SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 41

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 41
7. mars 2010 41 H úsgögnin eru nokkurs konar lítil gróðurhús, hugsuð í garðinn þó að hægt sé að nota þau víðar og hafa allt mögulegt í þeim. Það er hægt að sitja á stólunum og borða við borðið og samtímis rækta matjurtir ofan í þeim, stólunum og borðinu,“ lýsir Dagný Bjarnadóttir landslags- arkitekt húsgögnum sem hún hefur hannað og hafa hlotið nafnið FurniBloom. Dagný fékk nýlega styrk úr Hönnunarsjóði Auroru til að fara í frekari vöruþróun og kynningu á FurniBloom sem hafa ekki verið til sölu hingað til. „Ég sýndi þessa hönnun mína í fyrsta, og eina, skipti á sýningunni Kviku á Kjarvals- stöðum árið 2007. Húsgögnin hafa ekki verið í sölu og styrk- urinn mun nýtast mér til að halda áfram með þetta sem viðskiptahugmynd. Nú langar mig til að koma með þau á markað helst í vor,“ segir Dagný sem fær reglulega fyr- irspurnir um hvar hægt sé að kaupa FurniBloom. „Hús- gögnin hafa fengið nokkra kynningu í erlendum bókum og tímaritum og fengið góð viðbrögð, því er ég að sparka í rassinn á mér að fara að setja þau í framleiðslu. Þegar ég fékk styrkinn talaði ég við Bóas hjá Logoflex, sem framleiðir húsgögnin, og erum við núna að þróa þetta aðeins áfram og hanna vörulínu. Í vor langar mig til að koma með garðbekk til viðbótar sem yrði tilvalinn á svalirnar til að rækta í og auðvitað nýta sem sæti.“ Augnayndi og notagildi FurniBloom eru gerð úr plex- ígleri og segir Dagný þau þola íslenska veðráttu vel. „Hús- gögnin mín hafa nú staðið í þrjú ár úti í garði, vetur, sum- ar, vor og haust, þau eru mjög veðurþolin og mér hefur geng- ið mjög vel að rækta í þeim. Ég hef bæði verið með blóm í þeim mér til augnayndis og í borðinu hef ég ræktað tímían og smávaxnar jarðarberja- plöntur og það hefur gefist vel.“ Dagný nýtur liðsstyrks Hrafnhildar S. Mooney í að koma FurniBloom á framfæri. „Hönnuðum vantar oft við- skiptahugsunina og fór ég því á Orkuverið, hraðstefnumót hönnuða og viðskiptaþenkjandi manneskju, síðastliðið sumar og þar komst ég í samband við Hrafnhildi. En Inovit og Hönn- unarmiðstöð Íslands hafa staðið fyrir svona stefnumótum reglulega á Háskólatorgi. Hrafnhildur kom með mér að umsókninni fyrir Auroru- sjóðinn og við erum búnar að vera að sækja um fleiri styrki til að halda áfram með þró- unina á húsgögnunum. Hennar kraftur mun nýtast mér í markaðsmálunum, hún kom t.d. með þetta frábæra nafn FurniBloom sem segir allt.“ Í tengslum við Expo Spennandi verkefni er í vinnslu hjá Dagnýju þar sem gróð- urhúsgögn hennar verða í að- alhlutverki. Hún var beðin um að hanna samnorræna lands- lagsarkitektasýningu sem verð- ur haldin í Sjanghæ í Kína í vor í tengslum við World Expo- sýninguna. „Þessi landslagsarkitekta- sýning er í tengslum við Nor- dic Lighthouse sem er sam- norrænt kynningarverkefni sem fer fram á sama tíma. Okkar sýning verður utandyra, á torgi við bygginguna sem Nordic Lighthouse fer fram í. Á torginu verða þessi húsgögn mín í aðeins breyttri útfærslu notuð sem sýningarsvæði. Hvert landanna á Norð- urlöndum auk Grænlands fær úthlutað einu borði og fjórum stólum til að kynna sitt verk- efni í. Húsgögnin eru náttúrulega ekki notuð til að rækta í þetta skiptið og verða því útfærð öðruvísi. Borðin verða stærri, ekki opnanleg eða með stórum loftgötum, útlitið verður samt það sama.“ Í ár er þemað á World Expo 2010 Better City, Better Life, eða betri borg, betra líf, og tengist sýningin sem Dagný vinnur nú að því þema. „Hellisheiðarvirkjun er verkefnið sem sýnt verður frá Íslandi og hvernig við tökum á slíkum virkjunum í landslag- inu. Finnur Kristinsson hjá Landslagi ehf. er landslags- arkitektinn í því verki. Flest löndin eru að fást við hvernig við notum náttúruna og landið og til hvers og hvernig við skiljum við landið þar sem við erum að nýta það. Svo fer þessi sýning á flakk eftir Sjanghæ og þá í stærri mynd, hún kemur hingað til Íslands 2011.“ Fílar þú miðbæinn? Það er nóg að gera hjá Dagnýju um þessar mundir en hún er að vinna að framlagi FÍLA – Félags íslenskra landslags- arkitekta, til Hönnunarmars sem fer fram í Reykjavík 18. til 21. mars næstkomandi. „Fyrir Hönnunarmars í fyrra útfærði ég verk fyrir Lands- lagsarkitektafélagið, hannaði gula blómabreiðu við Norræna húsið og lék mér að því að búa til áhrif og upplifun úr viðvör- unarborðum úr plasti og stál- teinum. Verkið kölluðum við „Betri tíð með blóm í haga“. Núna er ég í gríðarlegri vinnu við að gera risastórar baldursbrár úr notuðu hey- rúlluplasti, þær verða settar upp á neðri hluta Laugavegar, á Skólavörðustíg og Lækj- artorg. Með þessu erum við að setja fókusinn á miðbæinn og fá fólk til að velta fyrir sér hvort ekki sé tími til kominn að huga betur að umhverfinu, hvernig við nýtum það og hvort við viljum alltaf hafa bíl- inn aðalatriðið. Við köllum þetta „Fílar þú miðbæinn?“Það er tvíræðni í þessu því FÍLA er skammstöfum fyrir Félag ís- lenskra landslagsarkitekta. Svo tökum við „Stöðuna á bænum“ því við fengum að nota stöðu- mælana í þetta verkefni og breytum þeim í blóm. Hlutverkasetur er að aðstoða okkur við að föndra blómin, sem verða um 70 talsins, en þau útbjuggu í fyrra öll gulu blómin, 3.300 að tölu. Í Hlut- verkasetri er unnið mjög upp- byggilegt starf fyrir fólk sem er að finna sitt hlutverk í lífinu, eftir atvinnumissi eða heilsu- leysi. Þetta samstarf hefur ver- ið ákaflega skemmtilegt og gef- andi fyrir okkur,“ segir Dagný. Hún vill sjá miðbæinn hann- aðan með meira mannlíf í huga. „Það þarf að huga að því hvernig gott almenningsrými er búið til og mig langar til að sjá menn þora að taka ný skref í þessu. Ég vil hanna svæðið þannig að það sé hægt að ganga um og það sé ekki bíll- inn sem á það allt. Þegar mað- ur fer Laugaveginn í dag er klárt að það er bíllinn sem á forgang og því verður að breyta. Þörfin er klárlega til staðar, það sjáum við best á því hvernig þau fáu torg og dvalarsvæði eru nýtt t.d. við Kaffi París og Vegamót, frá því snemma á vorin og fram á haust. Við eigum að vera stolt af miðbænum okkar og Reykjavík á að geta skartað fallegu miðbæjarumhverfi, með spennandi upplifunum fyrir gangandi vegfarendur,“ segir Dagný að lokum. Gróðurhúsgögn og blóm Dagný Bjarnadóttir með baldursbrárnar úr rúllubaggaplastinu sem nú er verið að vinna í Hlutverkasetri. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dagný Bjarnadóttir hannaði hús- gögnin FurniBloom og gerir risastórar baldursbrár úr rúllubaggaplasti. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ferðamenn nýta sér FurniBloom fyrir kaffipásuna. Blóm og krydd í borðum og stólum. FurniBloom var sýnt á Kviku, sýningu á íslenskri samtímahönnun, 2007. Morgunblaðið/Frikki Hönnun Einbýlishús óskast í 101 Reykjavík Staðgreiðsla fyrir vandað hús á góðum stað Svar sendist á hus101reykjavik@gmail.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.