SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 28
28 18. apríl 2010 Þ að er mikið verk að lesa skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis í heild og fyrr en það hefur verið gert er ekki hægt að móta sér skoðun með viðunandi hætti á heildar- áhrifum hennar. Þrátt fyrir mikla um- fjöllun í fjölmiðlum síðustu daga gefur hún ekki yfirsýn yfir málið allt. Hins veg- ar hefur verið fróðlegt að fylgjast með fyrstu viðbrögðum fólks og þau hafa komið bæði mér og öðrum á óvart. Að kvöldi sl. mánudags fékk ég tölvu- póst frá einum viðmælanda mínum, þar sem hann sagði: „Ég er búinn að vera hálflamaður út af þessu í dag, myndin sem dregin er upp er miklu svakalegri en ég hugði.“ Svipuð viðbrögð fékk ég frá öðrum á sama aldri og þessi bréfritari, þeirri kynslóð, sem smátt og smátt mun taka við stjórn lands og þjóðar á næstu ár- um. Reyndar voru þau áþekk viðbrögðum fólks við þeim upplýsingum, sem fram komu í stefnu Glitnis á hendur nokkrum fyrri eigendum og stjórnendum þess banka nokkrum dögum áður, en þær upplýsingar virtust koma mörgum á óvart. Það kom mér á óvart, að sú innsýn, sem skýrsla rannsóknarnefndarinnar veitir í vinnubrögð og starfshætti í fjármálakerfi og viðskiptalífi þjóðarinnar á und- anförnum árum, og sá veikleiki, sem hún staðfestir að hafi verið til staðar í eftirlits- kerfi og stjórnkerfi, komi öðrum á óvart. Ég hélt að þær miklu umræður, sem fram hafa farið um viðskiptalífið á und- anförnum árum, hefðu opnað augu fólks fyrir því, að ekki væri allt með felldu, þótt beinar sannanir skorti að verulegu leyti því til staðfestingar þar til nú, að þær liggja fyrir. Kannski er þetta skiljanlegt. Það er búið að leggja gífurlega fjármuni það sem af er þessari öld í áróðursherferð til þess að sannfæra fólk um, að allar efasemdir um mikinn vöxt bankakerfisins og myndun stórra viðskiptasamsteypa, sem keyptu allt sem fyrir varð, væru úr lausu lofti gripnar, að ekki sé talað um ásakanir um lögbrot eða að farið væri á svig við lög. Nú liggur fyrir hvaðan þeir miklu fjármunir komu, sem gerðu þetta kleift. Í stuttu máli sagt, svo að notuð sé vond íslenzka: fólk er í „sjokki“. Það er gott vegna þess að í þeim afdráttarlausu við- brögðum felst von um viðreisn sam- félagsins. Skýrsla rannsóknarnefndarinnar sýnir, að það þarf að endurskoða frá grunni þá löggjöf, sem sett hefur verið um starfsemi fjármálafyrirtækja og viðskiptalífsins al- mennt. Varnaðarorð um áhrif stórra við- skiptasamsteypa á íslenzkt samfélag á undanförnum árum hafa reynzt rétt. Fyrstu viðbrögð Alþingis og ríkisstjórna við bankahruninu hafa verið fálm- kennd og gersamlega ófullnægjandi. Væntanlega verður nú öllum ljóst, að það frumvarp, sem ríkisstjórnin hefur lagt fram um endurskoðun á bankalöggjöf, hefur litla þýðingu. Þar þarf að grípa til róttækari aðgerða. Er flokkakerfið, sem til varð snemma á 20. öldinni, fært um að takast á við það risavaxna verkefni, sem framundan er? Það má draga í efa. Fram til þessa hefur enginn núverandi stjórnmálaflokka sýnt fram á í stefnumörkun eða með beinum verkum frá hruni bankanna, að þeir hafi náð að skynja og skilja hvað hér hefur gerzt og hvað hér þarf að gera á næstu ár- um. Hitt er svo annað mál, að frumkraftar í ætt við þá sem eru á ferð undir Eyja- fjallajökli og við höfum orðið vitni að síð- ustu daga að hafa stöðvað og truflað flug- umferð í okkar heimshluta og jafnvel víðar (!), geta verið á ferðinni undir yf- irborðinu í samfélagi okkar og kunna að vera að brjótast fram. Það gæti orðið mik- ið gos og með miklum afleiðingum fyrir allt umhverfi okkar. Ég hef áður lýst þeirri skoðun, að það eigi að tala af virðingu um götumótmælin í upphafi síðasta árs, þar sem fólk barði potta og pönnur, vegna þess, að þar var sleginn hinn rétti tónn. Krafan um aukið lýðræði. Fulltrúar ráðandi afla í samfélag- inu hafa haft tilhneigingu til að tala um grasrótarsamtökin með nokkru yfirlæti og jafnvel fyrirlitningu. Það sýnir það eitt að þeir skynja ekki strauma samtímans. Grasrótarsamtökin eru ekki horfin. Þau eru enn í fullu starfi og geta hvenær sem er náð nýrri og áður óþekktri útbreiðslu. En því til viðbótar má merkja, að hér og þar eru aðrir borgarar að taka höndum saman um að ræða og skipuleggja nýjar þjóðfélagsumbætur. Þeir velja sér vett- vang utan flokkanna en ekki innan þeirra. Síðustu daga og vikur hef ég heyrt á nokkrum einstaklingum úr mjög ólíkum áttum áhuga á og vilja til að taka til hendi um breytingar á þjóðfélagsgerðinni. Þessi áhugi hefur öðlast nýjan kraft og fengið byr í seglin með birtingu skýrslu Rann- sóknarnefndar Alþingis. Í öllum tilvikum hefur áherzlan verið lögð á það sama og götumótmælendur kröfðust: aukið lýð- ræði. Þessir einstaklingar hafa komið bæði úr röðum nýrra kynslóða í við- skiptalífinu og nýrra kynslóða í háskóla- samfélaginu. Það er athyglisvert, að málefnaleg sam- staða skuli vera fyrir hendi um grundvall- armál í svo ólíkum hópum samfélagsins. Breiðfylking götumótmælenda og nýrra kynslóða í viðskiptalífi og háskólum gæti orðið býsna öflugt þjóðfélagsafl! Í samfélagi aukins lýðræðis, þar sem fólkið sjálft tekur allar meiri háttar ákvarðanir í lýðræðislegri kosningu, ým- ist á landsvísu eða á vettvangi sveit- arstjórna, hafa stjórnmálaflokkar hlut- verki að gegna. Breytingin yrði hins vegar sú, að þeir hefðu mun minna hlutverki að gegna en áður. Þeir flokkar, sem átta sig á að þessi breyting er að verða í hug og hjarta fólks, í viðhorfi og afstöðu til þess sem máli skiptir, munu lifa af. Þeir flokkar, sem halda að ekkert hafi breytzt, munu hverfa af sjónarsviðinu. Frumkraftar á ferð Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is B andaríska skáldið og módernistinn Ezra Pound þóttist hafa himin höndum tekið á þessum degi fyrir 52 árum þegar honum var sleppt eft- ir tólf ára dvöl á geðdeild sjúkrahúss í Wash- ington. Pound hafði verið fluttur nauðugur til Banda- ríkjanna frá Ítalíu í stríðslok sakaður um landráð og var ekki lengi að drífa sig til Ítalíu aftur. Við komuna til Na- pólí var hinn 73 ára gamli Pound spurður hvort hann hefði ekki verið feginn að losna af geðdeildinni nokkrum vikum áður. „Nei, vegna þess að ég var ennþá í Banda- ríkjunum og Bandaríkin eru eitt stórt geðveikrahæli.“ Synd væri að segja að Ezra Pound hafi skipað sér á bekk með helstu þjóðernissinum í Bandaríkjunum á tímum seinna stríðs. Hann var borinn og barnfæddur vestra en hafði um þær mundir búið í tvo áratugi á Ítalíu og um langt skeið verið dyggur aðdáandi Benitos Mus- solinis, forsætisráðherra landsins, og þeirrar umdeildu stefnu sem hann stóð fyrir – fasisma. Þegar Bandaríkjamenn stigu inn í seinni heimsstyrj- öldina eftir árásina á Perluhöfn í desember 1941 var Pound gróflega misboðið. Hann hafði þátttöku landa sinna í hildarleiknum á hornum sér og jós úr skálum reiði sinnar í útvarpsþáttum sem hann stjórnaði á Ítalíu og í greinum í dagblöðum. Eins og skálds er von og vísa gagnrýndi hann þjóð sína með mergjuðu orðfæri. Var það bjargföst trú Pounds að efnahagsmál væru rótin að styrjöldinni og óprúttnir fjármálamenn hefðu hrifsað völdin af kjörnum fulltrúum almennings. Kunnuglegt? Margt í máli Pounds benti líka til þess að hann væri ekki hliðhollur gyðingum. „Að mínum dómi var hann gagn- tekinn af ítalska líkaninu af fasisma. Hann virtist hvorki sérstaklega hallur undir nasisma né andsnúinn Rússum, hann var fyrst og fremst knúinn áfram af hatri á Bret- landi, Bandaríkjunum og gyðingum,“ sagði rithöfund- urinn George Orwell um Pound. Dæmdur fyrir landráð Eftirrit af útvarpsþáttum Pounds voru afhent banda- rískum stjórnvöldum og var skáldið að því fjarstöddu dæmt fyrir landráð árið 1943. Það var þó ekki fyrr en í maí 1945, þegar Mussolini var endanlega ýtt frá völdum, að bandaríski herinn hafði hendur í hári Pounds. Var hann fluttur í fangabúðir hersins norður af Pisa, þar sem hann var látinn dúsa í búri í tæpan mánuð. Við þá með- ferð mun Pound hafa fengið taugaáfall. Skáldið var flutt nauðugt til Bandaríkjanna, þar sem sérskipaður dómur komst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki í ástandi til að koma fyrir sakadóm vegna geð- veilu. Þess í stað var Pound vistaður á geðdeild spítala heilagrar Elísabetar í Washington. Menn hefur allar göt- ur greint á um þessa niðurstöðu, þar sem ekkert í skrif- um Pounds á stríðsárunum bendir til þess að hann hafi verið veill á geði. Orðrómur hefur verið um það að þessi leið hafi verið farin til að forða Pound frá fangavist en hann var sextugur þegar hann sneri aftur til föðurlands- ins. Það var afar umdeilt þegar Pound hlaut hin virtu Bollingen-verðlaun fyrstur manna árið 1949. Tvennum sögum fer af aðbúnaði Pounds á geðdeild- inni. Sumir halda því fram að hann hafi fengið sérþjón- ustu en aðrir að hann hafi verið látinn sæta sömu með- ferð og hinir sjúklingarnir. Þó liggur fyrir að Pound sinnti ritstörfum meðan á spítaladvölinni stóð og fékk reglulega heimsóknir frá ýmsum andans mönnum. List- málarinn René Laubies, sem heimsótti Pound reglulega, spurði hann einhverju sinni hvort honum liði ekki illa á spítalanum. „Alls ekki,“ svaraði Pound, „hér hef ég fé- lagsskap af einu almennilegu Bandaríkjamönnunum.“ Pound var vistaður í tólf ár á geðdeild en látinn laus í kjölfar kröftugra mótmæla listamanna með skáldin Ro- bert Frost og Archibald McLeish í broddi fylkingar. Hann bar beinin á Ítalíu fjórtán árum síðar, 87 ára. orri@mbl.is „Eitt stórt geðveikra- hæli“ Verðlaunaskáldið Ezra Pound í hárri elli. Hann varð 87 ára. ’ Var það bjarg- föst trú Pounds að efnahagsmál væru rótin að styrjöld- inni og óprúttnir fjármála- menn hefðu hrifsað völdin af kjörnum fulltrúum almennings. Pound í fangabúðum Bandaríkja- manna á Ítalíu vorið 1945. Á þessum degi 18. apríl 1958
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.