SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 54

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 54
54 18. apríl 2010 Þ jóðleikhúsið fór af stað eins og kerling sem að eigin sögn „á ekkert til“ en heldur samt veislu; skóflar fram tertum og flatkökum með hangiketi, upprúlluðum pönnukökum, ástarpungum og heima- bökuðu brauði með þykku lagi af heima- gerðri kæfu. Ber fram lútsterkt kaffi og sparar ekki í það rjómann fyrir þá sem slíkt vilja hafa. Kerling sem hvetur gest- ina frekar en letur að „gera sætt“ – því nógur sé kandísinn. Kerling sem heldur með úrtölum dásamlegt kaffiboð – „jú þar er snurðan“ – það var meiningin að þetta yrði matarboð. Við opnun Þjóðleikhússins var lítið til – af leikritum, íslenskum. Því var brugðið á það ráð að taka það sem best var til af þjóðlegu leikhæfu bakkelsi; Fjalla- Eyvind og Nýársnóttina og slengja því fram af krafti en á sömu rómantísku rós- óttu diskunum og áður. Svo var hrært í leikgerð; Íslandsklukkuna. Þetta þótti allgott – enda er það gott – á sínum stað á sínum tíma. Og kannski alltaf? Ágæt Ís- landsklukka Lárusar Pálssonar gaf tón- inn um það sem koma skyldi; leik- gerðaskriðan var runnin af stað. Þann flaum hefði mátt stilla annað veifið og hlífa þannig á stundum bæði skáldskap og mönnum. Þarna strax í árdaga leikhússins birtist feimni við erlenda meistara, líkt og kerl- ingin treysti sér ekki í framandi rétti þrátt fyrir að vera kannski bæði hús- mæðraskólagengin og sigld. Þó brá fyrir tilþrifum í verkefnavali og feimnin við klassískar hetjur var ekkert meiri þá – merkilegt nokk – en nú en hún smárann þó af; Shakespeare og Moliére birtust fljótlega og Ibsen og Tsjekov og Miller og Shaw. Það var þá. Kerlingin stóð sig bara nokkuð vel, þá. Hún mætti gjarna rifja upp kynnin við þessa meistara oftar og af meiri dirfsku, nú. En Þjóðleikhúsið á ekki bara að vera kerling með svuntu sem raðar tertum á borð. Hlutverk þess á líka að vera það að hlúa að æskunni bæði með því að „gefa börnum brauð“ í listrænum skilningi og eins með því að gefa ungu listafólki tæki- færi til að þroskast og vaxa í skjóli. Líkt og kynslóðirnar hafa vaxið fram hlé- megin við ömmur allra tíma; gamlar konur sem vernda og rækta og gauka ný- bökuðu að þeim sem sitja í hlýjunni. Sem betur fer hefur Þjóðleikhúsið oft verið sú kerling og ekki síst nú á síðustu miss- erum. Það ber að þakka. Þjóðleikhúsið á líka að vera kerlingin sem bankar í gluggann þegar þjóðin er hálfvitlaus úti í garði að sparka upp rós- unum sem plantað hefur verið með erf- iðismunum í norðanroki og sjávarseltu. Skammir leikhússins þurfa að heyrast þó svo ekki nokkur maður fari eftir þeim fyrr en seinna; eftir uppvaskið kannski, eða á síðustu stundu framan við hið Gullna hlið. Gamla konan Þjóðleikhúsið á einnig að vera til staðar þegar þjóðlífið liggur dautt og í dróma; þá á hún að hvetja og kalla fólk saman til verka. Þá á leikhúsið að efla anda framfara líkt og lagt var upp með forðum þegar mönnum datt þetta í hug til að byrja með: Að lítil þjóð þyrfti leikhús, Þjóðarleikhús. Og þegar sálin er meidd. Þegar svolar samfélagsins hafa skandalíserað á þorra- blótinu og gráta skömmustulegir, daginn eftir, slagsmálin við dyravörðinn og upp- köstin yfir bringukollana á hlaðborði kvenfélagsins. – Þá á að vera til leikhús sem sansar, eins og blíð amma, óláta- belgina (kannski má færa að því rök að þetta sé úrelt sjónarmið; hafi dáið þegar menn hættu að kunna að skammast sín). Hvað um það, huggandi kerling sem gerir gott úr er nauðsyn hverjum breyskum manni. Hið ljúfa áminnandi leikhús nauðsyn hverri þjóð. Á þennan flöt leik- hússins reynir mjög um þessar mundir. Sumt er þar að takast vel en annað mið- ur, eins og gengur. Margir leita gleðinnar í leikhúsinu, vilja einvörðungu ærsl og hlátur, grín og trúðskap. Um það er ekkert nema gott eitt að segja, því allt er þetta mannbæt- andi þungri þjóð. Hlýleg kerling gleðst með glöðum og hlær dátt þegar færi gefst af því að hún þekkir af langri ævi græð- andi mátt gleðinnar. Þessum þætti hefur Þjóðleikhúsið alltaf sinnt ágætlega þótt verkefnavalið mætti stundum vera metnaðarfyllra og klassísk fyndni meira áberandi. Þó svo að maður gangi nú undir manns hönd við það að telja þjóðinni trú um að hún sé ekki þjóð heldur eitthvað annað – kannski samfélag gleymdra þurfamanna – eða kannski enn frekar bandalag sið- blindra þjófsnauta – þá breytir það ekki því að við erum samt þjóð og þurfum nú sem aldrei fyrr okkar Þjóðleikhús að styrkja þau bönd sem gera eina þjóð að Þjóð. Núna og nákvæmlega núna þurfum við Þjóðleikhús sem fer í öll hlutverk kerlingar sem að ofan eru talin. Þegar hugmyndinni um óskabarnið sleppti tók við hin um musterið; musteri íslenskrar tungu. Kannski áttu þær jafn- vel að vinna hver með annarri, þessar hugmyndir? Það gildir einu, báðar eru jafn fráleitar. Ef eitthvað hefur staðið orðspori, virkni og alþýðleik hins ís- lenska Þjóðleikhúss fyrir þrifum þá er það þessi undarlega musterishugmynd. Allar þær uppskrúfuðu stellingar sem hún hefur kallað fram bæði hjá lærðum og leikum hafa bara verið til tjóns. Okkur Íslendingum passa ekki musteri því við erum alin upp í skoti hjá kerlingum sem þurftu ekki slíkt; kerlingum sem höfðu yfir gott og elskuðu móðurmálið, kenndu vers og vísur. Kerlingum sem túlkuðu ís- lenskuna með blæbrigðum sem duga – ef rétt eru eftir höfð og eðlilega tamin – á hvaða Shakespeare og Sófókles sem er. Að lokum er spurt: Hefur sú gamla dugað? Að minnsta kosti þykir mér vænt um þessa kerlingu sem Þjóðleikhúsið varð fyrir aldur fram; hún hefur svo oft verið svo dæmalaust góð við mig og allt mitt fólk. Þjóðina. Það er því af hlýhug, einlægni og virðingu sem ég óska Þjóð- leikhúsinu til hamingju með afmælið – það lengi lifi! Þjóðleikhúsið 60 ára: Óskabarn eða kerling? Sextíu ára afmælis Þjóðleikhússins er fagnað með þjóðlegu bakkelsi í sumarbyrjun. Morgunblaðið/Golli Stundum er – og þá helst á tyllidögum – talað um Þjóðleikhúsið sem óskabarnið sem þjóðin ól á fyrstu dögum lýðveldisins, reyndar eftir eina lengstu meðgöngu sem sögur fara af. Stofnun Þjóðleikhúss var auðvitað ákveðin yfirlýsing um að hér byggi þjóð sem væri alvöru. En að líkja Þjóðleikhúsinu við barn og allt tal um slit á barnskóm, svo og tal um erfið unglingsár og síð- an um brokkgengan þroska sem endalaust má bíða eftir er hjóm eitt. Í raun öfugmæli. Guðmundur S. Brynjólfsson gummimux@simnet.is Lesbók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.