SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 54

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 54
54 28. febrúar 2010 Í Kling og Bang galleríi stendur nú yfir sýning á teikningum valdra íslenskra samtímamyndlist- armanna. Sýningin er hluti af og raunar hápunktur rannsóknar mannfræðingsins Elizabeth Hodson sem er að vinna doktorsritgerð um teikningu í ljósi mannfræðinnar við Aberdeen-háskólann í Skotlandi. Hodson heimsækir listamennina á vinnustofuna, fylgist með ferlinu og skoðar hvernig teikningin á sér stað í bilinu á milli vitsmunalegrar og líkamlegrar þekkingar og hvernig hún gerir þetta bil sýnilegt og merking- arbært. Hodson hefur áhuga á að rannsaka hvernig maðurinn safnar saman upplifun um heiminn og hvern- ig hann tjáir hann í teikningu. Þessi áhugi er ekki nýr af nálinni þótt teikningin eigi sérstaklega upp á pallborðið í listheiminum um þessar mundir. Súrrealistar höfðu t.d. sérstakan áhuga á sambandi hugar og handar, en ekki síst sambandi handarinnar við undirmeðvitundina og hvatalífið sem býr í líkamanum. Hodson nálgast verkefnið meira frá sjónarhorni mannfræðinnar en listarinnar. Sýningin er liður í að gera sér hugmynd um teikninguna í tengslum við um- hverfið, einstaklingsupplifunina sem samtímis end- urspeglar hið þjóðfélagslega og samspilið milli stað- bundinnar og alþjóðlegrar listaumræðu. Textinn sem fylgir sýningunni er þó of almennur um teikningar, eðli þeirra og einkenni til að hægt sé að fá innsýn inn í mögulegar niðurstöður rannsóknarinnar. Hvort sýningin nær að setja fingurinn á eða skilgreina sérstöðu íslenskrar listar eins og Hodson vonast eftir er í eðli sínu algerlega háð úrvinnslunni og nær ekki flugi á sjálfri sýningunni nema meira verði í lagt, t.d. málþing, umræður eða fræðileg skrif. Hér hefði úrdráttur úr rit- gerðinni komið sér vel. Sýningin sjálf er látlaus og falleg þar sem teikningin fær að njóta sín á sínum eigin forsendum. Kannski er hún samt eilítið einsleit, eins og margir listamenn teikni á mjög svipaðan hátt hvort sem sú sé raunin eða hvort verkin séu meðvitað valin með það í huga. Sérstaða ís- lenskrar listar liggur kannski þar, og er jafnvel valin. Sú spurning vaknar hvort einhver munur sé á mann- fræðilegri rannsókn og listfræðilegum pælingum, hvort mannfræðirannsókn sé ekki jafn háð sjónarhorni eða geðþótta og listfræðileg rannsókn. Myndlistin sem fræðigrein og mannfræði sem listform? Allavega hefði verið áhugavert að fá meiri innsýn í rannsóknina sjálfa til að meta muninn þarna á milli. Lesið í jaðar ís- lenskra teikninga MYNDLIST Jaðarsýn bbbnn Kling og Bang gallerí, Hverfisgötu Sýningin stendur til 14. mars, opið fimmtudaga til föstudaga frá kl. 14-18. Aðgangur ókeypis. Þóra Þórisdóttir „Sýningin sjálf er látlaus og falleg þar sem teikningin fær að njóta sín á sínum eigin forsendum.“ Verk eftir Magnús Árnason. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ef segja má að helgin byrji á föstudagskvöldi þá byrjar helgin mín á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem snillingurinn Víkingur Heiðar spilar Chopin. Þaðan fer ég svo endurnærð og full orku að hitta góðar vinkonur mínar. Ein þeirra, búsett á Ólafsfirði, er að koma í bæj- arferð og við ætlum að kynna hana fyrir undursemdum stórborgarinnar í mat og drykk. Laugardagurinn verður eflaust hefðbundinn framan af. Eftir langan morgunverð og dagblaðalestur tekur skrúbb- urinn við. Svo fær útivistin með fjölskyldunni sinn sess. Hvort það verður sundlaugin eða langþráð sleðaferð fer líklega eftir óskum þess yngsta. Um kvöldið er okkur svo öllum boðið í Food and Fun-stemningu til vina okkar. Dagskrá sunnudagsins er ennþá galopin. Þannig eru þeir líka bestir. Þó má reikna með að hann fari að einhverju leyti í fermingarundirbúning þar sem elsti sonurinn verður tekinn í fullorðinna tölu í mars. Versl- unarferð þar sem jakkaföt og lakkrísbindi leika aðal- hlutverkin er því ekki ólík- leg. Að lokum er það svo kaffi- húsaferðin þar sem ég byrja að undirbúa kynningu á tón- leikum Sinfóníuhljómsveit- arinnar í næstu viku. Þeir eru með stærri viðburðum starfsársins því þar mun stórstirnið Hilary Hahn leika fyrri fiðlukonserti Prokofiev. Helgin mín Margrét Ragnarsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands Tónleikar, útivist og verslunarferð Lesbók E ftir dágott sýningarhlé hefur Gallerí i8 fært húsakynni sín vestur á Tryggvagötuna og vígði nýtt húsnæðið nú á dögunum með einkasýningu Hreins Friðfinns- sonar, en hann varð einmitt fyrst- ur listamanna til að sýna í gall- eríinu þegar það opnaði í litlum gangi á Ingólfsstræti, mörgum til sælla minninga. Máski er það ein- hver „nostalgía“ að fá Hrein til að vígja salinn, en það er líka bráð- snjallt því hann hefur einstakt lag á að láta listina hverfa í rýmið þannig að hún virkar jafnvel eins og framlenging á því. Maður getur þannig notið rýmisins sem og listaverkanna jafnvel þó að um dæmigerða gallerísýningu sé að ræða sem samanstendur af mörg- um smáum verkum sem mér skilst að listamaðurinn hafi stjórnað frá Hollandi í gegnum „skype“. Listaverkin eru með endemum látlaus og virka afskaplega brot- hætt, svo brothætt að ég veigra mér jafnvel við að líta of snöggt á þau af ótta við að þau láti á sjá út- af föstu augnaráði. Hins vegar með áletraðan tölustafinn 8 (er það tilvísun í i8 eða eilífðartákn?). Ekki má svo gleyma plasmaskjá- verki, gervisjónbaug og kúptum speglum sem bjaga skynjunina og vekja mann um leið til meðvit- undar um sig sjálfan í samræmi við rýmið. Sýningin ber heitið More or less (Meira eða minna) og hljómar í mínum eyrum eins og kæruleys- islegt kitl undir mottó mínimal- ismans; „Less is more“ (Minna er meira) sem á að lýsa því hvers kyns fagurfræði kristallast í míni- malisma. List Hreins á vissulega heima þar inni. Ég komst hins vegar ekki hjá því að hugsa líka til Flæmska 15. aldar málarans Jan van Eyck og myndar hans af Ar- nolfini-hjónunum. Þetta málverk, sem flestum þeim sem eitthvað þekkja til í listasögunni er kunn- ugt um, olli straumhvörfum í fjar- víddarblekkingu á sínum tíma. Eitthvað mest heillandi við mál- verkið er dótið í herbergi hjónanna sem listamaðurinn hefur gefið sig að og er eins og smágerð verk útaf fyrir sig, perlufesti á vegg, flúr í kertaljósakrónu og kúptur spegill sem gefur til kynna að málverkið, sem er í eðli sínu flatt, hafi bakhlið og myndar þar með ímyndað rúm í fletinum. Virkar meira eða minna eins og sýning Hreins frá mínum bæj- ardyrum séð. haldast þau vel í hendur og eru flest í einhverju samtali við hvert annað og umhverfi sitt. Þeim er stillt upp meðfram veggjum gall- erísins, hátt og lágt. Hornin eru ekki einu sinni undanskilin, en þar verða hálfir hlutir heilir í spegilmynd í innhverfu og út- hverfu horni sem um leið skapar ímyndað rúm inn í veggina, haustlaufum er tyllt svo hóflega í einu horninu að maður stendur undir þeim reiðubúinn að grípa þau þegar þau falla og svo hangir hornlaga „svifskúlptúr“ í loftinu Arnolfini- herbergið MYNDLIST Hreinn Friðfinnsson bbbbn Gallerí i8 Opið þriðjudaga – föstudaga frá 11- 17 og laugardaga 13-17. Sýningu lýk- ur 20. mars. Aðgangur ókeypis. Jón B. K. Ransu

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.