir undrabörnunum tveimur trítla léttfætt í skáksal- inn, meðan faðir þeirra leggur af stað í göngutúr í snjónum. Hann ætlar að skoða sig um í miðbænum, taka út skauta- svellið og finna veitingastað til að bjóða krökkunum sínum á í kvöld. „Ég þarf ekkert að standa yfir þeim og greina skákirnar, þau sjá alveg um þetta sjálf.“ Daysi og Jorge Cori, 16 og 14 ára systkini frá Perú, ásamt föður sínum, Jorge Cori eldri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.