SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Page 2

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Page 2
2 18. apríl 2010 26 Happ að hafa alist upp í sveit Fjölmiðlamanninum vinsæla Gísla Einarssyni finnst einstaklega gam- an að lifa og telur að kæruleysi sé dyggð. 29 Öskrar á andstæðingana Jónas Breki Magnússon, óþekktarormurinn í íshokkíinu, á sér líka mýkri hlið, hann er útlærður gullsmiður. 34 Lokuð inni fyrir orðbragðið Einkaviðtal Sunnudagsmoggans við hina þrettán ára gömlu Chloë Mo- retz sem leikur með Nicolas Cage í kvikmyndinni Kick-Ass. 36 Safnaði börtum fyrir Elvis-keppni Tengsl bræðranna Sigurður Halldórs Guð- mundssonar í Hjálmum og Guðmundar Ósk- ars Guðmundssonar í Hjaltalín. 38 Horfir bjartsýn til framtíðar Sigurður Bogi Sævarsson hermir af ferðum sínum í Víetnam í máli og myndum. Lesbók 48 Einn frumherjanna Sýning á stækkuðum ljósmyndum eftir Árna Thorsteinson í Reykjavík Art Gallery. 52 Börnin hrædd öldum saman Fjallað um myndskreytingar í barnabókum gegnum tíðina í tilefni af al- þjóðlegri barnabókahátíð sem hefst í næstu viku. 54 Óskabarn eða kerling? Guðmundur S. Brynjólfsson skrifar um Þjóðleikhúsið 60 ára. 16-17 40-41 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Eddi á æfingu á Íslandsklukkunni í Þjóðleikhúsinu. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. Augnablikið Þ að er fimmtudagur, fjórði í skýrslu, ann- ar í eldgosi. Á borði er hálsbrjóstsykur, snýtubréf, vatnskanna og glös, og doðrantur Rann- sóknarnefndar Alþingis. Þetta er verkfærakista leikara Borgarleikhússins, sem lesið hafa níu binda skýrsluna frá því hún kom út og eru enn að – sleg- ið er á að lestrinum ljúki á sunnudag. Birgitta Birgisdóttir stendur í pontu og les kafla númer 17.4.6 um „Innlán í skilningi tilskipunar 94/19/EB. Heimildir til undanþága frá bóta- greiðslum“. Tinna Lind Gunnarsdóttir situr við borðið og bíður eftir að röðin komi að sér. Ótrú- legt en satt, þá er það hin besta skemmtun að fylgjast með upplestrinum. Stundum reyna leik- ararnir að gæða þurra lesningu lífi, en svo koma kaflar þar sem þeir rembast við að halda alvarlegu yfirbragði á meðan þeir lesa meinfyndna kafla um firringuna í íslensku viðskiptalífi. Það er fimmtudagur, fjórði í skýrslu. Hilmir Snær Guðnason stendur í pontu. Sveppi og Auddi eru nýfarnir eftir að hafa reynt að fipa hann, hoppað fyrir framan hann og látið öllum illum lát- um – jafnvel sleikt á honum eyrað. Þeir ættu að vita betur. Þetta er Hilmir Snær. Um kvöldmatarleytið á þriðjudegi les Jón Gnarr. Maður getur ekki annað en komist í gott skap þeg- ar hann les. Þessar mínútur er lesturinn víst fynd- inn, skýrslan ekki. Á milli tvö og fjögur aðfaranótt þriðjudags byrj- ar Jörundur Ragnarsson að þylja tölu, en snar- hættir og þagnar. Eftir nokkurt hik segist hann ætla að lesa tölurnar með punktum. Síðar um nóttina lendir Jón Páll Eyjólfsson í sömu vandræð- um. Hann lítur upp og segist aldrei hafa séð svona háa tölu fyrr. Og grípur til sömu aðferðafræði. Um kvöldið tekur Margrét Helga svo upp sama sið og missir fljótlega allt sjálfstraust gagnvart öllum þessum tölum og les nánast allar með punktum: „Einn tveir punktur núll núll núll punktur núll núll núll.“ Það er fimmtudagur. Birgitta er í pontu. Henni stekkur ekki bros í þetta skipti. En þegar hún las upp um miðja nótt með Ellerti Ingimundarsyni lenti hún í vandræðum með langa upptalningu á evrópskum tilskipunum. Ekki þurfti meira til en smáfliss hjá Ellerti til þess að hún spryngi úr óstöðvandi hlátri, og varð Ellert að leysa hana af. Og hvað var það sem var svona sprenghlægilegt? „Tilskipun 77/780/EBE um samræmingu á lög- um og stjórnsýslufyrirmælum um stofnun og rekstur lánastofnana (kölluð fyrsta bankatilskip- unin). Tilskipun 89/646/EBE um samræmingu laga og stjórnsýslufyrirmæla um stofnun og rekstur lána- stofnana og um breytingu á tilskipun nr. 77/780/ EBE (kölluð önnur bankatilskipunin). Tilskipun 83/350/EBE um eftirlit með lána- stofnunum á samstæðugrundvelli. Tilskipun 89/299/EBE um eigið fé lánastofnana. Tilskipun 89/647/EBE um eiginfjárhlutfall lána- stofnana. Tilskipun 86/635/EBE um ársreikninga og sam- stæðureikninga banka og annarra fjármálastofn- ana. Tilskipun 78/660/EBE um ársreikninga félaga af tiltekinni gerð. Tilskipun 83/349/EBE um samstæðureikninga.“ Jón Páll Eyjólfsson stendur vaktina í lestri skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Morgunblaðið/Eggert Er skýrslan fyndin? 19.-25. apríl Í næstu viku verður haldin Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar, sem fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Þema hátíðarinnar í ár er forvitni og verður dagskráin mjög for- vitnileg fyrir vikið. Hátíðin verður sett í Hljómskálagarðinum kl. 10 á mánudagsmorguninn og verða sirkuslistamenn, götuleikhúsfólk og fjórðubekkingar úr Reykjavík viðstödd ásamt prakkaranum Fíusól. Dag- skrá hátíðarinnar má finna á slóðinni www.barnamenningarhatid.is. Barnamenningarhátíð í Reykjavík Við mælum með … 17. apríl PopUp-verzlun verður sett upp á efri hæð í Kaffi Sólón í dag. Op- ið verður á milli kl. 12 og 17 en að þessu sinni taka 10 hönnunarmerki þátt. Þetta verður síðasta tækifæri fyrir höfuðborgarbúa í bili til að skella sér á PopUp en í næsta mánuði ætlar verzlunin að heimsækja höf- uðstað Norðurlands. 22.-25. apríl Þessa daga verður Jazzhátíð Garðabæjar haldin í fimmta sinn. Hátíðin fer fram á þremur stöðum, í Urðarbrunni, sal Fjöl- brautaskólans í Garðabæ, í Kirkju- hvoli, safnaðarheimili Vídal- ínskirkju og í kirkjunni sjálfri. Listrænn stjórnandi er Sigurður Flosason en dagskrána má finna á www.gardabaer.is. www.noatun.is Nóttin er nýjung í Nóatúni Hringbraut Austurver Grafarholt Nú er opið 24 tíma, 7 daga vikunnar í þremur verslunum Nóatúns

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.