SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Side 20

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Side 20
É g stend á hlaðinu og er að reyna að finna mér eitt- hvað að gera,“ segir Sig- urður Þór Þórhallsson, bóndi á Önundarhorni í gær. Hlaup kom í Svað- bælisá á miðvikudag vegna eldgossins undir Eyjafjallajökli og flæddi jökulvatn yfir 50-60 hektara af túnum. „Drullan hefur aðeins sigið, því hún var blönduð krapa,“ segir hann. „Ég ætla því að sækja mér flaghefil og bjástra við að skafa út af túnunum, því ég ímynda mér að betra sé að ná drull- unni áður en krapinn hverfur alveg. Ég ætla að skafa út í skurðina, því þeir eru hvort sem er fullir, áður en jökulleirinn fer ofan í svörðinn. Hann er svo sem búinn að fara ofan í nógu stórt svæði. Ég vildi gera eitthvað, frekar en að leggjast með tærnar upp í loft. Maður verður að sprikla, er það ekki?“ Rækta, breyta, stækka og grafa Sigurður og kona hans Poula Kristín Buch keyptu jörðina árið 1997. „Við komum hingað 26. ágúst frá Vest- mannaeyjum. Þá var fjölskyldan karl, kerling og tvær stelpur, sem eru orðnar fjórar í dag,“ segir hann. „Við bjuggum með bóndanum sem við keyptum af í kommúnu í heilan mánuð. Þetta bar svo fljótt að og þau voru ekki búin að festa sér annað hús. Konan mín fór reyndar beint til Reykjavíkur þegar við komum með Herjólfi, til að stunda nám í hár- greiðslu, en ég fór austur með börn og búslóð. Ég á ættir að rekja til Víkur í Mýrdal, þannig að ættingjar og vinir hjálpuðu mér að afferma flutningabíl- inn og bekkjarbróðir minn sótti bú- slóðina til Eyja.“ Þegar þau hófu búskap var mjólk- urkvótinn 76 þúsund lítrar, en þau hafa keypt 100 þúsund til viðbótar. „Mig minnir að hér hafi verið 55 gripir þegar við komum, en nú eru þeir um 230,“ segir Sigurður. „Við gerðum ekkert fyrsta árið, nema það sama og karlinn sem hér var áður hafði fengist við. Svo fór maður að koma með sínar hug- myndir inn í reksturinn, rækta, breyta túnum, stækka þau og grafa. Við höfum verið stöðugt að stækka og rækta tún síðastliðinn áratug. En við fórum þá leið að byggja við þessa kofa sem hér voru og höfum bjástrað við það sjálf með föður mínum og svo hafa góðir vinir lagt okkur lið líka.“ Töluvert sjokk Stór hluti af bújörðinni var órækt- arland, að sögn Sigurðar. „Það voru beitarflákar fyrir hross og mýrar, sem við fórum að rækta og grafa. En það tók mörg ár að skipuleggja hvernig ætti að vinna þessi tún og ganga um þau með vélum og skepnum. Við fórum rólega af stað, en höfum haldið áfram á hverju ári. Það segir sína sögu, að við höfum haft sama gröfumanninn á hverju ári, allt upp í sex vikur í senn.“ Nú er svo komið að þau eru komin með 100 hektara af túnum, en jörðin er 130 hektarar. „Þessir 230 hausar eru ekki allt kýr, því við erum einnig með nautgripi og seljum mikið af nauta- kjöti. Við ræktum gras, korn og græn- fóður fyrir skepnurnar, en það er svo sem ekki hægt að rækta mikið annað á Íslandi, svo vit sé í.“ – Hvaða augum líturðu framtíðina á þessum tímapunkti? „Ég get sagt þér það, að í gær leið mér þannig, að ég var hálfniðurlútur og hafði fengið töluvert sjokk,“ svarar hann blátt áfram. „Maður sveiflast svolítið í dag, en er þó kominn með hefil aftan í traktorinn. Ég sé fyrir mér, að ef eitthvað er til í kerfinu sem getur mætt þessu tjóni með manni, ég þekki það ekki, þá verði maður að rífa sig af stað. En ég hugsa að ég verði að sækja heyfeng annað, því hér þarf að heyja 1.700 rúllur og það næst ekki full uppskera.“ Hann segir skurðakerfið allt ónýtt. Þá sitji jökulleirinn, sem flaut yfir allt, sumstaðar í sverðinum. „Ég var búinn að keyra skít á allt og nú gægist grasið græna upp úr drullunni, en þegar leir- inn sest í svörðinn er þetta grjótharður andskoti sem hleypir engu niður úr sér. Hann kæfir allan gróður og rækt- unin verður ónýt.“ Þar sem skurðakerfin eru full verður að keyra drulluna í burtu. „Það er nauðsynlegt ef ég ætla að sprikla hér áfram,“ segir Sigurður. „Auðvitað verður maður að sjá að kerfið komi til móts við mann og heyforðinn verði nógur. Svo þarf að taka ákvarðanir um að umbylta öllu, hvort sem það gerist núna eða þegar líður á sumarið. En það er mikið starf. Það þarf að fara yfir 11 hektara af skurðum og kostnaðurinn er eftir því, bæði ræktun og vinna. En það er ekkert, sem hefur ekki verið gert áður í mannkynssögunni.“ Þarf þá að loka kofum Sigurður segist aldrei hafa velt þeim möguleika fyrir sér, að þetta gæti gerst. „Ég sá þessa spýju koma rennandi ofan úr jöklinum og fór upp á þjóðveg til að forða mér. Það voru engir heima nema ég. Ég fylgdist með hlaupinu koma niður og undir brúna, sá það belja áfram, beið svolitla stund, en svo kom löggan og rak mig burtu, en þá var far- ið að sjatna svolítið. Ég vonaði að það væri spýja sem ég slyppi með. Eftir það hefur komið gusa, þetta helvíti kemur í gusum, og þá fór hún yfir. En nei, ég hafði ekki velt þessu fyrir mér og aldrei að þetta yrði svona stór- kostlega mikið. Svo fór ég að velta því fyrir mér í gær, að nú hefði bara einn bær fengið gusuna yfir sig, en hvað myndi gerast ef Katla kæmi hér vestan megin. Ef það er í líkingu við þetta, sem færi yfir Landeyjarnar, svo og svo margar jarðir, þá veit ég ekki hvernig ætti að mæta slíku tjóni. Við megum bara þakka fyrir ef ekki verða stórar gusur, hvorki þar eða hérna megin. Ef það verður ekki meira en eitt lítið kot sem fær þetta yfir sig. Ég verð reyndar að viðurkenna, að ég hef lítið hlustað á fréttir og veit ekkert hvað er að gerast vestan megin. En hér í kringum Svaðbælisá hefur ekkert rækt- arland farið nema hér.“ – Hefurðu orðið var við ösku? „Nei, en er ekki spáð norðanátt? Maður þarf þá að reyna að loka ein- hverjum kofum.“ Sjómennskan góður skóli En fjölskyldan hefur kunnað vel við sig á Önundarhorni í gegnum tíðina. „Tvær yngstu dæturnar þekkja ekkert annað, því þær eru fæddar hér,“ segir Sig- urður. „Hér hefur okkur liðið vel og við eigum góða nágranna og vini. Ég myndi segja að samfélagið hér, alveg út í Hvolsvöll og austur með öllu, sé mjög gott. Og maður hefur veðurfarslega séð gott af því að búa hérna, ekkert er upp á það að klaga, þó að maður hafi ekki átt von á því að Eyjafjallajökull færi að hrista sig.“ Sigðurður er fæddur og uppalinn í Vík í Mýrdal, en fór á vertíð árið 1987 til Vestmannaeyja. „Ég var á sjó í tíu ár, lærði til stýrimanns og fékk að spreyta mig á því í afleysingum með bát,“ segir hann. „Ég hefði ekki viljað sleppa þeirri lífsreynslu að vera til sjós. Það var virkilega góður skóli, félagsskapurinn skemmtilegur og góður karlahúmor sem þar viðgengst.“ – En þú ákvaðst að gerast bóndi? „Já, þetta breyttist þegar ég fór í Stýrimannaskólann. Þá fór ég að vera meira heima og viðhorfið breyttist – mig langaði til að halda því þannig. Sveitastörfin eru gamall draumur. En ég var með frjókornaofnæmi, sem krakki útgrátinn af því þegar ég var í sveit. Það eltist hinsvegar af mér með árunum og búskaparhættir breyttust, Heimreiðin að Önundarhorni er ófögur yfir að líta. Sigurður lýsir spjöllunum vegna hlaupsins. 20 18. apríl 2010

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.