SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 25

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 25
7. mars 2010 25 koma svakalegar vinnutarnir sem ætla engan endi að taka. Það er mikilvægt að búa við skilning á því á heimilinu. Sömuleiðis veiti ég Unni svigrúm og skilning þegar hún er að vinna. Við skiljum starf hvort annars ágætlega.“ Er það rétt að á sýningum sé áhorfendasal- urinn misjafn frá kvöldi til kvölds og leikarar finni það? „Mjög svo og þar kemur margt til. Aldurs- samsetning skiptir til dæmis máli. Það getur sömuleiðis verið mikill munur á vikudögum. Á föstudags- og laugardagskvöldum finnst manni oft sterkari krafa um að láta skemmta sér: Jæja, sýnið mér hvað þið getið og gerið þetta þess virði. Á sunnudögum er oft afslappaðri salur meðan hann er tregari í taumi í miðri viku. Það eru mikil vísindi í þessu.“ Þú hefur mikla ástríðu gagnvart leiklistinni, er það ekki? „Ég ætlaði alltaf að vera leikari. Það er óskap- lega gaman að vinna í leikhúsi. Þar er skapandi umhverfi og ég hef mikla þörf fyrir slíkt um- hverfi. en ég veit ekki hvort þessi leikhúsástríða fleytir mér yfir marga áratugi í viðbót.“ Er það ekki bara vitleysa hjá þér að þú munir ekki vera í þessu starfi í marga áratugi? „Jú, kannski.“ Hvað annað myndirðu gera? „Nákvæmlega! Ég hef reyndar unnið á ólíkum sviðum, við kvikmyndagerð og sett upp leiksýn- ingar sem framleiðandi. Að mörgu leyti heillar sá hluti leikhússins ekki síður en það að standa á sviði öll kvöld. Það þarf sérstaka þolinmæði gagnvart því að eyða öllum kvöldum í leikhúsinu en meðan ég hef svona gaman af starfinu þá held ég áfram. En ég finn að þessi brunnur er ekki ótæmandi. Fyrir mér er leikhúsið staður þar sem ekki er hægt að vinna ef maður er ekki fullkomlega inn- blásinn. Það skiptir máli að fara alveg inn í hlut- verkið, gefa allt í það og verkefnið sem maður er að vinna að. En ef maður, af einhverjum ástæð- um, hefur ekki forsendurnar fyrir því og kraftar manns nýtast ekki fullkomlega þá getur róðurinn orðið mjög þungur. Ég hef reyndar orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna í skemmtilegum og krefjandi verkefnum frá því ég útskrifaðist. Mað- ur verður að passa sig á að vinna ekki of mikið því um leið og maður er orðinn þreyttur þá tæmist brunnurinn. Ef maður sprengir klárinn sinn hleypur hann ekkert meir. En ef maður fer rétt að honum og skapar honum sæmilega öruggt um- hverfi getur hann verið frábær í mörg ár. Og þetta á ekki bara við starf leikarans heldur öll störf.“ Morgunblaðið/Golli „Fyrir mér er leikhúsið staður þar sem ekki er hægt að vinna ef maður er ekki fullkomlega inn- blásinn,“ segir Björn Thors. ’ Við höfum alltaf verið á flótta undan lögum alþjóðasamfélagsins. Við höfum alltaf verið treg til að taka þátt í samstarfi af því að okkur finnst við vera svo sjálfstæð og heilsteypt og viljum vera smá. Við viljum vera sjálfstæð en stikkfrí á sama tíma vegna smæðar okkar. Á Austur-Indíafjelaginu geturðu nú kitlað bragðlaukana með veislu í tilefni Holi-hátíðarinnar á Indlandi. Risarækjur í forrétt, í aðalrétt eru kjúklingalundir, lambafillet og grænmetisréttur. Með þessu er síðan úrval Naan-brauða, Raitha, hrísgrjón og að síðustu ljúffengur eftirréttur. Þessi ríkulegi veislukostur býðst nú í mars á aðeins 4.990 kr. sun-fim og 5.990 kr. fös og lau. Á föstudags- og laugardagskvöldum svífur dansfuglinn Mínerva inn í veitingasal okkar með sínum yndisþokka og dansi. Borðapantanir í síma 552 1630. Hverfisgata 56, 101 Reykjavík Sími: 552 1630 austurindia@austurindia.is Opið: sun.-fim. 18:00 - 22:00 fös. og lau. 18:00 - 23:00 www.austurindia.is HOLI MATSEÐILL Austur-Indíafjelagsins Lítríkur og dásamlegur 4.990kr. sun-fim 5.990 kr. fös-lau HOLI-hátíð gleði, dans og litríkur matur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.