SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 53

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 53
7. mars 2010 53 15. til 28. febrúar 1. Póstkorta- morðin – Liza Mark- lund/James Patterson, JPV útgáfa 2. Loftkast- alinn sem hrundi – Stieg Larsson, Bjartur 3. Stúlkan sem lék sér að eld- inum – Stieg Larsson, Bjartur 4. Þegar kóngur kom – Helgi Ingólfsson, Ormstunga 5. Bankster – Guðmundur J. Óskarsson, Ormstunga 6. Risasyrpa – Í grænum sjó, Walt Disney/Edda-útgáfa 7. Það sem ég sá og hvernig ég laug – Judy Blundell, Mál og menning 8. Veröld sem var – Stefan Zweig, Forlagið 9. ÞÞ í forheimskunarlandi – Pétur Gunnarsson, JPV út- gáfa 10. ÞÞ í fátæktarlandi – Pétur Gunnarsson, JPV útgáfa Frá áramótum 1. Loftkast- alinn sem hrundi – Stieg Lars- son, Bjartur 2. Svörtuloft – Arnaldur Indriðason, Vaka- Helgafell 3. Stúlkan sem lék sér að eld- inum – Stieg Larsson, Bjartur 4. Póstkortamorðin – Liza Mark- lund/James Patterson, JPV útgáfa 5. Almanak Háskóla Íslands 2010 – Háskóli Íslands 6. Matur og drykkur – Helga Sigurðardóttir, Opna 7. Þegar kóngur kom – Helgi Ingólfsson, Ormstunga 8. Skemmtilegu Smábarnabæk- urnar – Ýmsir, Björk 9. Bankster – Guðmundur J. Óskarsson, Ormstunga 10. Prjónaperlur – Halldóra Skarphéðinsdóttir, Prjóna- perlur Listinn er byggður á upplýsingum frá Bókabúð Máls og menningar, Bóka- búðinni Eskju, Bókabúðinni Hamraborg, Bókabúðinni Iðu, Bókabúðinni við höfnina Stykkishólmi, Bóksölu stúdenta, Bónus, Hagkaupum, Kaupási, N1, Office 1, Pennanum – Eymundsson og Samkaupum. Rannsóknarsetur verslunarinnar annast söfnun upplýsinga fyrir hönd Félags íslenskra bóka- útgefenda. Bóksölulisti Félags bókaútgefandaN ýlistasafnið er flutt á Skúlagötuna og held- ur upp á breyting- arnar, og 30 ára af- mælið fyrir tveimur árum, með útgáfu mikils bókverks með yf- irliti yfir sýningar og starfsemi safnsins fyrstu þrjá áratugina. Í anda stofnunarinnar er bókin hálfgildings gjörningur og skýrsla í senn. Hér er engin greining eða listfræðileg úttekt; staðreynd- unum er þess í stað steypt framan í þann sem opnar bók- ina. Tíma- línan sem gengur gegnum allt verkið er upptalning á sýningum og sýn- endum. Gríðarlegur fjöldi nafna. Á milli er skotið síðum úr fundargerðarbókum, yfirlýs- ingum, boðskortum á boðskort ofan, veggspjöldum, allskyns ljósmyndum, rissum, greinum úr dagblöðum, viðtölum og leiðurum blaða. Það merkilega við þessa marglaga og iðandi samsuðu er hvað hún gengur vel upp. Ár- mann Agnarsson leiðir hönn- unarteymið sem hefur tekist að skapa festu í flæðið en um leið að hafa útlitið nægilega pönkað. Ritnefndin, sem skipuð er nú- verandi og fyrrverandi stjórn Nýló, hefur unnið gott starf við að finna öll þessi gögn til, en fyrir vikið hefur verið skapað sögulegt yfirlit sem hver og einn getur lesið á sinn hátt og lesið út úr því sína sögu. Þetta er þannig í senn fróðlegt verk og bráðskemmtilegt. Það fræðir lesandann um sögu merkilegrar menningarstofnunar, sem hefur iðulega glímt við djúpstæðan tilvistarvanda, og er um leið mikilvægt innlegg í íslenska myndlistarsögu síðustu ára- tuga. Nöfn, ártöl, boðskort – býsna fróðleg yfirsýn BÆKUR Nýlistasafnið / The Living Art Museum 1978-2008 bbbbn Sýningayfirlit Nýlistasafnins, ritstjóri Tinna Guðmundsdóttir. 2010. 360 bls. Einar Falur Ingólfsson Það er nú þannig með áhugamen um bækur að oft kaupa þeir sér bók og bók undir formerkjunum „ég les þessa seinna“. Ég sem svo margir aðrir við- urkenni fúslega að þetta hefur hent mig með nokkrar bækur. Nú er svo komið að ég er að byrja að lesa eina og eina bók sem hefur slæðst inn í bókaskápinn með þessum hætti. Ég dró fram nú í vetur og er rétt að ljúka við allgamla og um leið merka frá- sögn sem ber nafnið „Ferðasaga Árna Magnússonar frá Geitastekk 1753- 1797“. Þessi saga er rituð af honum sjálfum en það var Björn Karel Þórólfs- son sem bjó til prentunar. Bókin kom mér skemmtilega á óvart, þegar litið er fram hjá smáatriðum eins og minni Árna og vankunnáttu hans á erlendar tungur ljómar samt í gegn ein- lægni hans og ef til vill má kalla það sveitamennsku, en á góðan hátt. Árni hefur verið alla sína tíð trúrækinn og í gegnum það hefur honum tekist að sigla sinn sjó, oft í eiginlegri merkingu því Árni var afskaplega víðförull. Í end- urminningunum segir hann frá ferðum sínum til Austurlanda, Indlands, Kína og víðar á skipum danska kaup- skipaflotans, það eru hversdagslegu lýsingarnar sem vöktu langmest athygli mína. Sjúkdómar og dauðsföll sam- ferðamanna hans sem Árni áleit hvers- daglega atburði og eru nefndir sem aukaatriði frekar en aðalþáttur frásagn- arinnar eins og væri ef til vill í dag. Meiri áhersla er lögð á matföng eða öllu heldur skort þar á, allur kostur var eftir lýsingum Árna mjög svo af skornum skammti. Fyrir mér var einn þáttur ferðasög- unar athyglisverðastur en það var dvöl Árna á Indlandi, nánar tiltekið í versl- unarstöð Danska Austur-Indíafélagsins [Dansk Ostindisk Compani] í Trankeb- ar. Staðurinn var litlu meira en eitt virki, eða kastalli eins og Árni nefnir það. Þar fór fram öll verslun Dana fyrir þetta svæði , vörum safnað saman og skipað út. Virkið var víggirt og kallaðist Dansborg. Árni var að okkar mati í dag ef til vill nokkuð „naïve“ [barnslega einlægur] en, þótti meðal samferðamanna sinna hinn vitrasti – Árni var bæði læs og skrifandi, þetta kom honum oft afar vel því í þessum harða heimi 18. aldar var mikið um boð, bönn, ströff og refsingar og Árni fór ekki varhluta af þeim. Nú þegar ég er að ljúka bók Árna sé ég að ég má til með að lesa upp á nýtt Ævi- minningar Jóns Ólafssonar Indíafara, bara upp á samanburðinn. Lesarinn Anton Holt safnvörður Ferðir Árna frá Geitastekk Dansborg virkið í Trankebar (Tharangambadi) á Indlandi – snurfusað og snyrt. Sádiarabískur háðsádeiluhöfundur, Abdo Khal, hlaut í vikunni Alþjóðlegu bókmenntaverðlaunin fyrir arabískan skáldskap, fyrir skáldsögu sem nefnist á ensku Spewing Sparks as Big as Castles. Verðlaunaféð nemur 60.000 dölum en verðlaunin hafa verið kölluð „arabíski Bookerinn“. Titillinn vísar í myndlíkingu í Kóraninum fyrir víti en sagan fjallar um hörmungarnar sem geta fylgt gríðarlegum auðæfum. Khal býr í Sádi- Arabíu en bannað er að selja bækur hans þar. Abdo Khal hlaut alþjóðleg arabísk verðlaun Rithöfundurinn Abdo Khal. Endurminningabók Tonys Blairs sem kemur út í sept- emberbyrjun mun heita The Journey – Ferðalagið. Greint var frá því í vikunni að Blair muni fá 4,6 milljónir punda frá útgefandanum fyrir verkið, um 875 milljónir króna. Útgefandinn heitir því að les- endur fræðist um velgengni, deilur og vonbrigði og að frásögnin sé hrein- skiptin. Blair frestaði útgáfu bókarinnar þar til eftir kosningarnar í Bretlandi og því telja sumir blaðamenn að hann muni ekkert draga undan í lýsingum á stormasömum samskiptum við eft- irmann sinn, Gordon Brown. Í The Independent er þó vitnað í „vini“ Blairs sem segja að Blair dragi ekki fram neina hnífa, enda hafi það ekki verið stíll hans sem forsætisráðherra. Tony Blair hélt ekki nákvæma dagbók meðan hann var forsætisráðherra og tók ekki strax til við skriftir þegar hann vék til hliðar árið 2007. Útgef- andinn, Random House, hefur þó haldið áfram að þrýsta á hann; aðstoðarmenn Blairs voru farnir að taka frá reglulega tíma fyrir skrifin og þá mun hann vera afkastamikill með pennann í flug- ferðum. Blair snerti nefnilega varla á tölvu þegar hann var forsætisráðherra og skrifar með sjálf- blekungi – ritari hans slær textann síðan inn. Blair fullyrðir að hann skrifi allan textann sjálfur og notist ekki við „skuggapenna“. Winston Churchill hélt því einu sinni fram að sagan mundi fara um hann mjúkum höndum – hann hygðist skrifa hans sjálfur. Sem hann gerði. Síðan hann sté úr stóli forsætisráðherra Breta hafa allir eftirmenn hans, utan einn (Sir Alec Douglas- Homes sem ríkti í 362 daga), ritað endurminn- ingar sínar – og haft af því góðar tekjur. Blair fær 875 milljónir fyrir bók um ferðalagið Tony Blair
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.