SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 48

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 48
48 7. mars 2010 É g hef margoft rekið mig á að ungt fólk á dálítið erfitt með að rýna í texta og átta sig full- komlega á merkingu hans. En þegar það hefur „ráðið gátuna“ gleðst það. Eitt af því sem reynist nemendum erfitt er orðaröð í vísum og ljóðum. Ég skal sýna dæmi um vísu sem ég hef beðið nemendur að setja í eðlilega orðaröð (án þess að breyta öðru): Stundin harma sú var sár sundur armlög slíta; hrund af hvarmi höfug tár hrundu á barminn hvíta. Nemendur á þrítugsaldri hafa átt erfitt með að leysa þetta verkefni. Nú bið ég lesandann að spreyta sig á því áður en hann heldur lengra. En svona mætti taka saman: Sú harma stundin var sár [að] slíta armlög sundur. Höfug tár féllu af hvarmi hrund á hvíta barminn. Þetta er falleg lýsing á skilnaði elskenda. Stephan G. Stephansson mun hafa verið 16 ára þegar hann orti þetta. Óneitanlega er dýrt kveðið því að ekki er einungis um innrím í 2. kveðu (harm/ arm/ hvarm/ barm) að ræða, heldur ríma einnig upp- hafsorðin í hverri línu (stund / sund/ hrund/ hrund). „Hvernig getur ungling- ur í 10. bekk ort svona?“ spurði einn nemandinn. Hann vissi reyndar að Stephan G. naut ekki skólamenntunar. Hugsanlega þyrfti að staldra við orðið hrund [kona] sem þarna stendur í þágu- falli: Tárin hrundu hrund (þgf.) af hvarmi, sbr. þau hrundu henni af hvarmi eða af hvarmi henni. Þessi leið, að fá nemendur til að setja texta eins og þennan í eðlilega (sjálf- gefna) orðaröð neyðir þá til að velta fyrir sér bygginu setninga: frumlagi, umsögn, andlagi o.s.frv. og fá þannig fullkomna merkingu í textann. Ef þeir gera það ekki missa þeir af einhverju, skilja bara svona nokkurn veginn. Ég held við kennarar ættum að gera meira af að rýna vel í texta með nemendum til að efla lesskilning og tilfinningu fyrir máli og styrkja þá jafn- framt orðaforðann. Ég hlustaði um dag- inn á leikskólakennara sem sagði frá því að hann (hún) léti leikskólabörnin glíma lengi við sömu þjóðsöguna, m.a. til að efla orðaforðann. Þessi kona sagðist ekki einfalda texta þjóðsagnanna en hún gætti þess aftur á móti að skýra öll orð vel. Hún greindi frá skemmtilegu atviki: Móðir eins barnanna hafði að dómi barnsins ekki staðið sig sem skyldi og barnið hafði sagt: „Þú ert duglaus og dáðlaus.“ Móð- irin undraðist þetta en komst svo að því að barnið hennar hefði verið að glíma við söguna af Gilitrutt í leikskólanum sínum. Umrædd móðir fór eftir þetta að sýna starfinu í leikskólanum aukinn áhuga. Það er til fyrirmyndar. Ég held að allt of víða skipti foreldrar sér ekki af námi barna sinna. Gaman væri að sjá breytingu á þessu. Ég sé fyrir mér foreldra glíma við kvæði eða smásögu sem barninu hefur verið sett fyrir. Í huganum heyri ég þá ræða við börnin um orðaröðina í fyrr- greindri vísu Stephans G. Þetta er orðinn fjölskylduleikur en ekki einangrað fyr- irbæri í íslenskutíma. Svo er kannski smásaga lesin upphátt fyrir svefninn. Þannig fer menntun fram. Þannig skapast virðing fyrir bæði skólastarfi og móðurmáli. Þannig kemst íslenskan í tísku. Þannig styrkist orðaforði okkar, en prófessor Hrafnhildur Ragnarsdóttir, sem hefur rannsakað orðaforða barna og unglinga, hefur hvað eftir annað bent á hve mikilvægt það sé að efla hann og styrkja, ekki síst á unglingsárum. Skóla- vefurinn gerir nú tilraunir í nokkrum skólum með námsefni í íslensku sem er ætlað miðstigi grunnskólans. Þar er markmiðið m.a. einmitt það að tengjast foreldrum sem best með aðstoð netsins og stuðla þannig að umræðu eins og þeirri sem hér var minnst á. Að lokum langar mig að benda á tvær algengar „villur“ sem auðvelt er að ræða og finna rök gegn: Mánaðarmót, segja menn gjarnan og skrifa. En þetta eru mót tveggja mánaða (eignarfall fleirtölu), mánaða-mót. Eiður skaut í slánna, segja menn og skrifa. En hann skaut reyndar í slána, hina hvítu slá: greinirinn vill hafa þarna eitt n í þolfalli, kvenkyni, eintölu. Niðurstaðan er þá þessi: Það þyrfti að ræða meira um tungumálið og beita þeim hugtökum sem málfræðin býr yfir. Þá verður allt svo skemmtilegt. Eiður skaut í „slánna“ ’ Nemendur á þrítugs- aldri hafa átt erfitt með að leysa þetta verkefni. Nú bið ég lesand- ann að spreyta sig á því áð- ur en hann heldur lengra. Hvar hafnaði skot Eiðs Smára? Í „slánni“? Eða skaut hann í hina hvítu slá? Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is Morgunblaðið/Golli S igrid Valtingojer hefur verið í fremstu röð íslenskra grafík- listamanna síðustu þrjátíu ár og hefur hlotið fjölda verð- launa og viðurkenninga fyrir verk sín. Í dag, laugardaginn 6. mars, verður opnuð sýning á verkum hennar í Lista- safni ASÍ við Freyjugötu, í Ásmund- arsal, Arinstofu og Gryfjunni. Er þetta í raun afmælissýning en Sigrid verður 75 ára í vikunni. Á sýningunni eru tólf ný verk en einnig getur að líta eldri verk, röð af ætingum, Landslag, en fyrir þau verk hlaut Sigrid Grand Prix-verðlaun á Ítalíu. Ljósmyndir teknar á einni sum- arnótt og glermyndir frá árinu 2008 er einnig að finna á sýningunni. „Í nýju verkunum mála ég með lakki á ál, set svo fínan sand yfir og prenta síðan myndirnar. Þetta er alveg sérstök tækni sem ég beiti þarna,“ seg- ir Sigrid. Hún segir sérstakan boðskap að finna í myndunum. Pólitísk myndverk „Kveikjan að þessum myndum eru ör- lög milljóna manna sem á síðustu ára- tugum hafa leitað skjóls í Evrópu. Þetta er fólk sem býr að allt annarri menn- ingu og talar allt annað tungumál en Evrópubúar,“ segir Sigrid. „Þetta eru að mörgu leyti erfið umskipti fyrir þetta fólk því sagan sýnir að sambúð manna af ólíkum uppruna er flókin, innflytjandinn þarf að tileinka sér nýtt tungumál, og ólík trúarbrögð og siðir geta skapað vandamál. En um leið er þessi breyting mikill sjóður. Innflytj- andinn, sem kannski hefur verið að leita að griðastað, kynnist nýjum heimi og fær ný tækifæri Flutningar þessa fólks til Evrópu gera okkur Evrópubúa ríkari og gefa okkur tækifæri til að endurskoða hlutina. Það er mikil gerjun þar sem fólk af ólíku þjóðerni býr saman og þá sérstaklega í listum. Ég reyni að koma einhverjum smá- hugmyndum um þessa flutninga yfir í myndirnar. Ég reyni það á þann ein- falda hátt að setja inn í þær stafi. Í sumum löndum eru stafir myndlist. Ég set í myndirnar stafi sem ég hef Pólitískir staf- ir og eigin uppfinningar Sigrid Valtingojer sýnir verk sín, gömul og ný, í Listasafni ASÍ. Hún segir að kveikjan að nýju verkunum séu örlög þeirra milljóna manna sem á síðustu áratugum hafa leitað nýrra heimkynna í Evrópu. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Lesbók Í fyrstu ljóðabók Auðar Ava Ólafsdóttur, Sálmurinn um glimmer, sem kom út í vikunni er lagt til að fegurðin bjargi heiminum. Um er að ræða 57 blaðsíðna söguljóð þar sem höfundur glímir við margt í senn; ástríður, þjáningu, dauða, endurfæðingu, tungumálið og skáld- skapinn þar á meðal. „Í kjarna er ástríðusamband einfættrar konu og blinds leiðsögumanns sem lesa má á ýmsa vegu,“ segir Auður sem hefur getið sér gott orð fyrir skáldsagagerð og var tilnefnd til Norðurlandaverðlauna fyrir síðustu skáldsögu, Afleggjarann. Hún bjóst þó ekki endilega við því að eiga eftir að skrifa ljóðabálk. „Ég er að vasast í mörgu en ætlaði ekki að skrifa ljóðabók,“ segir Auður. „Enda hef ég litið svo á að það væri fullt starf að vera ljóðskáld. Sálmurinn um glimmer er þó ekki hefðbundin ljóða- bók. Í henni er sögukjarni sem springur í ýmsar áttir og útúrdúrar sem eiga sér sjálfstætt líf. Textanum er ætlað að vera kvikur og hlaupa út undan sér.“ Brimhvít sogalda tímans Ljóðmælandinn í verkinu sáldrar glimmeri yfir heiminn. Auður Ava segir bókina spegla þá sýn að ekki sé til neitt í þessum heimi án andstæðu sinnar. „Fegurðin er ekki til án ljótleika eða grimmdar, lífið fær merkingu sína af dauðanum. Annað skilgreinir hitt. Þarna eru ýmis andstæðupör sem hafa áður komið fyrir í bókum mínum, eins og Sögukjarni sem springur í ýmsar áttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.