SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 31

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 31
28. febrúar 2010 31 Þ að er ánægjulegt að fylgjast með „undrabörnunum frá Perú“ á Reykjavík- urskákmótinu, en Steinunn Þórhallsdóttir ræðir við Cori-systkinin Jorge og Daysi í Sunnudagsmogganum. „Ég var sex og hún var átta og pabbi kenndi okkur mannganginn,“ segir Jorge aðspurður hvenær þau lærðu að tefla. „Þá var skákin ekki svo þekkt í Perú en hún er það núna. Þetta hefur ekki alltaf verið auðvelt en okkur finnst bara svo gaman að keppa á mótum og ferðast og hitta nýtt fólk.“ Faðir þeirra, sem varla kunni mannganginn er þau fóru fyrst saman á námskeið, gætir þess að þau séu búin að læra áður en hann hleypir þeim að taflborðinu, en tekur fram að skákin sé góð íþrótt, því hún þjálfi hugsunina. Cori-systkinin eru þjóðhetjur í Perú. Ekki þarf meira til að vekja innblástur heilli þjóð. Fyrir vikið eru fjölmargir krakkar þar í landi þaulsætnir við skákborðið, leggja rækt við heilbrigt áhugamál sem þroskar hugann. Friðrik Ólafsson vakti mörgum innblástur hér á landi á sínum tíma, er hann komst í fremstu röð stórmeistara í heiminum. Heimsmeistaraeinvígi Fischers og Spasskís ýtti svo frekar undir áhugann og skyndilega varð skákin þjóðaríþrótt. Það sýnir vel mikilvægi þess að eiga sér fyrirmyndir. Íslendingar eiga orðið marga stór- meistara, sem eru á launum hjá ríkinu, og þegar horft er yfir þátttakendalistann á Reykja- víkurskákmótinu, vaknar sú spurning hvort ekki megi nýta þann auð betur, skákinni til framdráttar. Er ekki ástæða til að taka upp fyrirkomulag sem er hvetjandi til langs tíma, í stað þess að einblínt sé á stórmeistaratignina sjálfa? Annars hefur mikil vakning orðið í skákinni á undanförnum árum, ekki síst í æskulýðs- starfi. Og það er gaman að fylgjast með ungu skákmönnunum sem eru farnir að gera sig gildandi á Reykjavíkurskákmótum. Þetta er tækifæri fyrir þá til að etja kappi við skák- meistara sem koma hvaðanæva úr heiminum. Ekki má gleyma því að skákin er alþjóðlegt tungumál! Og Reykjavíkurskákmótið opnar glugga út í heim. Líka fyrir áhorfendur! Vart er hægt að hugsa sér betri og hollari skemmtun fyrir fjölskyldur en að fjölmenna í Ráðhúsið með krakkana, sem geta fylgst með krökkunum Jorge og Daysi eiga í fullu tré við fullorðna á reitum taflborðsins. Ekki er síður spennandi að fylgjast með Illya Nyzhnyk, sem er aðeins 13 ára, og getur náð sínum þriðja stórmeistaraáfanga á Reykjavíkurskákmótinu, en þá leysir hann Jorge af hólmi sem yngsti stórmeistari í heiminum. Nyzhnyk gerði einmitt jafntefli í annarri umferð við elsta keppanda mótsins, finnska stórmeistarann Heikki Westerinen, sem fæddur er árið 1944 og tefldi fyrst á ólympíu- skákmóti árið 1962, en síðast árið 2006! Það fá því allir eitthvað fyrir sinn snúð. Nú þegar skákkennsla er byrjuð í barnaskólum, að vísu ekki öllum því miður, væri ekki úr vegi fyrir skólana að tengja Reykjavíkurskákmótið inn í skólastarfið með einhverjum hætti. Ekki vantar fyrirmyndirnar þar. Skákin er þjóðaríþrótt og verður það vonandi áfram. Skákin er þjóðaríþrótt „Ég vil lýsa því yfir, svo það sé eng- inn misskilningur á ferðinni: Ég hef aldrei, aldrei slegið til nokkurs manns á ævinni.“ Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, sem í vik- unni var sakaður um skapofsa og að leggja hend- ur á starfsfólk sitt. „Flokksmenn hafa talað og menn hljóta að sætta sig við niðurstöðuna.“ Ármann Kr. Ólafsson, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópa- vogi. „Hann hefur eiginlega meira álit á mér en ég sjálf- ur.“ Sean Burton, hetja Snæfellinga í bikarúrslitaleiknum í körfubolta gegn Grindavík, um þjálfara sinn, Inga Þór Steinþórsson. „Hún er eina konan sem ég hef laðast að.“ Kvikmyndaleikkonan Lindsey Lohan um fyrrverandi kær- ustu sína, Samönthu Ron- son. „Nú þurfum við að fara að draga fyrir gluggana.“ Halla Þorsteinsdóttir, íbúi við Selvogsgrunn í Reykjavík, eftir að röð 10 metra hárra aspartrjáa var höggvin niður án samráðs við íbúa í grennd- inni. „Við vorum öll orðlaus og ég skalf.“ Elín Arnarsdóttir, kærasta Króatans Ivica Kostelić, sem vann til silfurverðlauna í alpatvíkeppni á Ólympíuleikunum í Vancouver. „Það er enginn að reyna að herma eftir kónginum, enginn getur orðið jafn flott- ur og hann var.“ Friðrík Ómar, sem syngur lög Elvis Presley í Salnum í Kópavogi. „Við erum bara venjulegt fólk, hvort sem þið trúið því eða ekki!“ Björg Brjánsdóttir MR-ingur um samskælinga sína. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal var fallega gert af fréttamönnunum að láta vera að minnast á þetta við hann. Nema þeim hafi ekki hug- kvæmst það. Getur það verið? Allir mega tjá sig nema þjóðin Og þegar síðast fréttist þá voru Steingrímur, og ein- hver sagði einnig Jóhanna, að segja að enn væri von til þess að hægt væri að koma í veg fyrir að þjóðin fengi að tjá sig um málið. Af hverju er svo mikilvægt að hún fái ekki að tjá sig um málið? Steingrímur er búinn að tjá sig um það „út í eitt“ eins og unglingarnir segja. Ekki hefur það komið að góðu gagni. Er eitthvað að því að þjóðin fái að segja sitt um málið? Ríkisstjórnin átti þann kost eftir synjun forsetans að lýsa því yfir að færi úrskurður þjóðarinnar gegn rík- isábyrgðarlögunum þeirra myndi hún segja af sér. Hún ætlaði með öðrum orðum að standa eða falla með verkum sínum. Til þess hafði hún ekki kjark. Slík yf- irlýsing hefði þó verið í fullu samræmi við viðteknar skoðanir fræðimanna. De Gaulle, mestur stjórnskör- ungur Frakka á síðari tímum, setti höfuð sitt að veði í þjóðaratkvæðagreiðslu og vann hana. Að vísu er óvið- eigandi að bera núverandi stjórnvöld á Íslandi saman við hann. Hann var í senn afgerandi og hugaður. Síðar lét hann aðra þjóðaratkvæðagreiðslu lúta sömu lög- málum. Þegar hún fór á annan veg en forsetinn vildi sagði hann af sér þegar í stað. Vonandi fer væntanleg þjóðaratkvæðagreiðsla fram þrátt fyrir að enn sé verið að paufast gegn henni. Og þá er auðvitað mikilvægt upp á framhaldið að hún verði afgerandi. Að því loknu geta menn andað rólega. Beðið stjórnarskipta í Bretlandi og Hollandi. Kjósi hin- ar nýju stjórnir að banka á dyr með haustinu er sjálf- sagt að huga að því, hvað þær hafi fram að færa. En auðvitað væri miklu betra að það yrði ekki Stein- grímur J. Sigfússon sem þá yrði til andsvara. Best væri að hann hefði þá helgað sig því hlutverki, sem hann hefur sýnt að hann getur valdið. „Fótatak í fjarska“ er eins og sniðið fyrir hann með sama hætti og Pétur Gautur var fyrir Gunnar Eyjólfsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.