SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 36
36 28. febrúar 2010
É
g fékk fyrstu saumavélin frá
henni móður minni þegar ég var
fimm ára og hún gekk fyrir
batteríum. Ég hef alltaf verið að
sauma og skapa en ég hef ekki gert mikið í
því að koma mér á framfæri,“ segir Þór-
hildur Jóhannesdóttir fatahönnuður. Hún
sigraði í fatahönnunarkeppninni Fresh
Fish 2010 sem fór fram í Gautaborg um
síðustu helgi. Merki Þórhildar heitir TOTA
og vinnur hún nú í því í samstarfi við
systur sína, Írisi Jóhannesdóttur, að koma
því á framfæri í Stokkhólmi þar sem hún
býr.
„Eftir að hafa verið heima í nokkur ár
ákvað ég að flytja hingað í apríl í fyrra því
ég hafði búið hér áður í hálft ár. Það er
auðveldara að hafa tungumálið þegar
maður er að reyna að byggja upp tengsla-
net og koma sér inn í bransann. Ég á líka
tvær systur hérna úti. Bransinn hér er
mjög lítill og það er erfitt að vera ut-
anaðkomandi en þetta hefur gengið vel
hjá mér enda höfum við unnið stíft að því
að koma merkinu áfram. Þegar ég kom til
Stokkhólms byrjaði ég á því að halda
tískusýningu til að opna smádyr og vekja
athygli á mér og mér hefur gengið vel að
kynnast fólki,“ segir Þórhildur. Hún hef-
ur lítið auglýst fatamerki sitt á Íslandi og
ekki verið með það til sölu. „Ég hef haldið
þrjár tískusýningar á Skólavörðustígnum
en aldrei gert neitt meira úr því og aldrei
selt hönnunina mína. Nema núna, þegar
ég kom út til Stokkhólms og fór að ein-
beita mér að því að koma mér áfram.“
Hápunkturinn
Fatahönnunarkeppnin Fresh Fish, sem
Þórhildur vann, var nú haldin í fjórða
sinn, er hún stór í sniðum og með stóra
styrktaraðila að baki sér að sögn Þórhild-
ar. Í sigurlaun mun hún vinna að nýrri
fatalínu í samstafi við www.nelly.com
sem er einn stærsti styrktaraðili keppn-
innar.
„Nelly.com er mjög stór netverslun og
mun ég framleiða fatalínu fyrir hana. Ég
fékk líka tuttugu þúsund sænskar í pen-
ingum til þess að framleiða næstu línu og
svo fékk ég ferð að eigin vali.
Sigur í þessari keppni er algjörlega það
stærsta sem hefur gerst á mínum ferli. Ég
er að fara á fund með Nelly.com núna þar
sem við munum ræða ferlið og skipuleggja
línuna sem ég hanna fyrir þau. Hún verð-
ur mjög mikið innblásin af mér en ég býst
fastlega við að ég þurfi að taka inn í
myndina þeirra markaðshóp sem er
reyndar stór og breiður svo ég efast um að
það verði settar á mig hömlur.“
Rúmlega 130 hönnuðir sóttu um að vera
með í Fresh Fish í ár en aðeins 30 fengu að
taka þátt. Þórhildur dæsir þegar hún rifjar
upp aðdragandann að keppninni. „Ég
vann dag og nótt fyrir þessa helgi en við
vorum samt á síðasta snúningi. Ferðin til
Gautaborgar gekk svo brösulega, það var
snjór og óveður og við komum seinastar á
staðinn. Allir fengu einn dag til að setja
upp básana sína en við settum minn upp á
þremur tímum. Það var ekki beint æð-
islegt að byrja á svona stressi,“ segir Þór-
hildur og hlær.
Nútímaleg og tímalaus
Fresh Fish er bæði tískuráðstefna og
hönnunarkeppni og stóð yfir heila helgi.
Framkvæmd keppninnar er á þann hátt
að hver hönnuður setur upp 20 fermetra
sýningarbás ásamt því sem fatnaður frá
honum er sýndur á sýningarpalli þrisvar á
dag.
„Það er mikið af bransafólki þarna og
mörg fyrirtæki sem eru að leita sér að
hönnuðum. Þetta er hálfgert markaðstorg
fyrir unga hönnuði og það getur skipt
miklu máli að komast þarna að.
Ég setti upp litla búð í básnum mínum
og sýndi einn heildarklæðnað þrisvar á
dag yfir helgina. Síðan fékk ég sem sig-
urvegari tískusýningu í lokin þar sem ég
sýndi alla línuna. Þá sýningu setti ég sam-
an á hlaupum því ég áttaði mig ekki á því
að ég hefði unnið. Ég get alveg klappað
mér á bakið ef ég á það skilið en ég hugs-
aði þetta aðeins sem gott tækifæri til að
koma mér á framfæri og kynnast fólki, ég
bjóst alls ekki við að vinna,“ segir Þór-
hildur.
Í umsögn dómnefndar sagði m.a. um
hönnun Þórhildar að hún einkenndist af
munúð, hreinleika og kvenleika og henni
tækist á mjög heillandi hátt að skapa
hönnun sem væri í senn nútímaleg og
tímalaus. „Nú á tímum þegar margir
reyna örvæntingarfullt að sækja í tilteknar
stefnur stendur sigurvegarinn upp úr
Klæðileg,
rómantísk
og kvenleg
Þórhildur Jóhannesdóttir sigraði í sænskri fata-
hönnunarkeppni með merki sitt TOTA
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Þórhildur á sigurstundu í Gautaborg.
Frá sýningu Þórhildar á Fresh Fish.
Ljósmyndari/Peter Lindberg
Stuttur, sætur og stelpulegur kjóll. Röndótt og rómantískt útlit.
Ljósmyndari/Börkur Sig.
Klæðilegur svartur kjóll frá TOTA.