SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 30

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 30
30 28. febrúar 2010 Þ ingflokkar stjórnarflokkanna héldu sameiginlegan fund yfir skömmu. Það er ekki algengt í stjórnarsamstarfi að slíkt sé gert og hlýtur að vera gott merki um þétt og gott samstarf. Þó er það svo að ríkisstjórnin hef- ur ekki raunverulegan meirihluta í sínum tveimur stærstu málum, Icesave og Evrópusambandsaðild. Og það er reyndar merkilegt að þetta skuli vera tvö stærstu mál þessarar fyrstu einlituðu vinstri- stjórnar í landinu á sama tíma og eldurinn brennur svo heitt á alþýðu landsins. Reyndar lítur Samfylk- ingin svo á að þetta séu eitt mál, en ekki tvö. Það þurfi að koma þessum kröfum með illu á herðar ís- lensku þjóðarinnar, þar sem það hafi ekki tekist með góðu. Því þetta sé fyrsti aðgöngumiðinn af mörgum að ESB, og langt frá því sá dýrasti. Þar á eftir kemur landbúnaðurinn, sjávarútvegurinn og loks fullveldið sjálft. Og ekkert af þessu er heldur of dýrt. VG tuktaðir til En svo aftur sé vikið að hinum sameiginlega þing- flokksfundi. Þá hefur komið fram að þar settu samfylkingarmenn ofan í við vinstri græna fyrir að tjá sig um of um Evrópumál. Vissulega var ekki verið að halda því fram að VG mættu ekki ræða þau mál, en bara ekki núna. Tími þeirra myndi koma, þegar flokkar landsins hæfu að takast á um fullbú- inn aðildarsamning. Það er ekki að undra þótt þingmönnum vinstri grænna hafi verið nokkuð misboðið. Undrunarefnið er hitt, að þeir skuli yfir höfuð hafa látið koma fram við sig með slíkum hætti. Jóhanna Sigurðardóttir, sem eitt sinn stofn- aði sérstakan flokk, Þjóðvaka, meðal annars vegna þess að hún var á móti stefnu Jóns Hannibalssonar í Evrópumálum, réð ekki við fögnuð sinn og kæti síðast þegar Brusselmenn kynntu einhvern áfanga í Evrópuferlinu. Og þingmenn og aðrir talsmenn Samfylkingar þreytast aldrei á að tala fyrir aðild að ESB, sem allan vanda á að leysa. Þeir þurfa ekki að bíða í hálft annað ár til að öðlast málfrelsi eins og undirsátum þeirra í VG ber að gera. Hjartanlega sama um skoðun VG Björgvin Sigurðsson, formaður þingflokks Sam- fylkingar, reyndi að tala sig í gegnum fréttir Morg- unblaðsins af þessari sérstæðu uppákomu á sam- eiginlegum þingflokksfundi. Og eins og vill henda menn sem tala mikið og jafnvel hraðar en þeir hugsa missti hann þessa niðurstöðu út úr sér: „… mér er hjartanlega sama um viðhorf VG í þess- um málum.“ Þessi orð voru þó eiginlega óþörf. Það hefur blasað við lengi að Samfylkingunni er hjart- anlega sama um afstöðu VG til málsins. Eftir að þeir gátu þvingað þann flokk til að brjóta gegn stefnu- skrá sinni, heitstrengingum og loforðum í slíku úr- slitamáli telja þeir víst, að þann flokk þurfi ekki að óttast. Hann sé siðferðislega bugaður og brotinn eftir að hann kyngdi slíku máli fyrir aðgang að rík- isstjórn með Samfylkingunni. Og því verður ekki neitað að það er mikið til í þessu. Menn selja sjald- an sálu sína fyrir raðgreiðslur. Oftast er það gert í eitt skipti fyrir öll. Óþægilega margt bendir til þess að í tilviki VG sé sú sala endanleg og óriftanleg. „Hitt“ málið Og þá er það hitt málið hjá þessari tveggja mála ríkisstjórn, Icesave-málið. Steingrímur Sigfússon hefur upp á síðkastið verið í mörgum viðtölum vegna þriðja þáttar Icesave-leikritsins. Hann lætur enn eins og hann sé í hlutverki leikstjórans, sem er ekki ónýt sjálfsblekking. Sérstaklega þar sem hlut- verk Steingríms í málinu minnir miklu meira á rulluna, sem sendillinn í Þjóðleikhúsinu fékk eitt sinn að spreyta sig á. Hann lék „fótatak í fjarska“. Og hvernig mætti það vera að Steingrími væri fært burðarmeira hlutverk eftir fyrri frammistöðu sína. Hann hefur tvívegis komið heim með samning. Sá fyrri var að mati Steingríms glæsilegur. Langbesti samningur sem nokkur von var að fá, sagði hann þá. Þingið setti samningagerðinni slíka fyrirvara að kröfuþjóðirnar töldu hana þar með úr sögunni. Þá kom Steingrímur heim aftur og var þá búinn að eyðileggja fyrirvarana. Samstarf í þinginu fór sam- stundis veg allrar veraldar. En eftir þindarlausar umræður um nýjan samning Steingríms samþykkti stjórnarmeirihlutinn loks lög um ríkisábyrgð. Af því tilefni sagði Steingrímur að menn mættu treysta því að fullreynt væri nú að lengra yrði ekki komist. En Adam hafði ekki langa viðveru í Paradís frekar en fyrri daginn. Fjórir stjórnarþingmenn, sem samþykktu lögin um ríkisábyrgð nauðugir, skoruðu á forsetann úr ræðustól Alþingis að stað- festa þau ekki. Sama gerðu sextíu þúsund Íslend- ingar til viðbótar. Forsetinn, sem nýkominn var illa laskaður úr ókræsilegum félagsskap, hafði enga stöðu. Hann varð að synja lögunum staðfestingar. Og nú var fokið í flest skjól ríkisstjórnarinnar. En þá kom stjórnarandstaðan til skjalanna. Og Stein- grímur fann nýja von. Ekki er hægt að áfellast stjórnarandstöðuna. Hún vildi sýna ábyrgð- arkennd á alvarlegum tímum, í stað þess að slá pólitískar keilur gagnvart ríkisstjórn í þröngri stöðu. Reyndar flögraði slík hugmynd aldrei að Steingrími J. Sigfússyni á löngum og margorða stjórnarandstöðuferli. En hann tók hjálpinni fegins hendi. Og enn hélt hann áfram að tilkynna frétta- mönnum um nýja áfanga í samningaferlinu og nú sem talsmaður einhvers konar þjóðstjórnar, sem hann hafði þó sloppið við að setja formlega á lagg- irnar. Og enn voru það samfelldir sigrar. Maðurinn sem var svo oft búinn að segja þjóðinni, að ekki væri hægt að komast hænufeti lengra, sagði í einu af ótal viðtölum, að nú væru kröfuþjóðirnar búnar að slá eina 80 milljarða af vaxtakröfu sinni. Áttatíu milljarðar eru peningar líka. Svona rétt tæplega ein Kárahnjúkavirkjun eða svo. Svo maðurinn sem til- kynnti fyrir tveimur mánuðum að alls ekki yrði lengra komist hafði þá að minnsta kosti verið að hafa af þjóð sinni áttatíu milljarða króna. Og það Hörgárdalur snævi þakinn. Reykjavíkurbréf 26.02.10 Fótatak í fjarska

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.