SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Síða 39

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Síða 39
7. mars 2010 39 N ew York er ekki ein borg, hún er margar borgir. Í Upper West Side á Manhattan hefur fjölskyldan kynnst annarri hlið á New York. Hverfið einkennist af lágreist- um, rauðbrúnum sandsteinshúsum, litlum kaffi- húsum og veitingahúsum. Á götunum ríkja gulir leigubílar, en mannlífið er skemmtileg blanda af gyð- ingum í síðum frökkum og með svarta hatta, stjörnuleikurum frá níunda áratug síðustu aldar, fólki að viðra hunda og miðaldra hlaup- urum. Hér er meira að segja lítið samfélag Íslendinga. Síðast en ekki síst má sjá teg- und sem margir trúa að þrífist ekki í New York, nefnilega börn. Systurnar Elísabet Una, 7 ára og Kristrún, 4 ára, mæla sér- staklega með nokkrum stöðum og við- burðum í Upper West Side. „Mér finnst gat- an okkar falleg. Hún minnir mig á Svíþjóð þó ég hafi aldrei komið þangað,“ segir El- ísabet. Systurnar hafa báðar notið þess að búa í námunda við Central Park og renndu sér þar á sleða þegar fyrsti snjórinn kom. Borgaryfirvöld brugðust við snjókomunni og lokuðu öllum skólum þann daginn. Skólastelpan hefur reyndar fengið frí á öðrum dögum en heima, eins og til að fagna Martin Luther King-deginum og Yom Kippur. „The Zoo er skemmtilegt, af því að í dýragarðinum eru mörg dýr. Þar er líka ísbjörn í búri,“ bætir hún við. Þessi ágæti ísbjörn hefur hins vegar glímt við þunglyndi og þegið aðstoð dýrasálfræðings við að vinna bug á þeim vanda. Þetta ættu þeir sem vilja verklagsreglur um ísbirni á Íslandi að hafa í huga. „Mér finnst gaman að skoða risaeðlurnar. Það eru samt bara beinagrindurnar af þeim,“ segir Kristrún en einn kostur hverfisins er American Museum of Natural History. Hún hefur sótt nokkur söfn og í Guggen- heim féll dómur: „Þetta er meira krot en ég hélt.“ Róluvellirnir, sem eru yfir tuttugu talsins í Central Park, hafa slegið í gegn hjá systrunum. Við fest- umst fljótlega á Diana Ross-vellinum, sem er á horni 81. strætis og Central Park West. En einn eft- irlætishluti minn af garðinum eru bekkirnir, þar sem margar fallegar ástarjátningar og kveðjur til látinna ættingja hafa verið skrifaðar á lítil skilti á bekkj- unum. Tvö kaffihús eru í sérstöku uppáhaldi í hverfinu. Café Lalo, í 83. stræti milli Amsterdam og Broad- way. Þar sjást Meg Ryan og Tom Hanks á stefnu- móti í myndinni You’ve got Mail, fyrir þá á sem hafa áhuga á slíku. Hitt kaffihúsið heitir því trausta nafni Good Enough to Eat, í 83. stræti við Amsterdam, og þar hefur húsfreyjan nálgast að slá stúlknamet í hamborgaraáti. Um helgar er líka sveitamarkaður við enda götunnar, þar sem hægt er að kaupa svínslega góðar hafrakökur og mjólk í glerflösku beint frá bóndanum. Skemmtilegast fannst systrunum að upplifa Hallo- ween, sem er árlega 31. október. „Mér fannst Halloween samt dálítið hræðilegra en ég hélt að það yrði,“ segir Kristrún. Heimsókn til New York á þessum tíma er ekki síður skemmtileg en rétt fyrir jólin, en færri virðast hafa kveikt á þessu tilefni til borgarferðar. Þá má ganga 78. strætið, á milli Amsterdam og Columbus, og sjá röskar systurnar deila út sælgæti. Í vetur stóð þar maríubjalla í fylgd vinalegs ljóns. Póstkort frá New York ’ Þessi ágæti ís- björn hefur hins vegar glímt við þunglyndi og þegið aðstoð dýra- sálfræðings við að vinna bug á þeim vanda. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Anna Sigga, Auður, Helga, Urður, Bryn- dís, Anna Stína, Brynhildur og Katrín alsælar í brekkunni. Á slóðum Fjalla- Eyvindar í Hrafnfirði. Seglskútan Aurora var bækistöðin. Helga Thors skíðar niður í Hrafnsfjörð.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.