SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 52

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 52
52 7. mars 2010 Þ að kemur ekki á óvart að menn hafi deilt um starfslaun lista- manna, slíkar deilur hafa tíðk- ast í 16.000 ár, eins og Halldór Baldursson benti svo meistaralega á í teikningu sinni í Morgunblaðinu sl. laug- ardag, og gott að skipan þeirra mála sé rædd í sífellu og velt upp spurningum eins og um tilgang, framkvæmd og ár- angur, enda hlýtur það allt að sæta sí- felldri endurskoðun. Sem togarasjómaður átti ég marga snerru við skipsfélaga mína þar sem tek- ist var á um grundvallaratriði eins og það hvaða rugl þessi list væri yfirleitt, til hvers væri verið að hlaða undir rassgatið á öllum þessum afætum og svo jafnan klykkt út með að rétt væri líka að hengja alla poppara, fyrst verið var að taka til í samfélaginu á annað borð. Það að menn deili um starfslaun lista- manna sýnir kannski best að mönnum er ekki sama um þau, en deilunar taka stundum á sig sérkennilegan blæ svo rifjað sé upp eitt ankann- legt deilumál vegna þess sem kallaðist viðbót- arritlaun um miðjan áttunda áratuginn. Einn af þeim sem fékk slík rit- laun í árslok 1975 var Dagur Sigurðarson og varð fimmtán rithöfundum tilefni að senda menntamálaráðherra bréf til að mótmæla því. Í bréfinu sagði meðal ann- ars: „Við undirrituð mótmælum þeirri ósvinnu, að úthlutunarnefnd viðbót- arritlauna […] skyldi samþykkja við- bótaritlaun fyrir árið 1974 út á umsókn Dags Sigurðarsonar fyrir pésann „Með- vituð breikkun á raskati“. Pési þessi er fimm lesmálssíður í litlu broti, fjölritaður í Letri, vírheftur í þunn spjöld. Við mótmælum því að Sveinn Skorri Höskuldsson, prófessor í bókmenntum við Háskóla Íslands og formaður úthlut- unarnefndar, skuli óátalið geta framið þennan verknað, sem telst vart annað en svívirðing við alla bókmenntaiðju í land- ínu, auk þess að bera vitni fullkomnum dómgreindarskorti bókmenntaprófess- orsins um hvað kallast getur bók.“ Sveinn Skorri svaraði smásálunum fimmtán í Morgunblaðinu 28. apríl 1976. Þá grein er að finna í greinasafni blaðins en þar segir hann meðal annars: „Það hneykslar mig að til skuli vera á Íslandi rithöfundar, sem telja það að starfsbróðir þeirra hljóti viðbótarritlaun „… vart annað en svívirðing við alla bók- menntaiðju í landinu …““ Víst var þetta aðallega pólitísk deila þess tíma, skotgrafahernaður hægri- og vinstrimanna, en ekki stórmannlega að verki staðið hjá fimmtánmenningunum. 16.000 ára deilur Orðanna hljóðan Árni Matthíasson arnim@mbl.is ’ … rétt væri líka að hengja alla poppara, fyrst verið var að taka til í sam- félaginu á annað borð H ægri flokkur Geerts Wilders fékk mikið fylgi þar sem hann bauð fram í sveitarstjórn- arkosningunum í Hollandi í liðinni viku og stefnir nú á sigur í þing- kosningunum í júní. Flokkurinn hefur sett íslam og innflytjendur á oddinn og vill banna Kóraninn, setja mörk við því hve- nær konur megi bera slæður, vísa músl- ímum úr landi og setja strangar reglur um aðlögun. Svipaðar hræringar eiga sér nú stað um alla Evrópu og er oft lýst með hugtakinu Kulturkampf – menningarátök – orði, sem notað var til að lýsa því þegar járn- kanslarinn Bismarck skar upp herör gegn katólikkum upp úr 1870. Þessi átök eru tilefni þess að Ian Buruma skrifar bókina Guðirnir tamdir, trú og lýðræði í þremur heimsálfum (Taming the Gods, Religion and De- mocracy on Three Cont- inents). Aðskilnaður ríkis og kirkju hefur nánast verið trúaratriði í stjórnmálum á Vesturlöndum, þótt trú- málin hafi lengstum verið skammt undan. Í Frakklandi var framin blóðug bylting til að losa um tak katólsku kirkjunnar á þjóðfélaginu. Viðbrögð Frakka við skóla- stúlkum með slæður er ein birtingarmynd af arfleifð þessa uppgjörs, þótt staða stúlknanna sé ósambærileg við það vald, sem katólska kirkjan hafði í Frakklandi á átjándu öld. Í Bandaríkjunum var uppgjörið milli stjórnmála og trúarbragða með allt öðrum hætti, enda ítök trúarbragða í valdastofn- unum samfélagsins hverfandi. Þeir, sem lögðu grunn að bandarísku stjórn- arskránni, lögðu áherslu á að trúin ætti ekkert erindi í stjórnmál. Thomas Jeffer- son ýtti trúnni út úr pólitíkinni og sagði að í Pennsylvaníu og New York hefðu menn gert „þá ánægjulegu uppgötvun að leiðin til að þagga niður trúardeilur væri að láta eins og þær væru ekki til“. Eins og Buruma bendir á gerði hann það ekki vegna þess að hann væri trúnni fjand- samlegur, þvert á móti taldi hann að að- skilnaður ríkis og kirkju myndi verða trúarbrögðunum til góðs. Trúrækni er líka meiri og meira áber- andi í Bandaríkjunum, en í Evrópu og eld- klerkar í anda Elmers Gantrys, sögu- persónu Sinclairs Lewis, fara mikinn. Katólikkar áttu hins vegar ekki greiða leið inn í landsmálapólitík og varð John F. Kennedy að sverja að hann myndi ekki taka við skipunum frá Páfagarði. Öðru máli gegnir um beint samband við almættið. George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, leitaði innblásturs hjá guði þegar hann tók ákvarðanir og þótti hafa opnað dyrnar fyrir trúna inn í pólitíkina. Þau viðhorf hafa hins vegar átt hljómgrunn í Bandaríkjunum að Banda- ríkjamenn væru kristin þjóð og ríkinu bæri skylda til að viðhalda kristnu siðgæði hvað snertir fjölskyldulíf, kynlíf og líf- fræðikennslu. Í Evrópu er tilhneiging til að líta niður á Bandaríkjamenn af þessum sökum, en Evrópubúar ættu kannski að fara varlega í þeim efnum. Að minnsta kosti er sambúðin við aðra trúarhópa mun erfiðari í Evrópu en í Bandaríkjunum. Bandaríkjunum hefur iðulega verið líkt við suðupott þar sem menningarstraumar renna saman. Þrátt fyrir að blásið hafi verið til stríðs gegn hryðjuverkum eftir árásina á Bandaríkin 11. september 2001 snerist það aldrei í ofsóknir á hendur múslímum í Bandaríkjunum. Þar hafa þær deilur, sem farið hafa um Evrópu eins og logi um akur, ekki blossað upp. Umburðarlyndi hefur verið haft að leið- arljósi í hollenskum stjórnmálum. Bak- slagið gegn innflytjendum er að hluta til varnarviðbrögð talsmanna umburð- arlyndisins út af eindreginni andúð strang- eða rétttrúaðra múslíma á laus- unginni í samfélaginu og andstöðu þeirra við réttindi samkynhneigðra og annarra þjóðfélagshópa. Þeim finnst þeim hafa verið sviknir þegar umburðarlyndi þeirra er endurgoldið með umburðarleysi. Bakslag gegn umburðarlyndi Bakslagið einnig uppgjör við þetta um- burðarlyndi, rætur þess eru trúarlegar og má að hluta rekja til þeirrar sannfæringar að hið veraldlega ríki verði að eiga sér eitthvert trúarlegt inntak til þess að hafa siðferðislegan grunn. Hann verði ekki til með boðum og bönnum einum saman. Hjá þeim beinist bakslagið gegn múslím- um vegna þess að siðir þeirra eru öðru vísi og framandi, en um leið eiga þeir andúð sína á umburðarlyndinu sameiginlega með andstæðingum sínum. Buruma rekur þessar mótsagnir af miklu innsæi og varar við einföldun, að skipta heiminum í svart og hvítt. Hann er þó ekki haldinn þeirri blekkingu að með því að loka augunum hverfi vandamálin, en menn verði að spyrja um ræturnar. Aðdráttarafl trúarlegrar hugmyndafræði sé yfirleitt ekki af guðfræðilegum toga, heldur snúist um pólitíska reiði, leit rót- lausra einstaklinga að tilgangi. Hryðju- verkamennirnir verði til þvert á þau trúarbrögð, sem foreldrar þeirra komu með að heiman þegar þeir fluttu til Evr- ópu. Á öðrum tíma hefðu þeir allt eins gengið í Baader-Meinhof-samtökin. Hið umburðarlynda samfélag á að kveða niður ofbeldi af fullri hörku. Verk- efnið er hins vegar að aðskilja stjórnmálin og trúna með þeim hætti að hinir ólíku hópar geti ræktað sína trú og virt leik- reglur lýðræðisins um leið. Eins og Buruma bendir á getur ríkið ekki blásið til stríðs gegn stórum hluta eigin íbúa án þess að valda alvarlegum skaða á siðferðisvitund allra hlutaðeig- andi. Og enn hefur ekki verið afsannað að íslam og lýðræði eigi samleið. Endalok umburðarlyndis? Hópur fólks safnaðist saman fyrir utan dómsal í Amsterdam til að styðja Gert Wilders, sem var sakaður um að hvetja til haturs gegn múslímum í janúar. Reuters Samleið lýðræðis og trúarbragðanna Verður öfgum svarað með öfgum? Samspil trúar og stjórnmála er efni nýrrar bókar eftir Ian Buruma, Guðirnir tamdir. Karl Blöndal kbl@mbl.is Lesbók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.