SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 6

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 6
6 28. febrúar 2010 Jochen Sanio, forseti þýska fjár- málaeftirlitsins, BaFin, segir að þýskar fjármálastofnanir kynnu að geta staðið það af sér ef Grikkir gætu ekki staðið í skil- um, en hrun í fjármálalífi landa á borð við Ítalíu, Spán eða Portú- gal myndi hafa skelfilegar afleið- ingar fyrir bankageirann. Sérfræðingar BaFin telja að fari svo að fleiri lönd falli sé komið að þolmörkum evrunnar. Þýskir bankar eru helstu lán- ardrottnarnir á Spáni og Írlandi og í öðru sæti á Ítalíu. Þeir beina spjótum sínum að fjár- málafyrirtækjunum: „Sérstaklega meðal vogunarsjóðanna er að finna fulltrúa, sem veðjuðu á að Grikkir gætu ekki borgað og evrusvæðið myndi bresta.“ Sér- fræðingarnir hjá BaFin líkja ástandinu við gjaldþrot Argent- ínu og segja að það sé hætta á að skapist vítahringur þar sem allt fari niður á við. Vegna þess að þau ríki, sem eru veikust að burðum, fái hvergi peninga verði þau að spara og það hefti þróun efnahagslífsins. Álit BaFin átti þátt í því að Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, ákvað að finna þyrfti leið til að hjálpa Grikkjum. Vogunarsjóðir veðjuðu gegn Grikkjum Akropólis-hæð var lokuð gestum í sólarhring vegna verkfalls. Reuters S pænska leyniþjónustan, CNI, hefur sam- kvæmt blaðinu El País hafið rannsókn á því hvort átt hafi að fella Spán með árásum fjárfesta og ágengni ákveðinna eng- ilsaxneskra fjölmiðla. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, var ómyrk í máli í ræðu, sem hún hélt á öskudag: „Það er hneyskli ef sömu bankar og komu okkur á brún hengiflugsins tóku þátt í að falsa fjár- hagstölur Grikklands.“ Christine Lagarde, fjár- málaráðherra Frakklands, er þeirrar hyggju að við- skipti með skuldatryggingar – á ensku Credit Default Swaps – hafi átt stóran þátt í fjárhagslegum vandamálum Grikklands. Staða Grikklands er gríðarlega viðkvæm og óvíst hvort þeir hafi af að leysa úr sínum vandamálum. Ekki er heldur ljóst með hvaða hætti önnur ríki á evrusvæðinu ætla að koma þeim til hjálpar. Hættan er sú að neyðarástandið í Grikklandi breiðist út og þar eru Portúgalar, Írar, Ítalir og Spánverjar veik- astir fyrir. Þá gæti orðið brátt um evruna. Þetta eru kjöraðstæður fyrir þá, sem stunda gjaldeyrisviðskipti. Þeir geta veðjað á að Grikkland hrynji og evran með eða að Grikklandi verði bjarg- að. Með fyrri kostinum hrynur gengi grískra rík- isskuldabréfa, en hækkar með þeim síðari. Hættan er sú að með ákvörðun sinni ýti braskararnir undir þá þróun, sem þeir veðja á, og stuðli að því að Grikkland fari í þrot. Nú á að gefa út veiðileyfi á spekúlantana í Evrópu. Í ræðunni, sem vitnað var til í upphafi, beindi Mer- kel spjótum sínum að bandaríska fjárfestingafyr- irtækinu Goldman Sachs, sem aðstoðaði Grikki við að fela skuldir sínar þannig að ekki sæist hvað skuldir þeirra væru komnar langt yfir mörkin, sem fylgja myntsamstarfinu. Því hefur verið haldið fram að án hjálpar fyrirtækisins hefðu Grikkir ekki feng- ið að vera með í evrunni. Goldman Sachs er hins vegar beggja vegna borðsins, ráðgjafi aðþrengdra ríkisstjórna og í tygjum við vogunarsjóðina, sem nú gera áhlaup á Grikkland. Það er einnig rétt að halda því til haga að Grikkir hafa ekki verið einir um að beita bókhaldsbrögðum. Þau hafa líka verið vinsæl á Ítalíu og í Portúgal. Í grein í tímaritinu Euromoney árið 2005 var talað um að ríkisstjórnir Evrópu hefðu Enron-vætt skuldir sínar. Ástæðan fyrir því að þessum brögð- um er beitt er sú hvað reglurnar um skuldsetningu ríkja í Evrópu eru strangar. George Soros varð heimsfrægur 1992 þegar aðför hans að breska pundinu gerði hann að millj- arðamæringi. Hann þurfti að kaupa og selja gjald- eyri. Nú eru notaðar skuldatryggingar, sem Soros kallar gereyðingarvopn. Á nokkrum vikum tvö- faldaðist skuldatryggingarálagið á grískum rík- isskuldabréfum. Þeir sem fjárfestu á réttum tíma gátu tvöfaldað fjárfestingu sína. Þegar Lehman-banki fór á hausinn síðsumars 2008 fór fram umræða um að setja þyrfti ramma utan um viðskipti með skuldatryggingar. Ekkert var aðhafst og nú súpa menn seyðið af því. Ekki er víst að það dugi til að flæma spekúlantana burt að bjarga Grikkjum. Marc Chandler, sem er yf- ir gjaldeyrisviðskiptum í bankanum Brown Brot- hers Harriman, segir í viðtali í Der Spiegel að þá leiti menn að „löndum með svipað DNA: háan fjár- lagahalla, slæmar fjárhagstölur. Síðan verður sagt: gerum áhlaup á Spán. Eða: nú skulum við komast að því hvað vasar Evrópu eru djúpir í raun“. Á Evrópa svar við áhlaupinu? Nú á að svara atlögu alþjóð- legra fjármálafyrirtækja Grikkland rambar á barmi gjaldþrots og allt logar í verkföllum og óánægju. Lögregla stendur vörð fyrir utan Seðlabankann í Aþenu. Reuters Angela Merkel, kanslari Þýskalands, beinir spjótum sínum að alþjóðlegum fjármálafyrirtækjum. Reuters Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Vill reglur Jón Daníelsson, hagfræðingur við London School of Econo- mics, sagði í viðtali við Morg- unblaðið í nóvember 2008 að taka yrði upp staðlaða samn- inga um skuldatryggingar (e. Credit default swap). Aðeins þannig yrði ljóst hver skulda- staðan væri á hverjum tíma og hver skuldaði hverjum hvað. Þessir samningar væru ógagnsæir og meginástæða þess að illa fór. Hvað ræður för? Málþing Sjónarhóls um greiningar og þjónustu við börn með sérþarfir fimmtudaginn 4. mars kl. 12.30–16.30 á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík Á málþinginu verður fjallað um hvort greiningar hafi áhrif á það hvort og hvernig þjónustu börn fá. Fagfólk, foreldrar, systkini, afar og ömmur og allir þeir sem láta sig málefni barna með sérþarfir varða eru hvattir til að mæta. Skráning fer fram á heimasíðu Sjónarhóls www.sjonarholl.net

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.