SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 49

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 49
18. apríl 2010 49 XLIX Ég fer heim og loka vandlega gluggum. Lampi er borinn inn og ég býð góða nótt, ég segi góða nótt með fögnuð í rómnum. Mikið vildi ég að allt líf mitt væri svona: sólríkir dagar eða mildir eftir regn, með veðragný líkt og heimurinn sé að farast, lognvær kvöld og mannfjölda úti á göngu sem ég horfi á með áhuga gegnum glugga, síðasta auglit vinar sem horfir á skekið tré og glugga sem er lokað, ljós brennur á kveik, enginn lestur, hvergi hugsun – andvakan ein og tilfinning fyrir að lífið streymir um mig og að baki rúðunnar sé þagnardjúp líkt guði í svefni. Þýðingin birtist í bókinni Öll dagsins glóð – safn portúgalskra ljóða frá 1900 til 2008, sem JPV-útgáfa gaf út á liðnu ári. Guðbergur Bergsson er tilnefndur til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir verkið, en verðlaunin verða afhent á Gljúfra- steini hinn 23. apríl. Fjárhirðirinn (brot) Fernardo Pessoa (1888-1935) Guðbergur Bergsson þýddi Samhliða opnun sýningarinnar á ljós- myndum eftir Árna Thorsteinson í Reykjavík Art Gallery, kemur út portfólíumappa með tíu úrvalsmyndum úr þessu safni. „Um þessar mundir eru 140 ár frá fæð- ingu Árna og ég taldi við hæfi að standa myndarlega að kynningunni á þessum glæsilegu ljósmyndum hans,“ segir Þor- steinn Jónsson sem gefur möppuna út í 500 tölusettum eintökum. „Myndirnar eru prent- aðar í fjórlit og reynt að ná fyrirmyndinni eins vel og unnt er. Með myndunum fylgir texta- hefti og kynning á ljósmyndaranum.“ Þorsteinn segist hafa valið í möppuna og á sýninguna myndir sem sýni breiddina í úti- myndatökum Árna, myndir sem bregði áhugaverðu ljósi á mannlífið í Reykjavík um aldamótin 1900. „Ég valdi því ekki margar myndir sem eru bara af húsum, en þónokkrar sem sýna ólík- ar byggingar á þessum tíma. Andstæðurnar eru miklar, eins og milli fyrstu steinsteyptu húsanna og ömurlegra kota á borð við Aust- urbæinn í Melshúsum,“ segir Þorsteinn. Fóru varlega í lagfæringar á myndunum Þorsteinn segir að nauðsynlegt hafi verið að huga vandlega að því hvernig þessar gömlu myndir eru unnar og stækkaðar upp í dag, þar sem glerplöturnar hafi með tímanum lát- ið á sjá og séu rispaðar, en þótt eitthvað sé lagfært með nýjustu tækni þurfi líka að halda í andblæ frummyndanna. „Þær rispur sem eru augljóslega frá seinni tímum lét ég því laga. Ekki á Árni að gjalda þess að seinni tíma menn hafa rispað filmurnar hans,“ segir Þorsteinn. „En það þarf að fara varlega í allar lagfæringar á myndum sem þessum.“ Þorsteinn segir að þessi tími sem birtist í flestum myndanna, síðustu árin fyrir 1900, sé athyglisverður því þarna hafi Árni mögu- lega verið einn íslenskra atvinnuljósmynd- ara um að mynda reglulega utan dyra í Reykjavík. Sigfús Eymundsson hafi verið bú- in að draga sig í hlé sem ljósmyndari, Daníel Daníelsson mágur hans rak stúdíó Sigfúsar en sinnti einkum mannamyndatökum innan dyra, en Magnús Ólafssonar var ekki fluttur í bæinn heldur ennþá verslunarstjóri á Akra- nesi. Þetta hafi því verið leikvöllur tón- skáldsins með myndavélina, sem myndaði jafnt bændur í kaupstaðarferð sem heldri borgara að róa á Reykjavíkurtjörn. „Allflestar myndanna sem ég get greint aldur á eru frá árunum 1897 til 1898, þeim tíma þegar Árni var með stofuna í þessum skúr á horni Suðurgötu,“ segir Þorsteinn. „Þá hefur hann notað tímann til að taka myndir úti, hugsanlega með það í huga að geta gefið einhverjar þeirra út á póstkortum. Það var talin nokkuð arðbær útgáfa á þeim tíma.“ Útisamkoma á Lækjartorgi. Byggigarfeni, grjót og möl, á torginu. Myndin virðist vera tekin frá ljósmyndastofu Sigfúsar Eymundssonar, sem var á annarri hæð að Lækjargötu 2. Tónskáldið skráir mannlífið í Reykjavík á glerplötur sínar Prúðbúin hjón í myndatöku fyrir framan ljósmyndastofu Sigfúsar Eymundssonar. Ljósmyndir/Árni Thorsteinsson Höltersbær í Skuggahverfi, þar sem síðar var Hverfisgata 41, var reistur 1850. Bærinn var rifinn um 1900 en síðast bjó þar mormóninn Eiríkur Ólafsson frá Brúnum. Austurbærin í Melshúsum þótti ein aumasta vistarveran í Reykjavík undir lok 19. aldar. Þessi hús voru rifin skömmu eftir aldamótin og lóðin lögð undir kirkjugarðinn við Suðurgötu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.