SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 20

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 20
20 28. febrúar 2010 Losna undan djöflinum sem öllu ræður Hjónin Helga Vilborg Sigurjónsdóttir og Kristján Þór Sverrisson starfa sem kristniboðar í af- skekktum dal í Eþíópíu, Voito, þar sem þau búa ásamt fjórum ungum börnum sínum. Texti: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Ljósmyndir: Árni Torfason arnitorfa@gmail.com V ið höfum köllun fyrir þessu starfi. Kristniboð í Eþíópíu er nokkuð sem við Helga höfðum rætt oft síðan við byrjuðum að vera saman,“ sagði Kristján Þór þegar blaðamaður náði í hann í síma þar sem hann var staddur eina 200 kílómetra norðan heimilis þeirra. Þar var ég heppinn því suður í Voito-dalnum er mjög ótryggt símasamband. Íslenskir kristniboðar hafa áratugum saman starfað í Afríku. „Helga er alin upp í kringum þetta starf því tveir föð- urbræður hennar hafa verið kristniboðar, annar hér í Eþíópíu og hinn í Kenía þar sem þeir voru með fjölskyldur sínar,“ segir Kristján. Tæp fimm ár eru síðan hjónin fóru utan og þau flytja heim á ný í sumar. „Við verðum heima í að minnsta kosti tvö ár en það er aldrei að vita nema við förum aftur eitthvert út. Þrátt fyrir að við getum aldrei hjálpað öllum er mjög auðvelt fyrir vesturlandabúa, með öll sín tæki og tól, að hjálpa – og það er mjög gef- andi.“ Fyrstu þrjú árin var fjölskyldan – hjónin og þrjú börn; Margrét Helga, Jóel og Dag- bjartur Elí sem þá var nýfæddur – í höf- uðborginni Addis Abeba. Í upphafi settust Kristján og Helga á skólabekk til þess að læra opinbert tungumál innfæddra, am- harísku, og kenndu síðan við háskóla kirkjunnar. „Þetta er fimm milljón manna kirkja sem á háskóla í Addis Abeba þar sem er tónlistardeild, guðfræðideild og stjórnunardeild.“ Hann kenndi við þá síð- astnefndu en hún við tónlistardeildina. Fjórða barn hjónanna, Davíð Ómar, fæddist í Eþíópíu árið 2007 og fljótlega eft- ir það færði fjölskyldan sig um set. „Það var fyrir einu og hálfu ári að stjórn kirkj- unnar hér úti ákvað að flytja okkur í Voito-dalinn til þess að sinna hefðbundnu kristniboði meðal fólksins.“ Voito er í suðvesturhluta landsins, ná- lægt landamærum Kenía. Viðbrigðin voru gríðarleg; mun meira að fara frá stórborg- inni Addis til Voito en frá Íslandi til Addis, segir Kristján. Bæði er staðurinn mjög af- skekktur og veðurfarið ekki beinlínis sniðið fyrir Íslendinga. „Þetta er eins og í bakaraofni; þarna er steikjandi hiti allan ársins hring.“ Yndislegt fólk – skelfilegir siðir Kristján Þór segir hitann ekki venjast nema upp að vissu marki. „Innfæddir kvarta meira að segja á heitasta tím- anum.“ Spurður hvort hægt sé með góðu móti að lýsa aðstæðum fyrir Íslendingum sem geta andað að sér fersku lofti hvenær sem þá lystir, segir Kristján: „Það er alveg hægt að upplifa Voito heima í stofu; þá þarf að loka öllum gluggum, setja alla ofna í botn og bíða þar til hitinn fer upp í 36 gráður. Þá er farið að nálgast innihitann, en úti eru nær alltaf 40 gráður!“ Þau Kristján lifa á meðal fólks af Feðgarnir Kristján Þór og Jóel úti á akrinum. Einn heimamanna er vel vopnaður; byssan er ekki notuð, en hún þykir mikið stöðutákn, segir íslenski kristniboðinn.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.