SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Síða 11

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Síða 11
18. apríl 2010 11 „Mannseðlinu verður víst aldrei breytt. Fyrirfram var vitað að konum hér yrði ekki liðið að dufla við karlpen- inginn á Kárahnjúkum og ef slíkt gerðist fóru sögur af stað. Almenningsálitið lætur ekki að sér hæða,“ segir Steinunn Ásmundsdóttir og bætir við að þegar fram- kvæmdir við Kárahnjúka stóðu sem hæst hafi íslenskir karlmenn og erlendir á stundum slegist um konur. „Þær konur sem urðu elskar að mönnum í efra fóru afar dult með það og földu slóð sína. Annars geturðu rétt ímynd- að þér að einhvern tíma var gengið út í sumarnóttina á Fljótsdalsheiðinni og hér og hvar um landið eru nú lítil börn með yfirbragði manna í sunnanverðri Evrópu.“ Austræn andlit á íslenskum öræfum við Kárahnjúka. Ljósmynd/Steinunn Ásmundsdóttir Konur urðu elskar að mönnum í efra „Við gengum upp í þorpið og mér fannst strax með miklum ólíkindum hve langt niður eftir eyrinni flóðið náði. Fjöldi húsa var í rúst og við vissum að einhverjir höfðu fundist látnir,“ segir Finnbogi Hermannsson um stöðu mála á Flateyri þegar hann kom þangað sem fréttamaður þegar snjóflóð fékk á þorpið haustið 1995. „Sumstaðar mátti sjá fólk sem puðaðist í gegnum þetta grátandi. Og þrátt fyrir fumleysið var andrúmsloftið mjög sérstakt. Snjóflóðin snertu alla á staðnum og að því leyti var maður kominn inn í það sem kalla má altækt ástand,“ segir Finnbogi og bætir við að í kjölfar flóðsins hafi ónotaleg kennd sest í sál hans sem sé þar enn. Oddviti Flateyringa ræðir við björgunarmenn á vettvangi. Fumleysi á Flateyri í kjölfar snjóflóðs „Þar sem ég fylgdist með þessum bardaga dró ég upp upptökutækið og hugsaði með mér að gott væri upp á síðari tíma að eiga hljóðupptöku af stemningunni í hús- inu sem var býsna sérkennileg,“ segir Hjálmar Sveins- son. „Á þessum tímapunkti var hins vegar slíkur móður runninn á lögregluþjónana að þegar einn úr þeirra hópi sá mig með upptökutæki réðst hann á mig og sneri nið- ur. Mér var brugðið og úr urðu ryskingar. Á endanum var það Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, jafnaldri minn úr Hafnarfirði, sem skakkaði leikinn og spurði hvað væri eiginlega á seyði. Enda kom lögreglumað- urinn til mín á eftir og bað mig afsökunar.“ Mótmæli Ungt fólk og reitt mótmælir við Alþingishúsið Ljósmynd/Sigurður Bogi Var snúinn niður í alþingishúsinu S itthvað bar til tíðinda á Íslandi árið 1965.“ Þannig hefst kafli um Kára Jónasson í bókinni. „Danska þjóðþingið samþykkti að okkur skyldu afhent íslensku handritin, Laugardalshöllin var tekin í notkun og á vordögum kom fyrsta Fokker Fri- endship-flugvél Flugfélags Íslands til landsins en slíkar vélar voru notaðar í innanlandsfluginu næsta aldarfjórð- unginn. Á útmánuðum hélt svo kon- ungur djassins, Louis Armstrong, tón- leika í Háskólabíói sem heppnuðust frábærlega. Fjölmiðlamenn tóku á móti snillingnum suður á Keflavíkurflugvelli og tíðindamenn Tímans, þeir Magnús Bjarnfreðsson og Kári Jónasson, fylgdu honum eftir. „Við fórum með honum í rútunni til Reykjavíkur, þar sem Magnús tók viðtal við Amstrong en ég myndaði. Honum þótti nóg um að sjá hrjóstrugt landslag Reykjanesskag- ans þegar hann horfði út yfir breiðuna og sagði „Where are you taking me?“ með sinni hrjúfu en hlýju röddu. „Hvert er verið að fara með mig?“ gætu þessi orð út- lagst.“ En sú frétt sem þó vakti kannski hvað mesta athygli þetta ár var að hingað væri væntanlegur hópur manna sem senda ætti út í geiminn. „Námsferðir þessar eru farnar til þess að gera geimförunum kleift að kynna sér ýmiskonar jarðmyndanir, svo að auðveldara verði fyrir þá að velja úr sýnishorn til töku á tunglinu þegar mönnuð geimför verða send þangað,“ sagði í frétt Morgunblaðsins 25. júní 1965. Þar voru einnig birt nöfn tunglfaraefnanna ellefu sem væntanleg voru, en í þeim hópi var meðal annars Edwin E. Aldrin sem var einn þriggja þátttakenda í tunglferðinni fjórum árum síðar. Fimm væntanlegir tunglfarar komu til Íslands með Loftleiðavél að morgni laugardagsins 10. júlí og hinir sex næsta dag. Flogið var að morgni mánudagsins 12. júlí með flugvél frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli til Akureyrar en þaðan fóru geimfararnir í Öskju með rútubílstjórunum Ingimar Ingimarssyni og Guðmundi Jónassyni. Í samfloti voru Morgunblaðsmennirnir Kjart- an Thors, Andrés Indriðason og Sverrir Pálsson á Ak- ureyri í einum bíl, Kári Jónasson af Tímanum og nokkr- ir norskir blaðamenn. Þá er ónefndur Rudolf Kristinsson, stórkaupmaður og fornbílamaður, sem var í för með Kára en saman slörkuðu þeir víða á þessum árum. Voru meðal annars í mars 1965 fyrstir manna til að aka bíl upp á Langjökul, sem er alsiða meðal jeppa- karla í dag. Fréttir á bílabylgju „Ég var strax ákaflega spenntur fyrir geimfaramálinu. Skynjaði að þetta var einstakt fréttamál. Áður en þeir komu til landsins var haldinn blaðamannafundur í bandaríska sendiráðinu þar sem málið var kynnt. Þá þegar var ég þess staðráðinn að fylgja leiðangrinum eftir í Öskju og Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri Tím- ans, var raunar mjög áfram um slíkt, enda stóð allur metnaður hans til þess að gefa út öflugt fréttablað. Á þessum árum var ég farinn að ferðast mikið um landið, hafði nýlega keypt mér Willys-jeppa og var að því leyti vel búinn. Fyrir þennan leiðangur var hins vegar nauð- synlegt að hafa öflugan fjarskiptabúnað. Því fór ég á radíóverkstæði Landssímans á Sölvhólsgötu, sem var í næsta húsi við ritstjórn Tímans, og fékk góða talstöð í bílinn jafnframt því sem heljarstórt loftnet með spólu í miðjunni var sett á bílinn,“ segir Kári sem hélt rakleið- is norður í land þegar geimfaraefnin voru komin til landsins. Með skiptitali í gegnum svonefnda bílabylgju þar sem samtölin voru afgreidd í gegnum loft- skeytastöð las Kári, þá staddur í Öskju, frétt sína sem birtist á forsíðu Tímans þriðjudaginn 13. júlí. „Geimfararnir komu til Herðubreiðarlinda með far- þegabíl frá Akureyri um klukkan fjögur í dag, mánu- dag. Í hópnum eru 24 manns, þ.á m. er dr. Sigurður Þórarinsson og Guðmundur Sigvaldason jarðfræðingur. Hópurinn hélt áfram eftir skamma viðdvöl og voru þeir komnir kl. 6 e.h. inn að Öskju. Þar slógu geimfararnir svo upp tjaldbúðum í svokölluðu Drekagili og má segja að þetta sé mjög myndarleg tjaldbúð þrátt fyrir það að þeir noti aðeins hermannatjöld af einföldustu gerð. Geimfararnir kveiktu fljótlega grillelda við tjöld sín, og notuðu til þess viðarkol, og elduðu þar mat sinn,“ segir Kári í frétt sinni og getur þess að íslensku jarðvís- indamennirnir hafi frætt bandarísku geimfarana og aðra leiðangursmenn um svæðið, það er jarðfræði og jarðmyndanir þar. Bílabylgjan var á þessum tíma mjög algeng í fjar- skiptum. Í gegnum hana gátu menn átt samtöl sín í millum ellegar miðluðu loftskeytastöðvarnar í Gufunesi eða Brú í Hrútafirði samtölunum áfram. „Í skiptitali var bílnúmer viðkomandi kallmerkið. Raunar náði ég úr Öskju engu sambandi við loft- skeytastöðvar en Magnús Blöndal Jóhannsson tónskáld, sem var fjarskiptaáhugamaður og mikið uppi á fjöllum á þessum árum, heyrði til mín og bar skilaboðin áfram. Það var í raun honum að þakka að ég kom fréttinni frá mér.“ Geimfarar Áður en menn héldu til tunglsins í fyrsta sinn árið 1969 kynntu þeir sér aðstæður á Íslandi enda var talið að sitt- hvað væri með sama svip á þeim hnetti og hérlendis. Sagt er frá komu tunglfaranna í bókinni og eftirfylgd fréttamanna með þessum óvenjulegu gestum. Geimfarar í Drekagili Ellefu blaðamenn segja í bókinni Fólk og fréttir frá stórmálum sem þeir sinntu og höfðu afgerandi áhrif á þróun samfélagsins. Sigurður Bogi Sævarsson er höfundur og hér má lesa kaflabrot. Sigurður Bogi Sævarsson

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.