SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 28
28 28. febrúar 2010 H laupið spýttist undan jöklinum og jakar á stærð við tveggja hæða hús flutu eftir ólgandi straumn- um út eftir Skeiðarársandinum. Eftir gosið í Gjálp höfðum við beðið eftir stóra hlaupinu en það hafði setið á sér í mán- uð. En nú var allt að gerast. Árið er 1996 og stórbrotnar náttúruhamfarir sem hlífðu engu voru að rífa í sundur brýr og vegi fyrir aust- an. Alltaf þegar stóratburðir eiga sér stað hefur ljósmyndadeild Morgunblaðsins verið í við- bragðsstöðu, tilbúin í allt þegar kallið kemur. Við höfðum gert klárt í bænum og ég átti að fljúga á flugvélinni minni yfir svæðið, Kjart- an Þorbjörnsson (Golli) ljósmyndari, leigði stærri hraðfleygari flugvél og átti að lenda á Hornafirði og keyra í Skaftafell. Árni Sæberg ljósmyndari fór síðan keyrandi á Lapp- lander-jeppa með tvær tunnur af flugvéla- bensíni, og átti að vera vestan megin við hlaupið. Við ætluðum að hafa allt pottþétt. Svo var þotið af stað – það mátti engan tíma missa. Ég hafði reynt að fá einhvern með mér til þess að fljúga á meðan ég mynd- aði hlaupið en það gekk ekki. Það var því ekki um annað að ræða en að fara einn þó að- mér sé illa við að gera hvort tveggja í einu, fljúga og taka myndir. Maður gerir þá hvor- ugt vel. Það þarf að einbeita sér að því sem maður er að gera. Árni Sæberg keyrði á níutíu kílómetra hraða (Lapplander-jeppinn komst ekki hraðar) í flúgandi hálku, logandi hræddur við að velta og fá tunnurnar yfir sig. Golli var á flugi yfir hlaupinu þegar ég kom á staðinn, hann ákvað að fljúga fyrst og mynda á meðan allt var að gerast og lenda síðar á Höfn og keyra til baka. Ég flaug yfir og skoðaði mig um og kallaði í þær flugvélar sem voru á svæðinu til að vita um alla umferð og láta vita af mér. Það voru komnar tíu til tólf flugvélar á svæðið og það varð að hafa allan varann á sér. Menn flugu ákveðinn hægri umferðarhring meðfram veginum eftir því í hvaða átt var flogið, töluðu saman og létu vita af sér, bæði hæð og staðsetningu. Ég gerði mig kláran, kallaði alla upp og lét vita að ég væri að nálgast brúna yfir Gígju- kvísl. Brúin var að bresta og þegar ég opnaði gluggann á flugvélinni og var að fara að smella af myndum þá rétt kíkti ég fyrst fram fyrir vélina til öryggis. Þá gerðist það sem ég óttaðist mest, flugvél kom öfugan hring og stefndi beint á mig. Það skipti engum togum að ég varð að steypa vélinni niður, horfði á meðan á hjólin á hinni flugvélinni þjóta framhjá rétt fyrir ofan mig. Myndavélin hentist aftur í og linsan skekktist. Það sást á myndunum sem ég tók á næstu dögum, allt sem var vinstra megin í mynd var óskýrt. National Geographic vildi nota eina myndina í opnu en varð að hætta við vegna þess að myndin var skemmd. Ég held að hjartað hafi slegið eins hratt og hjarta getur slegið. Ég lækkaði flugið veru- lega í örugga hæð, varð að gera það við þessar aðstæður en þar voru engar aðrar vélar fyrir. Ég kallaði í Golla sem var á flugi fyrir ofan og sagði honum að það væri ómögulegt að mynda og fljúga einn í vél. Við töluðum um að ég skyldi fljúga lágt sem viðmiðun fyrir myndina hans þannig að stærðin á jöklunum kæmi fram. Það verða að vera einhver stærð- ar viðmið í svona mynd og þá eru flugvélar oftast besti kosturinn, jafnvel sá eini. Við flugum nokkrar ferðir þannig að stóra myndin varð til þegar brúin fór af hringveg- inum við Gígju. Það tók smátíma að ná sér niður en ég gat sjálfum mér um kennt að vera einn að fljúga og reyna að taka myndir í leiðinni. Það getur enginn nema snillingurinn Ómar Ragnarsson sem var einmitt þarna á sveimi. Þetta skipti svo sem engu máli, allt fór vel nema linsan mín var ónýt. Árni Sæberg komst klakklaust á leiðarenda en var hálfheyrnalaus eftir hávaðan í Lapp- landernum. Það er eiginlega ekki hægt að tala við farþega í svoleiðis bíl. Við Árni flug- um svo saman yfir hlaupið rétt fyrir myrkur, hlaupið var ekki komið í hámark en það átti eftir að gerast um kvöldið eða nóttina. Þegar við flugum lágt yfir vatnsflauminn ætlaði Árni að taka myndir, það voru ekki aðrar flugvélar á flugi yfir svæðinu svo við vorum rólegir og áhyggjulausir. „Jeeeeeeeeee maður, váááááá,“ heyrðist í Árna í gegnum hávaðan frá hlaupinu sem yf- irgnæfði mótorhljóðin. Ertu ekki að taka myndir, Árni? kallaði ég til hans í gegnum hávaðan. „Ha, nei, þetta er svo rosalegt. Taktu ann- an hring, ég gleymdi mér alveg. Ég verð að upplifa þetta fyrst,“ öskraði hann í eyrað á mér. Ég heyrði eiginlega í skítaglottinu á Árna fyrir aftan mig. Við fórum annan hring og mynduðum hlaupið og horfðum á jakana fljóta í árflaumnum. Eftir það lentum við í ljósaskiptunum á flugvellinum á Klaustri. Næsta dag tóku við ný ævintýri því að risajakar á stærð við hús höfðu skoppað upp úr jöklinum og flotið niður alla sanda. Við vorum að skrásetja Íslandssöguna í myndum og vorum stoltir af því. Stundum velti ég fyrir mér hvort fólki sé í raun alveg sama hvort sagan sé til í myndum á Íslandi eða ekki. Við getum alltaf bara skrifað um hana seinna, við erum nefnilega bókmennta- þjóð. Hlaup sem engu eirði Stórbrotnar náttúruhamfarir sem hlífðu engu voru að rífa í sundur brýr og vegi fyrir austan. Það var hlaup í Skeiðará. En það er ekki skyn- samlegt að fljúga sjálfur og taka myndir um leið. Brúin farin við Skeiðará. Árni Snorrason, núverandi forstjóri Veðurstofunnar, fylgist með gangi má Sagan bak við myndina Ragnar Axelsson rax@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.