SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Síða 2
2 7. mars 2010
4-9 Spegill vikunnar
Fljúgandi fiskar, toppbaráttan í ensku úrvalsdeildinni, Michael Foot
allur og fór neyðaraðstoðin í Eþíópíu í hernað?
22 Bjart yfir Listahátíð í Reykjavík
Listahátíð í Reykjavík fagnar fertugsafmæli sínu á þessu ári. Hrefna
Haraldsdóttir, listrænn stjórnandi hennar, er bjartsýn á framtíðina.
27 Er þyngdarlögmálið ímyndun?
Kristján Leósson eðlisfræðingur og Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld
og rektor LHÍ, skrifa um vísindi á mannamáli.
30 Stígamót í tuttugu ár
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, lætur sig dreyma um að hægt
verði að breyta Stígamótum í sólarhringskvennaathvarf.
34 Á vettvangi hamfara
Ingvar Á. Þórisson kvikmyndagerðarmaður
var fluga á vegg meðan Íslenska alþjóða-
björgunarsveitin var á Haítí fyrir skemmstu.
37 Orrusta um árshátíð
Stjórn nemendafélags FB vildi halda árshátíð nemenda úti á landi en
stjórnendur skólans lögðust gegn því. Málum var miðlað að lokum.
Lesbók
48 Skaut Eiður í slána eða slánna?
Baldur Hafstað sér um Tungutak vikunnar.
48 Örlög milljóna manna
Grafíklistakonan Sigrid Valtingojer sýnir verk sín, gömul og ný, í Lista-
safni ASÍ á 75 ára afmælinu.
52 Verður öfgum svarað með öfgum?
Rýnt í nýja bók eftir Ian Buruma, Guðirnir tamdir.
38
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Golli af Birni Thors leikara
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags-
moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
40
Augnablikið
Þ
etta er dagurinn sem rithöfundar skríða
úr hýði sínu og blanda geði. Það er höf-
undakaffi í höfuðstöðvum Forlagsins.
„Það eru allar félagslegar æfingar
þegnar í þessu einmanalega starfi,“ segir Sigurður
Pálsson kíminn – á sinn skáldlega hátt.
Hann vinnur við æskudrauma þessa dagana –
skrifar minningabók um barnæskuna, sem kemur
þó ekki út fyrr en á næsta ári. Þetta er því ekki
framhald Minningabókar, sem var frá Parísar-
árunum, „heldur afturhald!“
Svo hrósar hann kaffivélinni.
– Jafnast hún á við Le Sélect?
„Hún fer langleiðina,“ svarar hann. „Ljósin í
henni minna mann á diskótek fremur en nokkuð
annað. Sem er fínt!“
Hann gengur að kaffivélinni.
„Blessaður Siggi!“ er kallað digrum rómi. Einar
Kárason er mættur í hús.
Þá eru þrír ferðafélagar frá Route 66 á staðnum,
rithöfundarnir Einar og Ólafur Gunnarsson, og
forleggjarinn og myndasmiðurinn Jóhann Páll
Valdimarsson, en þeir fóru á „reykspólandi Kadi-
lakk yfir Ameríku“. Árni Bergmann hefur frekar
beint sjónum sínum austur á bóginn, enda talar
hann rússnesku. Þó ekki þennan daginn. Fleiri
höfundar skjóta upp kollinum, Stefán Máni, Sig-
rún Eldjárn, Bragi Ólafsson og Bergljót Arnalds
með nýfætt stúlkubarn.
„Þarna er yngsti höfundurinn kominn – hún er
fjögurra mánaða,“ segir Sigurður.
Einhver hefur orð á því að hún muni landið erfa.
„Það verður nú lítið annað en bækur,“ segir
Bergljót.
„Literatúrinn!“ segir Einar.
Hann gaumgæfir ungabarnið.
„Hvað heita svona fínar manneskjur?“
„Hún er ekki komin með nafn,“ svarar Bergljót.
Einar stenst ekki mátið.
„No Name-manneskja ársins!“
Sigurður grípur orðið.
„Mér hefur alltaf þótt nafn franskrar dóttur
André Breton fallegt. Hún heitir Aube. Dögun.“
„Ég ætlaði að skíra Forlagið Dögun á sínum
tíma, en þá var til byggingarfélagið Dögun,“ skýt-
ur Jóhann Páll inn í.
„Þú mælir með Dögun?“ spyr Bergljót.
„Já,“ segir Sigurður.
„En byggingarfyrirtækið?“ spyr Einar.
Eydís berst í tal sem nafn.
„Eighties?“ spyr Sigurður.
En hann er ekki hættur við Dögun.
„Það þyrfti eins atkvæðis „no nonsense“ nafn
með Dögun. Dögun Sif.“
„Er hún ekki komin með nafn?“ spyr Sif Jó-
hannsdóttir, sem sest við borðið með fimmtu
kynslóð forleggjara í fanginu.
„Dögun?“ segir Bergljót spyrjandi.
„Ókei,“ segir Sif.
„Ef bóndinn samþykkir,“ flýtir Bergljót sér að
bæta við þegar hún sér blaðamann skrifa.
pebl@mbl.is
Sigurður Pálsson, Jóhann Páll Valdimarsson, Ólafur Gunnarsson og Bragi Ólafsson í höfundakaffinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Literatúrinn!
7. mars
Í dag verða haldnir fjórðu tónleikarnir í barna- og fjölskyldutónleikaröðinni
Töfrahurð í Salnum í Kópavogi, en hugmyndin á bak við röðina er að börn-
in fái að taka þátt í og kynnast tónlistarsköpuninni. Að þessu sinni mun
klassísk danstónlist, m.a. eftir Mozart og Strauss, óma á sviðinu og verð-
ur Salnum breytt í diskótek í tilefni dagsins. Sérstakur gestur verður ten-
órinn Jóhann Friðgeir Valdimarsson, dansarar úr Listdansskóla Íslands
stíga á svið og hljómsveit hússins verður Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna. Frá kl. 12.30 til 14.30 verður götuleikhús og andlitsmálun í and-
dyrinu en dagskráin hefst kl. 13 og kl. 15.
Klassískt fjölskyldudiskótek
Við mælum með…
7. mars
Kl. 14 veitir Messí-
ana Tómasdóttir leið-
sögn um sýninguna
Strengir í Gerðubergi.
Á sýningunni má líta leikbrúður,
búninga og grímur frá nokkrum
sýningum Strengjaleikhússins og
höfðar hún jafnt til barna sem full-
orðinna.
9. mars
Trúbadorarnir og
söngvaskáldin Uni og
Jón Tryggvi halda tón-
leika á Rósenberg kl.
21. Þetta eru kveðjutónleikar í til-
efni tónleikaferðar til Bandaríkj-
anna en þau hlutu nýlega styrk frá
Reykjavík Loftbrú.
10.-13. mars
Í vikunni mun hljómsveitin South
River Band blása til alþýðu- og
heimstónlistarhátíðarinnar Reykja-
vík Folk Festival á Kaffi Rósenberg
og munu alls 14 sveitir koma fram.
www.noatun.is
Nóatún
bestir
í kjöti
20%
afsláttur
AÐ EIGIN VA
LIKRYD
DAÐ
LAMBAFILE
MEÐ FITURÖND
KR./KG
2798
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
3498