SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Side 9
7. mars 2010 9
M
illjónir dollara,
sem átti að nota til
að hjálpa fórn-
arlömbum hung-
ursneyðarinnar í Eþíópíu 1984
og 1985, fóru í vopnakaup sam-
kvæmt rannsókn breska rík-
isútvarpsins, BBC. Gamlir bylt-
ingarforingjar sögðu BBC að þeir
hefðu blekkt hjálparstarfsmenn
til að ná í fé, sem var notað til að
fjármagna tilraunir til að steypa
stjórn landsins.
Írski söngvarinn Bob Geldof,
forsprakki Band Aid, sem stóð
fyrir LiveAid-tónleikunum og
safnaði rúmlega 60 milljónum
dollara fyrir Eþíópíu, tekur lítið
mark á niðurstöðum BBC. „Ver-
ið getur að eitthvert fé hafi verið
misnotað í þessum átökum, sem
voru þau mestu og lengstu í álf-
unni, en að halda því fram að
umfangið hafi verið svona mikið
er bara kjaftæði,“ sagði Geldof.
Einn byltingarforinginn úr
Þjóðfrelsishreyfingu Tigray
(TPLF) hélt því fram við BBC að
95 milljónir dollara frá vestræn-
um ríkisstjórnum og góðgerð-
arstofnunum, þar á meðal Band
Aid, hefðu farið til skæruliða.
BBC vitnar einnig í skýrslu
bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA, frá 1985 þar sem segir að
nánast sé víst að sjóðir, sem
safnað hafi verið til að aðstoða
Eþíópíubúa, hafi farið í hernað.
Þegar hungursneyðin skall á
átti stjórn Eþíópíu í átökum við
uppreisnarmenn í norðurhér-
uðunum Eritreu og Tigray. Stórir
hlutar landsbyggðarinnar voru
ekki á valdi stjórnarinnar. Komu
hjálparstofnanir því með aðstoð
frá Súdan og var hún ýmist í
formi matvæla eða peninga til að
kaupa korn af bændum, sem enn
voru aflögufærir.
Gebremedhin Araya, sem nú
er í útlegð í Hollandi, lýsir því
hvernig hann dulbjóst sem
kaupmaður og vélaði hálfa millj-
ón dollara út úr starfsmanni
Christian Aid, Max Peberdy,
með því að selja honum sekki
með sandi. Peberdy trúir ekki
þessum fullyrðingum: „Þetta
gerðist fyrir 25 árum og á þeim
tíma hefur enginn haldið neinu
fram í líkingu við þetta.“
Harmleikurinn í Eþíópíu átti
sér stað í kalda stríðinu. 1983
hafði Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti gefið út tilskipun um
að mæta ætti Sovétmönnum af
hörku um allan þriðja heiminn.
Ekki er ljóst hvort það hefur þýtt
stuðning við uppreisnarmenn í
Eþíópíu, en í frétt BBC segir að
ekki sé útilokað að CIA hafi ekki
bara vitað af því að peningarnir
fóru til TPLF, heldur stutt það.
Fór aðstoð-
in í hernað?
Var þróunaraðstoðin notuð til að kaupa vopn í stað matvæla?
’
Í frétt BBC segir
að ekki sé úti-
lokað að CIA
hafi ekki bara vitað
af því að peningarnir
fóru til TPLF, heldur
stutt það.Sagt að uppreisnar-
menn hafi fengið fé
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Tilboð kr. 360.000
DUX CLASSIC
2 DUX Classic 90x200cm/Xtandard
yfirdýna 180x200cm og fætur
DUX VISTA CLASSIC PAKKI
2 DUX Classic 90x200cm/Xtandard
yfirdýna 180x200cm/23cm fætur/
Vista höfuðgafl og Mathilda rykfaldur.
Tilboð kr. 457.000
Ný sending
betra gengi
enn betra verð
20% afsláttur af öllum sérpöntunum út mars
Ármúla 10 | sími: 5689950 | www.duxiana.com