SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 4
4 28. febrúar 2010 Baklandið í Reykjanesbæ byggist að hluta til á verk- efni sem María Rós Skúladóttir þróaði við gerð loka- verkefnis í félagsfræði. Hún lærði úti í Danmörku og kynnti sér félagsráðgjafarverkefni sem þar eru unnin úti í hverfum borganna. „Barnavernd Reykjanesbæjar óskaði eftir því að fá svona verkefni. Ég tók raunar aðeins fyrir úrræði fyrir börn alkóhólista vegna þess að betra er að vera með þrengri hóp þegar maður gerir verkefni af þessu tagi. Baklandið er mun víðtækara en verkefnið mitt nýtist samt á ýmsan hátt,“ segir María Rós og er ánægð að sjá lokaverkefnið verða að veruleika. Sveitarfélög hér á landi eru með unglingaathvörf, unglingasmiður og stuðning af ýmsu tagi við börn sem eiga við erfiðar heimilisaðstæður. Í Reykja- nesbæ var vísir að slíku. Það form sem er á Bakland- inu er hins vegar nýjung hér á landi. Starfið sem María Rós kynnti sér í Danmörku snýst um að veitt er félagsráðgjöf allan sólarhringinn í húsnæði í úthverfum þar sem hátt hlutfall útlend- inga býr og félagsleg vandamál eru mest. Börn og unglingar eiga þá alltaf kost á að sækja sér ráðgjöf í heimilislegu umhverfi, nálægt heimili sínu. „Þetta er allt miklu smærra í sniðum hjá okkur. Við erum aðeins með starfsmann í hálfu starfi en von- andi verður hægt að auka þetta. Þá eru aðstæður hér allt aðrar. Við erum til dæmis með starfsemina á Ásbrú eingöngu vegna þess að þar fengum við góðan stuðning og gott húsnæði,“ segir María Rós. Lokaverkefnið komst í framkvæmd María Rós Skúladóttir og María Gunnarsdóttir fé- lagsráðgjafar sjá um Baklandið. Ljósmynd/Dagný Gísladóttir H ópur barna og unglinga, sem njóta stuðnings og þjónustu Barnavernd- ar Reykjanesbæjar, hefur fengið stærra bakland. Þróunarverkefnið „Baklandið“ er að danskri fyrirmynd og snýst um að aðstoða börnin eftir skóla, við heimanám, samskipti og athafnir daglegs lífs. Tveir félagsráðgjafar hjá Barnavernd Reykja- nesbæjar hafa veg og vanda af Baklandinu. Hentugt húsnæði fékkst á Ásbrú og hófst starf- semin fyrr í mánuðinum. Samtals átta til tíu börn og unglingar á aldr- inum tíu til fimmtán ára sem búa við erfiðar heimilisaðstæður koma í athvarfið tvisvar í viku eftir skóla, 4-5 börn í senn. Skriflegur samningur um þátttöku Yfir 300 barnaverndarmál eru skráð á hverju ári hjá félagsmálayfirvöldum í Reykjanesbæ og þörfin fyrir úrræði af þessu tagi er mikil, að sögn félagsráðgjafanna. „Við getum ekki annað allri þörfinni, eins og staðan er núna, enda er þetta þróunarverkefni,“ segir María Gunnarsdóttir fé- lagsráðgjafi. „Þessi hópur er valinn af því að börnin fá ekki þann stuðning sem þau þurfa heima hjá sér, til dæmis við heimanám. Þau eiga erfitt með félagsleg samskipti og þurfa þjálfun í því að eiga samskipti við önnur börn,“ segir María. Í upphafi er gerður skriflegur samningur á milli Barnaverndar, barnanna og foreldra þeirra um þátttöku í Baklandinu. María segir að for- eldrarnir hafi tekið þessari þjónustu vel, sér- staklega séu foreldrar yngri barnanna ánægðir. „Það er betra að hefja forvarnarstarf þegar börn- in eru yngri, þá eru þau jákvæðari og móttæki- legri fyrir fræðslunni.“ Betur í stakk búin til að takast á við lífið Starfsmaður athvarfsins sækir börnin í skólann. Lögð er áhersla á að athvarfið sé heimilislegt, andrúmsloftið hlýlegt og að barnið taki þátt í því sem er að gerast. Þannig segir María að auk þess að aðstoða börnin við heimanám sé reynt að þjálfa þau í samskiptum við önnur börn og kenna þeim að athafna sig í daglegu lífi. Það er meðal annars gert með því að láta börnin taka þátt í umhirðu á heimilinu og ganga frá eftir sig. Þá er reynt að koma á betri tengslum við kenn- ara barnanna. Foreldrarnir sækja þau síðan í at- hvarfið klukkan fimm. „Við vonumst til að geta aðstoðað börnin við að fylgja skólafélögum sínum eftir í námi því ef þau dragast aftur úr verður erfiðara fyrir þau að vera hluti af bekknum. Þá vonumst við til að þau eflist félagslega og að þau nái að þroskast á eðli- legan hátt og læri á umhverfið. Þannig verði þau á allan hátt betur í stakk búin að takast á við lífið í framtíðinni,“ segir María. Verkefnið er kostað af sjóðum og félögum og stendur tilraunin fram á vorið. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar leggur húsnæði til endur- gjaldslaust og Styrktarfélag Keflavíkurflugvallar og Manngildissjóður Reykjanesbæjar styrkja það. Þeir sem standa að þessu tilraunaverkefni segja að það hafi farið vel af stað, börnin séu ánægð og foreldrarnir sáttir, og full ástæða til að halda því áfram. „Við getum vonandi fengið fjármagn til að þróa þetta áfram og auka vinn- una. Það væri gott að geta byrjað hópavinnu og ekið börnunum í frístundastarf. Það er draum- urinn að vera með krakkana alla daga og gera meira fyrir þau,“ segir María Rós Skúladóttir fé- lagsráðgjafi. Barnaverndarmálin þyngjast Þörfin virðist vera fyrir hendi. Þótt barnavernd- armálum í Reykjanesbæ hafi ekki fjölgað mikið eru málin að þyngjast. Fleiri tilkynningar berast um hvert barn. Atvinnuleysi er mikið á Suðurnesjum, það mesta á landinu, og dæmi um að báðir foreldrar séu án vinnu. Þá á fólk í fjárhagslegum erf- iðleikum af ýmsum öðrum ástæðum, eins og fólk annars staðar á landinu, tekjurnar standa í stað eða minnka en útgjöldin og skuldirnar aukast. „Í svona árferði lenda fjölskyldur sem hafa getað haldið sjó í venjulegu árferði í vanda- málum, báturinn ruggar meira. Við sjáum að vandamál fullorðna fólksins koma beinlínis nið- ur á börnunum, vanlíðan foreldranna hefur áhrif á börnin,“ segir Hjördís Árnadóttir, félagsmála- stjóri Reykjanesbæjar. Nýtt bak- land fyrir börnin Unglingar í Reykjanesbæ fá aðstoð eftir skóla Markmið Baklandsins er að bæta lífskjör þeirra barna og unglinga sem þurfa á viðbótarstuðningi að halda. Morgunblaðið/Árni SæbergVikuspegill Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við vonumst til að geta aðstoðað börnin við að fylgja skóla- félögum sínum eftir í námi því ef þau drag- ast aftur úr verður erf- iðara fyrir þau að vera hluti af bekknum. Þá vonumst við til að þau eflist félagslega og að þau nái að þroskast á eðlilegan hátt og læri á um- hverfið. Þannig verði þau á allan hátt betur í stakk búin að takast á við lífið í framtíð- inni.“ freistandi & gott Lambaprim e2198kr.kg verð áður 2 998 27%afsláttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.