SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 42

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Blaðsíða 42
42 7. mars 2010 H jónabandssælan stóð að vísu stutt yfir, frá 1988-91, en hún var umtöluð og slúðrið hefur fengið byr undir báða vængi á nýjan leik. Myndirnar þeirra þykja þær sigurstranglegustu, þótt ólíkar séu. Avatar eftir Cameron, er ein af dýrustu brellumyndum sögunnar, fantasía og ástarsaga með grænu ívafi utan úr útgeimi, en The Hurt Locker hennar Bigelow, jarðbundin og spennuþrungin ádeila úr Íraksstríðinu. Báðar eru þær tilnefndar til Óskars sem besta mynd ársins, og þykja ámóta sig- urstranglegar og leikstjórarnir. Þau unnu reyndar saman að einni mynd eftir skilnaðinn, hinni mislukk- uðu Strange Days, sem Cameron fram- leiddi og skrifaði. Þá segist hún hafa beðið Cameron að lesa yfir handrit The Hurt Locker, áður en hún ákvað að leikstýra myndinni, sem kostaði litlar 11 milljónir dala. Cameron stóð þá á haus við gerð báknsins Avatar, sem kostaði hann 25-falt meira. Hann lét það ekki aftra sér og taldi að Bigelow ætti að ýta öðrum verkefnum frá sér og snúa sér að stríðsmyndinni í einum grænum. Á sama tíma hefur Bigelow verið ófeimin við að skjalla sinn fyrr- verandi við ýmis tækifæri sem hafa komið upp að undanförnu, líkt og við afhendingu Golden Globe-verð- launanna og viðurkenningar Leik- stjórasamtakanna (DGA), sem hún hlaut fyrir skömmu. Segist hafa séð Avatar og telji hana með eftirlæt- ismyndum sínum þetta árið. Hversu mikið mark er takandi á skjallinu í borg refanna er svo annað mál. Þar finnast hins vegar menn sem fullyrða að Bige- low væri fátt ljúfara en að nota Came- ron sem gólftusku. Bloggararnir hafa tekið afstöðu með Bigelow, sem nú er 58 ára, eða þremur árum eldri en henn- ar fyrrverandi ektamaður. „Avatar skuldar The Hurt Locker meðlag,“ hrópaði Double X. Annar miðill lét hafa eftir sér þegar Bigelow hafði unnið til Critic’s Choice-verðlaunanna: „Kat- hryn Bigelow er unglegri og vinnur til fleiri verðlauna en hennar fyrrverandi!“ Það er auðvelt að sjá hvers vegna Bigelow heillar menn meira en Came- ron. Hinn fimmgifti Kanadabúi og frægi orðhákur, hefur skipt um konur eins og sokka. Sú fyrsta, þjónninn Sharon Williams, rölti með honum upp að alt- arinu árið 1978. Það samband entist til 1984. Næst í röðinni var framleiðandi The Abyss og Terminator, Gale Anne Hurd. Cameron lét hana róa árið 1989. Sama ár kynntist hann Bigelow. Í raun- inni var hann að leita að karlleikara í Blue Steel, en datt niður á konuefni nr. 3. Mark Saphiro segir í bók sinni „James Cameron: An Unauthorized Biography of the Filmmaker“, að í Bigelow hafi Cameron fundið „kvenmanns-útgáfu af sjálfum sér.“ Fundið fljótlega að þau væru kjörnir sálufélagar. Hún hafi verið sterk kona eins og Hurd og ekki tilbúin að láta hann ráðskast með sig. Enn og aftur hafði Cameron fundið fullkominn maka, eftir fáeinar vikur voru þau ást- fangin upp fyrir haus og giftust 1989, eftir að Bigelow lauk við Blue Steel. Þau fóru samstundis að vinna saman að Po- int Break, spennumyndinni með Keanu Reeves, sem hann framleiddi en hún leikstýrði. Um sinn voru þau ham- ingjusöm en fyrr en varði kom upp sama meinsemdin og eyðilagði hjóna- band þeirra Hurd: Of mikil vinna. Við bættist slúður um samdrátt Lindu Ha- milton og Cameron á meðan á tökum stóð á Terminator og hjónabandinu lauk 1991, í kjölfar frumsýningar Term- inator 2. Bigelow gaf aldrei upp ástæð- una fyrir skilnaðinum. 1997 giftist Cameron stjörnunni sinni úr Terminator-myndunum, Lindu Ha- milton. Það stóð stutt, eða í tæp tvö ár, og eignuðust þau eina dóttur barna. Skilnaðurinn var subbulegur, Hamilton hafði á brott með sér svimandi upphæð, 50 milljónir dala, einkum þar sem hún náði að komast í Titanic-auðinn sem varð til á síðara ári hjónabands þeirra. Ekki þekktur fyrir einlífi var Came- ron snöggur á ný í hnapphelduna og giftist leikkonunni Suzy Amis, sem fór með smáhlutverk í Titanic. Og viti menn, þau eru enn gift og búin að eignast þrjú börn. Bigelow hefur á hinn bóginn látið nýtt hjónaband lönd og leið eftir skiln- aðinn við Cameron. Býr með hundum sínum og köttum og fögrum listmun- um. James Cameron, leikstjóri Avatar. Reuters Rekkjunautar – keppinautar Það mun setja svip sinn á Óskarsverðlauna- afhendinguna í kvöld , sunnudag, að aðal- keppendur kvöldsins, leikstjórarnir James Cameron og Kathryn Bigelow eru fyrrver- andi hjón. Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsmynd.is Kathryn Bigelow, leikstjóri The Hurt Locker. Reuters ANNARS staðar í blaðinu er að finna úttekt eftir mig um Ósk- arsverðlaunin sem verða afhent í kvöld. Þegar greinin var skrifuð voru sýningar ekki hafnar á Precious: Based on the Novel Push by Sapphire, svo ég lét, eins og nauðsynlegt er undir slíkum kringumstæðum, tilfinninguna ráða. Hún var byggð á heldur vafasamri umsögn sem ég fékk um myndina og blendnum dómum sem ég hafði rennt yfir. Spádómurinn stendur en ég vil gera bragarbót og hvetja alla sem unna góðum og tilfinningaríkum myndum um mannúð og mannfyrirlitningu og drífa sig að sjá Precious, á meðan þess er kostur. Mun veita fröken Bullock harða keppni Eftir sýninguna er ég þess fullviss að Gabourey Sidibe mun veita fröken Bullock harða keppni um verðlaunin fyrir bestan leik í aðalhlutverki kvenna. Sidibe er ógleymanleg sem algjör hornreka á niðurníddu heimili í Harlem. Þungaðri í annað sinn eftir þann sem síst skyldi, akfeitri, ólæsri og óskrifandi berst henni smávonarglæta í sortanum. Hún leggst í baráttu þvert á vilja óþverrans móður sinnar (Mo’Nique), sem einnig er mjög sterkur Óskarskandídat í flokknum Besta leikkona í aukahlutverki. Ég vona að þessar línur verði til þess að hvetja sem flesta til að sjá eina grimmustu, athyglisverðustu og bestu mynd ársins. saebjorn@heimsnet.is Kvikmyndafréttir Missið ekki af Precious Precious, ein grimmasta, athyglisverðasta og besta mynd ársins. True Grit (1965) Þar sem er verið að endurgera True Grit og fleiri stórvestrar í smíðum, var til- valið að kanna hvað væri til á mark- aðnum af klass- ískum Wayne- vestrum. Það er ólíklegt að vestrabylgja muni tröllríða Hollywood, sem er upptekin af öðru nú um stundir. En ég held að ólíklegustu áhorfendur geti haft ósvikna ánægju enn í dag af góðri kúrekamynd. Það er líka mjög heilsusamlegt að komast út á víðátturnar miklu, undir bláan himinn, þegar hríðin hamast utandyra. True Grit, eftir Henry Hathaway, er þekktust fyrir Óskarinn sem hún færði Wayne á sínum tíma. Karlinn leikur slarkara sem hefur atvinnu af því að koma lögum yfir ódáma. Gallhart stelputrippi (Kim Darby) fær hann til að hjálpa sér að finna morðingja föður síns og boru- brattur Texas Ranger (Glen Campbell) slæst í hópinn. Fínir aukaleikarar, Wayne í óhefðbundnu hlutverki viskí- maríneraðs harðjaxls. Mikil átök og fín augnablik en söngvarinn Campbell og Darby liðónýt, bæði tvö. bbbb The Man Who Shot Liberty Vala- ance (1962) Tíma- mótamynd um tamningu vesturs- ins. Ungur lögmað- ur (James Stewart) heldur til land- nemaþorps þar sem lögmál byssunnar ræður. Hyggst snúa dæminu við og tekst það með hjálp Waynes, þó honum sé það óljúft sakir kvennamála. Hefst og lýkur á mögnuðum lykilatriðum. bbbbm The Sons of Katie Elder (́66) Hat- haway-vestri, með mýgrút vestrastjarna sem eru ýmist skúrkar eða úr bræðra- hópnum sem safnast saman í gamla heimabænum þegar skörungurinn móð- ir þeirra fellur frá. Bræður hreinsa bæ- inn af ruslaralýð með tilþrifum, og myndin er bæði fyndin og frábært sýn- ishorn frá gósentímum vestrans. bbbb El Dorado (́66) Howard Hawks. Wayne í hefð- bundnu hlut- verki byssu- mannsins sem er boðið verkefni en hættir við þegar kemur í ljós að vinur hans (Robert Mitchum) er fógetinn á staðnum. Mitchum er fínn, fullur sem edrú, Wayne eins og klettur að venju og hér fer James Caan með eitt sitt fyrsta hlutverk auk fjölda aukaleikara. Litrík- ur, fyndinn og spennandi.bbbb saebjorn@heimsnet.is Kvikmyndaklassík Hinn sígræni Jón væni Kvikmyndir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.