SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Page 55
28. febrúar 2010 55
Sjöunda sinfónía Bruckners er
ógnarlega löng. Hún var á dag-
skránni á tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands á
fimmtudagskvöldið. Bruckner
var á sínum tíma talinn til tón-
skálda framtíðarinnar. Miðað
við sýnilega óþreyju sumra tón-
leikagesta má ætla að þeir hafi
viljað ferðast eina og hálfa
klukkustund fram í tímann
þegar fyrsti kaflinn var vel á veg
kominn. Svo langdreginn var
hann.
Ekki það að flutningurinn hafi
verið slæmur. Margt áhrifamik-
ið bar fyrir eyru, hápunktarnir
voru voldugir, enda útfærðir á
glæsilegan máta. Það er eitthvað
heillandi við einfaldleika tón-
málsins, sem er ekkert að flýta
sér og kemst að magnaðri nið-
urstöðu á hárréttum tíma. Að
verður að viðhalda spennunni
allan tímann.
Víkingi tókst þetta ekki alltaf.
Jú, syngjandi ásláttur einkenndi
túlkunina og auðvitað var margt
annað frábærlega vel gert, enda
píanóleikarinn með allra hæf-
ustu tónlistarmönnum landsins.
Sumt jaðraði hins vegar við að
vera langdregið, innhverf róm-
antíkin var slík að flæðið var
ekki fyrir hendi. Það vantaði
léttleikann og brilljansinn til að
ramma hið ljóðræna inn. Til að
skapa dramatískar andstæður.
Eftir því sem ég best veit var
þetta í fyrsta sinn sem Víkingur
spilar þennan konsert með
hljómsveit. Ég hugsa að hann
þurfi nokkur skipti í viðbót til
að koma verkinu virkilega á
flug.
Sinfónían var ekki alltaf sam-
taka, sem er synd, því þegar
einleikarinn var kominn al-
mennilega í gang (í síðasta kafl-
anum) virtust sumir hljóðfæra-
leikararnir búnir að tapa
einbeitingunni. Þetta dró nokk-
uð úr áhrifamætti flutningsins.
Góðir tónleikar vissulega, en
þeir hefðu getað verið betri.
bíða eftir hápunktinum í öðrum
kaflanum er vel þess virði. Og
maður fyrirgefur lengd fyrsta
kaflans þegar sá þriðji hefst.
Sprengikrafturinn þar er ótrú-
legur.
Hljómsveitarstjórinn, Pietari
Inkinen, hélt öllu í rétta jafn-
væginu og í það heila var sin-
fónían sannfærandi. Lúðrablást-
urinn var magnaður og almennt
spilaði hljómsveitin hreint og
örugglega. Það var helst síðasti
kaflinn sem virkaði skringilega
snubbóttur á eftir herlegheit-
unum á undan. Kannski hefði
mátt byggja kaflann betur upp,
huga meira að stígandinni í tón-
listinni.
Hitt verkið á dagskránni var
fyrsti píanókonsert Chopins, en
þar var Víkingur Heiðar Ólafs-
son í aðalhlutverki. Píanókons-
ertinn er sérkennilegur að því
leyti að hljómsveitarrullan er
oftast bara framlenging á hljóm-
um píanósins. Það er engin
spenna á milli einleiksins og
hljómsveitarinnar. Einleikurinn
er einmitt það, EINLEIKUR, og
honum er aldrei ógnað. Þetta
gerir hlutverk píanóleikarans
býsna vandasamt, hann einn
Magnaður lúðrablástur
TÓNLIST
Sinfóníutónleikar
bbbnn
Háskólabíó
Verk eftir Chopin og Bruckner. Sinfón-
íuhljómsveit Íslands lék. Einleikari:
Víkingur Heiðar Ólafsson. Stjórnandi:
Pietari Inkinen. Fimmtudagur 25.
febrúar.
Víkingur Heiðar Ólafsson lék einleik í píanókonsert Chopins og einkenndi „syngjandi ásláttur“ túlkunina.
Jónas Sen
Whitney-tvíæringurinn var
opnaður fyrir helgi í samnefndu
safni í New York sem helgað er
bandarískri myndlist. Tvíæring-
urinn er ætíð mál málanna í
myndlistarlífinu vestra, um-
deildur og umtalaður, en þar
reyna sýningarstjórar iðulega að
bregða kastljósi á það forvitni-
legasta í listinni í landinu. Stund-
um tekst þeim einnig að vísa til
þess sem koma skal, um leið og
eldri listamenn fá að njóta kast-
ljóssins í fylgd yngra fólks.
Gagnrýnandi The New York
Times segir að Whitney-
tvíæringurinn beri nú augljós
merki efnahagssamdráttarins; að
þessu sinni eru verk 55 lista-
manna sýnd, helmingi færri en
fyrir tveimur árum. Ætlunarverk
sýningarstjóranna hafi hins veg-
ar tekist. Hér eru engir stælar en
mikið unnið með alls kyns til-
brigði við hefðbundin form og
söguleg stílbrigði; til dæmis til-
brigði við abstrakt málverk og
gjörningalist. Stutt er þó í ögr-
andi verk, og bestu verkin sýna
oft að lifandi sköpun á sér stað
fyrir utan „myndlistarverk-
smiðjurnar“.
Bestu verkin á tvíæringnum
segir rýnirinn vera myndbönd og
ljósmyndir, þótt málverkið sé
einnig nokkuð líflegt.
Myndbanda- og ljós-
myndaverk á tvíæringi
Ljósmyndaverk eftir James Case-
bere vekja athygli.
LISTASAFN ÍSLANDS
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Ævispor
Útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur
Endurfundir
Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna
Fyrir ári
Segja þessir hlutir söguna?
Opið alla daga nema mánudaga 11-17
Aðgangur ókeypis fyrir börn
www.thjodminjasafn.is - s. 530 2200
Söfnin í landinu
16. janúar - 28. febrúar
Endalokin - Ragnar Kjartansson
Ljósbrot - Ingunn Fjóla
Ingþórsdóttir
Sunnudag 28 febrúar kl. 15
- Leiðsögn um sýningarnar
og síðasti sýningardagur
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
í samstarfi við Listasafn Íslands
ÍSLENSK MYNDLIST
hundrað ár í hnotskurn
kaffistofa – leskró
barnahorn
OPIÐ: Fim.–sun. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
ÍSLENSK KVIKMYNDAVERK 2007-2009
25.-28.2. 2010 - Ókeypis aðgangur
KRÍA BREKKAN
TÓNLEIKAR - sunnudag kl. 21
ÞANKAHRÍÐ LISTAHÁSKÓLANEMA
YFIRFERÐ - sunnudag kl. 14
LOKAHÓF - sunnudag kl. 15
Allir velkomnir!
SAFNBÚÐ B Ó K A M A R K A Ð U R 18.2-7.3.
VALDIR TITLAR - allt að 70% afsláttur
LAGERHREINSUN - Fríir bæklingar, lítið gölluð plaköt,
kort og annað myndlistartengt efni.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir!
ÓKEYPIS AÐGANGUR - www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009.
Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd.
„Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og
Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta.
Póstkortaár. Vingjarnleg póstkort frá Veru og Jarþrúði
til ókunnugs fólks úti í heimi.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn: Björn Birnir
Sýningunni lýkur um helgina.
Leiðsögn listamannsins
sunnudag kl. 14.00.
Byggðasafn: Völlurinn
Leiðsögn sun. kl. 15.00
Opið virka daga 11.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
VÍKINGAHEIMAR
Skipið Íslendingur og
sögusýning
- Söguleg skemmtun
VÍKINGABRAUT 1
- REYKJANESBÆ
Opið alla daga
frá 11:00 til 18:00
Sími 422 2000
www.vikingaheimar.com
info@vikingaheimar.com